Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 98
13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR42
Umboðsmaðurinn Páll Eyj-
ólfsson, Palli Papi, hefur
safnað saman athyglisverðri
samsuðu tónlistarmanna úr
öllum áttum, í hljómsveit sem
kallast Phönix og mun leika á
nýja staðnum Domo 22. desem-
ber. „Það vantaði hljómsveit á
staðinn fyrir þetta eina kvöld
þannig að þetta er ekkert endi-
lega band sem er að fara í gang,“
segir Palli en hann hafði sam-
band við Júlíus í Skítamóral,
Vigni Snæ úr Írafári, Benedikt
Brynleifsson, trommara úr 200
þúsund naglbítum og Bo Hall og
Einar Ágúst Víðisson söngvara,
sem hefur snúið lífi sínu til betri
vegar og mun vera hressari en
nokkru sinni.
„Það er ekkert búið að forma
þetta sem hljómsveit heldur er
þetta bara svona „happening“,“
segir Palli. „Þetta er bara eitt
gigg sem þeir ætla að taka og
ekkert meira planað með það,“
bætir hann við.
- sig
Tveimur háskólanemum tókst
ekki að koma í veg fyrir að gam-
anmyndin Borat verður gefin út
DVD-mynddiski á næstunni.
Nemarnir sögðust hafa verið
gabbaðir í að vera með kynþátta-
fordóma og karlrembu í spjalli
við grínistann Sacha Baron Cohen
í hlutverki fréttamannsins Borat.
Sögðust þeir hafa beðið tilfinninga-
legan skaða vegna myndarinnar.
Dómstóll í Los Angeles vísaði
ákærunni á bug og tók hvorki í
mál að fresta útgáfu myndar-
innar né að láta klippa atriðið
með nemunum úr henni.
Halldór Baldursson skopmyndateiknari hélt upp á útgáfu
bókarinnar 2006 í grófum dráttum á Ölstofu Kormáks og
Skjaldar á föstudag. Margt góðra gesta mætti til að fagna
með Halldóri, allt í senn vinir, vandamenn og viðfangsefnin.
Stiklað á stóru í grófum dráttum
Kastljósið á halldóri Skopteiknarinn og Kristján Kristjánsson, áður kenndur við
Kastljós en er nú upplýsingafulltrúi FL-Group. FréttabLaðið/páLL
YrKisefni framtíðarinnar Örn Smári Gíslason hönnuður, Guðmundur Steingríms-
son stjórnmálamaður og alexía björg Jóhannesdóttir leikkona mættu á krána í tilefni
útgáfunnar. Hver veit nema Guðmundur eigi eftir að verða Halldóri innblástur í
framtíðinni.
bóKvitið og asKarnir runólfur
ágústsson, fyrrverandi rektor á bifröst,
og Sigurjón árnason, bankastjóri Lands-
bankans, voru á svæðinu.
þeir Kunna líKa að teiKna Davíð Örn Halldórsson myndlistarmaður og Hugleikur
Dagsson teiknimyndasöguhöfundur létu sig ekki vanta.
jdj Hallgrímur Helgason rithöfundur og Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi
heilsuðu upp á höfundinn.
halldór Halldór ásamt Erni Úlfari
Sævarssyni almannatengli sem hampar
bók þess fyrrnefnda.
maður ársins Geir H. Haarde var útnefndur maður ársins en enginn kom oftar
fyrir í teikningum Halldórs á árinu en hann. Geir mætti að sjálfsögðu til að veita
viðurkenningunni viðtöku.
Borat vann málið
borat Fréttamaðurinn borat hefur
slegið í gegn á þessu ári.
Óskarsverðlaunahafinn Nicolas
Cage ætlar að taka sér hlé frá leik-
listinni til að einbeita sér að öðrum
áhugamálum á borð við sjálfstæða
kvikmyndagerð.
„Mér finnst ég hafa leikið í
mörgum kvikmyndum og núna vil
ég skoða önnur verkefni, hvort
sem það er að semja eða gera eitt-
hvað annað.
