Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 102
46 13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HAnDboltI Breytingar verða hjá
karlaliði Hauka í handknattleik
næsta vetur. Páll Ólafsson mun
láta af störfum sem þjálfari liðs-
ins og við stöðu hans tekur, sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
Fréttablaðsins, Aron Kristjánsson
en hann er á heimleið eftir að hafa
alið manninn í Danmörku síðustu
ár sem leikmaður og síðar þjálfari
hjá Skjern.
„Ég er búinn að ræða við
Haukana og það er gagnkvæmur
vilji að ganga til samninga,“ sagði
Aron við Fréttablaðið í gær en
hann vildi þó ekki staðfesta að
málið væri frágengið. Aron lék
með Haukum á sínum tíma og síð-
ustu ár hefur verið talað um að
hann sé á leið heim og nú er loks-
ins að verða af því.
„Fjölskyldan er búin að taka þá
ákvörðun að koma heim og það er
mikill léttir að vera búin að taka
ákvörðun enda hefur ákvörðunin
setið lengi í okkur,“ sagði Aron
sem var með freistandi tilboð í
höndunum frá Danmörku. „Til-
boðið frá Team Tvis Holstebro var
sérstaklega spennandi og það var
erfitt að gefa það frá sér. Þeir voru
búnir að setja upp mjög spennandi
pakka fyrir mig sem ég lá lengi
yfir með fjölskyldunni en eins og
áður segir þá ákváðum við að
koma heim.“
Aron stóð sig frábærlega úti í
Danmörku bæði sem leikmaður og
þjálfari og kom því ekki á óvart að
lið í Danmörku skyldu bera víurn-
ar í hann eftir að hann gaf út að
tímabilið í ár væri hans síðasta
með Skjern. Stórlið GOG var eitt
þeirra liða. Aron segir að það legg-
ist vel í sig að koma aftur heim.
„Það verður spennandi. Ég var
heima á dögunum, skellti mér á
völlinn og hafði gaman af,“ sagði
Aron en lærlingur hans hjá Skjern,
Jón Þorbjörn Jóhannesson, er
einnig á heimleið og hefur þegar
verið orðaður við Haukaliðið.
henry@frettabladid.is
Aron á leið heim og mun
taka við liði Hauka
Handknattleiksþjálfarinn Aron Kristjánsson hefur tekið þá ákvörðun að flytja
heim eftir áralanga dvöl sem leikmaður og þjálfari í Danmörku. Aron hefur átt
í viðræðum við Hauka og mun að öllum líkindum taka við liðinu.
íhaukabúningnumAron var einn
skæðasti leikmaður Hauka á sínum
tíma.
aronáásvöllumAron Kristjánsson sést hér stýra Skjern í æfingaleik gegn Hauk-
um á Ásvöllum í lok síðasta sumars. Hann mun stýra fleiri leikjum þar í framtíðinni.
fréttAblAðið/StefÁn
HAnDboltI Búast má við hörðum
viðbrögðum vegna orða danska
handboltamannsins Joachims
Boldsen en hann sagði að danskar
handboltakonur gætu ekki neitt í
handbolta. Boldsen er einn besti
leikmaður Dana og kvennahand-
bolti er mjög vinsæll í Danmörku.
„Það er nánast ekkert gott við
kvennahandbolta, ef maður ber
hann saman við karlahandbolta.
Þetta eru tveir ólíkir heimar og
það er nánast vandræðalegt að sjá
hve lítið þær geta. Þær geta nán-
ast ekki neitt.
Þær geta ekki tekið snúnings-
skot, geta ekki hoppað og ekki gert
gabbhreyfingar,“ sagði Boldsen í
samtali við danska blaðið Berl-
ingske Tidene. Hann bætti þó við
að karlahandboltinn stæði í þakk-
arskuld við kvennahandboltann.
„Við skuldum þeim mikið. Þær
hafa auglýst íþróttina í mörg ár,
þó að ég vilji ekki vera að líkja
þessu saman.
Kvennahandbolti hefur ekki
verið merkilegur í gegnum tíðina,
af því að það eru fá lið sem geta
eitthvað í kvennahandbolta. En
allt í lagi, það besta við kvenna-
handboltann er að Danmörk vinn-
ur annars lagið gullverðlaun,“
sagði hinn beinskeytti Joachim
Boldsen.
-dsd
Joachim Boldsen ekki að skafa utan af því:
Konur geta ekki
neitt í handbolta
joachimboldsener harðorður í garð kvennahandboltans í Danmörku.
norDic pHotoS/getty
Dregið var í fjórðungsúrslit Meistaradeild-
ar evrópu í handbolta í gær og mætir
danska liðið fc Kaupmannahöfn liði
Magdeburg frá Þýskalandi. Arnór Atlason
leikur með fcK en hann fór þangað frá
Magdeburg í vor.
