Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 10
10 13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR
Leikur að dekkjum Hópur ungra
manna og drengja á Fídjí-eyjum lék
sér í gær að gömlum dekkjum í þorp-
inu Lami, sem er í útjaðri höfuðborg-
arinnar Suva. Þar var framið valdarán
fyrir stuttu og leiðtogi þess sagði í gær
að hinn fallni forsætisráðherra ætti
ekki að voga sér að snúa aftur til Sava.
FréttabLaðið/aP
HJÁLPARSTARF Íslensk stjórnvöld
munu næstu tvö árin taka þátt í
samstarfsverkefni með Matvæla-
áætlun Sameinuðu þjóðanna fyrir
börn í Afríku sem kallast: „Börn
styðja börn“. Verkefnið gengur út
á að sérhvert grunnskólabarn á
Íslandi styrki eitt barn í Úganda
og Malaví um skólamáltíð alla
daga ársins næstu tvö árin. Börn á
grunnskólaaldri eru tæplega
45.000 hér á landi og verður því
greitt fyrir skólamáltíðir jafn-
margra barna í löndunum tveim-
ur. Heildarkostnaður við verkefn-
ið er 110 milljónir króna á ári, eða
samtals 220 milljónir fyrir tvö ár.
Með þátttöku í verkefninu kemst
Ísland í hóp fimm efstu landa í
framlögum til Matvælaáætlunar
Sameinuðu þjóðanna, ef miðað er
við höfðatölu.
Verkefnið var kynnt á fundi í
Mýrarhúsaskóla í gær sem utan-
ríkisráðherra Íslands, Valgerður
Sverrisdóttir, sat ásamt fulltrúum
frá Matvælaáætlun Sameinuðu
þjóðanna og Mýrarhúsaskóla.
„Þetta er mjög mikilvægt mál og
ég er mjög stolt af því að geta
tekið þátt í því með þessum hætti,“
segir Valgerður.
Verkefnið verður unnið af Mat-
vælaáætlun Sameinuðu þjóðanna,
sem hefur 40 ára reynslu af því að
bjóða upp á skólamáltíðir til að fá
börn til að mæta í skólann og bæta
um leið heilsu þeirra. Það er hluti
af átaki sem kallast „Málsverður á
menntavegi“ sem síðastliðið ár
hjálpaði 21,7 milljón börnum í
samtals 74 löndum að sækja skóla
með því að gefa þeim eina máltíð á
dag. - ifv
Samstarfsverkefni Íslands og Matvælaáætlunar SÞ „Börn styðja börn“ var kynnt í Mýrarhúsaskóla í gær:
Gefa 45.000 máltíðir til barna í Afríku
verkefnið kynnt Utanríkisráðherra
kynnti samstarfsverkefnið á fundi í
Mýrarhúsaskóla í gær ásamt fulltrúum
frá SÞ og Mýrarhúsaskóla.
BReTLAnD Bretar eru afar
uppteknir þessa dagana af mynd
sem sögð er vera af forsætisráð-
herrafrúnni Cherie Blair í
adamsklæðunum, en málverkið
hefur ekki verið til sýnis í rúma
tvo áratugi. Frú Blair er sögð
hafa setið nakin fyrir hjá
málaranum Euan Uglow á
námsárum sínum, en hann lauk
aldrei við málverkið.
Myndin hefur verið falin í
kjallara listagallerís nokkurs í
London síðan í byrjun níunda
áratugarins, en að ósk málarans
hefur hún ekki verið sýnd síðan
fór að bera á Tony í breskum
stjórnmálum. Umboðsmaður
listamannsins staðfesti nýverið
við The Times að konan á þessu
umdeilda, óræða málverki væri
Cherie Blair. - smk
Cherie Blair:
Sögð hafa setið
fáklædd fyrir
hjá listmálara
SAMFéLAGSMÁL Guðbjörn Magnússon, blóð-
gjafi með meiru, gaf blóð í 150. sinn í gær og
hefur því gefið tæpa 70 lítra síðan hann kom
fyrst í Blóðbankann fyrir fjórum áratugum.
Guðbjörn hlaut verðlaunin Hversdags-
hetja Fréttablaðsins 2006 við úthlutun
Samfélagsverðlauna blaðsins fyrir að hafa
gefið blóð í 147 skipti. Yfirlæknir Blóðbank-
ans telur að gjafir Guðbjörns í gegnum árin
hafi nýst 450 einstaklingum og framlag hans
sé því alveg einstakt.
Guðbjörn var hinn hressasti í gær og vildi
fyrst af öllu minna alla Íslendinga á að
blóðgjöf er einstök gjöf. „Þessa vöru er ekki
hægt að fá með öðrum hætti og hún getur
reynst ómetanlega dýrmæt.“ Guðbjörn
nefnir sem dæmi að stuttu eftir að hann fékk
verðlaun Fréttablaðsins fyrr á árinu hringdi
til hans kona sem taldi sannað að hann hefði
bjargað lífi lítillar dóttur sinnar. „Þessi litla
stúlka þurfti blóðgjöf sex sinnum minnir
mig, sem sýnir þörfina. Það var mjög
notalegt að heyra í þessari konu,“ segir
Guðbjörn.
Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóð-
bankans, segir að manni eins og Guðbirni
verði aldrei fullþakkað. „Hann er frábær
fyrirmynd og við þurfum að fá nokkra
Guðbirni á næstu árum og áratugum því
þörfin verður sífellt meiri.“
Ólafur Helgi Kjartansson, formaður
Blóðgjafafélags Íslands, þakkaði Guðbirni
kærlega fyrir einstakt framlag og færði
honum viðurkenningarskjal og kveðju frá
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í
tilefni dagsins. - shá
Guðbjörn Magnússon, hversdagshetja Fréttablaðsins, gaf blóð í 150. sinn:
Hefur gefið 450 manns blóð á 40 árum
150. skiptið Guðbjörn Magnússon var hinn hressasti
þegar hann gaf blóð í gær. tæpum 70 lítrum hefur
verið tappað af honum á fjórum áratugum.
FréttabLaðið/Heiða