Cage var nýverið verðlaunaður
fyrir kvikmyndaferil sinn á hinni
árlegu kvikmyndahátíð í Nassau.
Sir Sean Connery afhenti honum
verðlaunin. „Nic er algjör fagmað-
ur og hefur hluti fram að færa
sem gera það að verkum að það er
mjög gaman að vinna með honum,“
sagði Connery.
Á meðal nýjustu mynda Cage
eru World Trade Centre og The
Wicker Man. Átta kvikmyndir sem
Cage leikur í koma út á næstu
tveimur árum.
Vill prófa aðra hluti
nicolas cage Óskarsverðlaunahafinn
ætlar að taka sér hlé frá kvikmyndaleik.
Adrianne Curry, fyrsti vinnings-
hafinn úr þáttaröðinni America´s
Next Top Model, er íðilfögur en
greinilega ekki alveg fullkomin.
Fyrirsætan greindi nýlega frá því
að hún hefði farið í brjóstastækk-
unaraðgerð. Það var þó ekki hefð-
bundin aðgerð, því fyrirsætan
segist hafa þurft að jafna stærð
brjósta sinna. Hún hafi alltaf verið
með misstór brjóst, annað heilum
tveimur skálastærðum minna en
hitt, og viljað samræma stærðina.
Curry gekkst undir aðgerðina
fyrir þremur vikum, og segir
læknana hafa þurft að gera nokkrar
tilraunir til að ná réttri stærð.
Lét lagfæra
brjóstin
ófullKomin fYrirsæta Fyrsti sigur-
vegarinn í america‘s Next top Model
segir brjóst sín hafa verið áberandi
misstór og lét lagfæra þau á dögunum.
Deilur kryddpíunnar fyrrverandi
Mel B og leikarans Eddies Murphy
eru það sjóðheitar í Hollywood um
þessar mundir að aðrar deilur
hafa kviknað í kjölfarið. Mel B var
stödd á veitingastað síðastliðinn
föstudag, en þar svifu á hana tveir
papparassa-ljósmyndarar, sem á
endanum fóru að deila um hvor
þeirra ætti rétt á umræddu svæði.
„Þú ert í mínu hverfi núna,“ sagði
annar ljósmyndaranna áður en
hann réðst á hinn og átti Mel fótum
fjör að launa, en hún var snögg að
koma sér í bíl
sinn og bruna af
stað. En Mel B
á von á barni
með Eddie
Murphy sem
kveðst ekki eiga
barnið og vill að
Mel fari í DNA-
próf.
Papparassar
lentu í slag
mel b á ekki sjö
dagana sæla um
þessar mundir.
Geri Halliwell segist ekkert þurfa
á karlmanni í sitt líf, hún eigi
yndislegt barn
og frábæra vini.
Söngkonan upp-
lýsir þetta í við-
tali við glans-
tímaritið OK.
Halliwell
hefur lítið látið
fyrir sér fara
eftir að hún
eignaðist dóttur
sína Bluebell í
maí og leggur
ríka áherslu á
það í viðtalinu
að hún hafi alls
engan áhuga á
að ganga í það
heilaga. Söng-
konan segist
jafnframt ekki vera í neinum sam-
skiptum við barnsfðður sinn,
breska handritshöfundinn Sacha
Gervasi og telur að hjónabandið
sem stofnun hafi beðið álitshnekki.
„Ég meina, af hverju eru svona
margir að skilja?,“ sagði Halliwell.
Geri loksins
hamingjusöm
hamingjusöm
Geri Halliwell talaði
opinskátt í viðtali
við bandaríska
tímaritið OK.
Einar Ágúst aftur
á svið á næstunni
eldhress Söngvarinn Einar ágúst
Víðisson verður í aðalhlutverki á
Domo 22. desember.
flott band
Vignir Snær
mun leika
á gítarinn
með þessari
áhugaverðu
hljómsveit
en ekki hefur
verið ákveðið
hvort um
framhald verð-
ur að ræða.