„Það verður gaman að koma
aftur í höllina í Magdeburg,“ sagði
Arnór en viðurkennir að eiga ekk-
ert sérstaklega góðar minningar
þaðan enda lék hann ekki stórt
hlutverk með liðinu á sínum
tíma þar. leikirnir fara fram í
febrúar en í millitíðinni leikur
hann með íslenska landsliðinu
á HM í handbolta en riðla-
keppni Íslands fer einmitt
fram í Magdeburg.
Aðspurður býst hann ekki við
að fá sér sæti á varamannabekk Magde-
burg, til að rifja upp þá upplifun.
„Ætli það nokkuð. en ég býst við því
að mér verði ágætlega tekið og verður
gaman að mæta þeim á vellinum.“
Hann segir möguleika fcK
þokkalega. „Við höfum unnið
tólf af þrettán leikjum okkar í
deildinni og sjálfstraustið er
því mikið. Þetta var kannski
ekki óskamótherjinn en við
ætlum okkur langt í keppn-
inni og þurfum því að vinna
lið eins og Magdeburg.“
Sjálfum hefur Arnóri
gengið afar vel og er hann
markahæsti leikmaður
dönsku úrvalsdeildarinnar
og ekki útlit fyrir að það
breytist fyrir jólafrí. liðið mætir botnliði
lemvig á sunnudag í síðasta leik fyrir frí og
segir Arnór það gott að fara í þetta langa hlé
á toppi deildarinnar.
„Við höfum þó átt í vandræðum með
meiðsli og keyrt liðið á sömu 7-8 mönnun-
um. ég hef spilað næstum hverja einustu
sekúndu á tímabilinu og er langt síðan ég
hef verið í jafn góðu formi. en þetta var það
sem ég vildi fá að gera, að spila reglulega,
og ég er því ánægður.“
eins og gefur að skilja er danska deildin
ekki jafn sterk og sú þýska en Arnór segir að
hún verði aðeins sterkari á næstu árum.
„Margir danskir handknattleiksmenn eru
að snúa aftur heim og það styrkir deildina,“
sagði Arnór. búast má við að hann gegni
lykilhlutverki með íslenska landsliðinu á HM
í Þýskalandi í næsta mánuði.
Arnór AtlASon: MÆtir SÍnuM göMlu félöguM Í fjórðungSúrSlituM MeiStArADeilDArinnAr
Ætlum okkur langt í Evrópukeppninni
FótboltI Líklegt þykir að Alan
Curbishley verði kynntur til sög-
unnar í dag sem nýr knattspyrnu-
stjóri West Ham í dag. Hann hóf í
gær viðræður við Eggert Magn-
ússon og Björgólf Guðmundsson,
eigendur West Ham, og segir
Curbishley sjálfur að hann hafi
mikinn áhuga á starfinu. Í gær-
kvöldi sagði á fréttasíðu BBC að
Curbishley yrði ráðinn annað-
hvort í dag eða á morgun.
Þeir sem þekkja til Eggerts
kemur það sjálfsagt ekki á óvart
hversu stuttan tíma hann tekur
sér til verksins. Hann er þekktur
fyrir að ganga beint til verks og
klára málin á sem skemmstum
tíma.
„Ég myndi gjarnan vilja heyra
hvað West Ham hefur við mig að
segja,“ sagði Curbishley í gær.
„Auðvitað hef ég áhuga, þetta er
mitt félag.“
Curbishley ólst upp hjá West
Ham og segir í pistli sem hann
skrifaði í Daily Express í gær að
hann hafi lært lexíurnar, bæði
innan vallar sem utan, af sjálfum
Bobby Moore sem er mikil hetja í
augum Englendinga og stuðn-
ingsmanna West Ham.
„Þegar maður elur manninn í
félagi eins og West Ham losnar
maður aldrei við tilfinningarnar
sem maður ber til félagsins.“
Hann sagði að hann hafi hafn-
að boði um að gerast stjóri félags-
ins árið 2001 þegar hann var við
störf hjá Charlton þar sem hann
var í fimmtán ár.
The Sun fer mikinn í umfjöll-
un sinni í málið og segir að Cur-
bishley muni fá 135 milljónir
króna í árslaun. Einnig segir blað-
ið að Slavan Bilic og Guus Hidd-
ink hafi einnig komið til greina
hjá Eggerti og Björgólfi. -esá
Leitin af eftirmanni Alans Pardew hjá West Ham er stutt:
Tekur Alan Curbishley við í dag?
curbishleyAfar virtur knattspyrnu-
stjóri í englandi. norDic pHotoS/getty
>Þórólfurorðaðurviðformannsstólksí
fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að Þórólfur
Árnason væri nú orðaður við framboð til formanns KSÍ
en eggert Magnússon mun láta af því starfi á ársþingi
sambandsins í febrúar næstkomandi. Aðeins geir
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur opinberlega
lýst yfir framboði en aðrir hafa verið orðaðir við
embættið, til að mynda guðni
bergsson, gunnar Sigurðsson
og Viðar Halldórsson.
Þórólfur játaði því hvorki
né neitaði að hann væri að
íhuga framboð.