Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 44
MARKAÐURINN 13. desember 2006 miðvikudagur6
ú t l ö n d
Bandaríski bílaframleiðandinn
General Motors hefur ákveðið
að draga úr framleiðslu á stærri
gerðum sportjeppa af gerðinni
Chevrolet og GMC. Ákvörðunin
var tekin vegna mun minni sölu
á bílum af þessari gerð en áætl-
anir gerðu ráð fyrir, aukinnar
samkeppni frá Japan og hærra
eldsneytisverðs.
Stjórnendur bílaframleiðand-
ans segja eftirspurn eftir sport-
jeppunum stöðuga en komið
verði í veg fyrir að birgðir af
bílunum aukist mikið með því að
draga úr framleiðslu á þeim.
Ekki liggur fyrir hvort til
u p p -
sagna komi vegna þessa hjá
General Motors, en minni sala á
bílunum hefur haft þær afleið-
ingar í för með sér að neikvæð
afkoma fyrirtækisins hefur
aukist ár frá ári.
Sportjeppar GM hafa sætt
harðri gagnrýni frá hendi
umhverfisverndarsinna allt frá
því þeir komu fyrst á markað en
þeir þykja miklir bensínsvelgir.
Í kjölfar mikilla hækkana á
eldsneytisverði á seinni hluta
ársins dróst sala á jeppunum
talsvert saman. GM er ekki eitt
um samdráttinn því svipaða
sögu er að segja af jeppasölu
hjá Ford. Á fyrstu tíu mánuð-
um ársins hefur salan dregist
saman um 5,5 prósent. Hún
hríðféll hins vegar í nóvember
þegar salan dróst saman um
rúm 15 prósent á milli
mánaða. - jab
chevrolet sub-
urban frá gm Sala á
sportjeppum hefur verið
mun minni en áætlan-
ir gerðu ráð fyrir, meðal
annars vegna hækkunar á
eldsneytisverði.
Markaðurinn/GettyiMaGeS
GM dregur úr framleiðslu jeppa
Bandaríski tölvuframleiðandinn
Hewlett-Packard hefur samþykkt
að greiða 14,5 milljónir banda-
ríkjadala eða einn milljarð króna,
í sáttagreiðslu til að ljúka mál-
sókn á hendur æðstu stjórnend-
um fyrirtæksins. Stjórnendurnir
voru sakaðir um að láta njósna
um aðra stjórnarmenn og starfs-
menn HP. Patricia Dunn, stjórn-
arformaður HP, neyddist til að
segja af sér vegna málsins.
Æðstu stjórnendur HP eru
sakaðir um að hafa beitt vafa-
sömum aðferðum til að komast
fyrir leka af stjórnarfundum fyr-
irtækisins. Patricia Dunn, stjórn-
arformaður HP, var meðal annars
sökuð um að hafa látið njósna um
aðra stjórnarmenn, látið hlera
síma þeirra og skoða tölvuskeyti
starfsmanna. Hún sagði af sér
eftir að málið komst í hámæli í
september.
Rannsóknin leiddi í ljós að
einn stjórnarmanna lak fréttum
af stjórnarfundum til fjölmiðla.
Hann neitaði að segja af sér en
hefur gefið kost á sér í stjórnina
á nýjan leik.
Í bandarískum fjölmiðlum í
lok síðustu viku segir að dóms-
yfirvöld vestanhafs muni ekki
leggja fram ákæru á hendur
núverandi og fyrrverandi stjórn-
endum fyrirtækisins vegna máls-
ins en fyrirtækið mun áfram
verða undir smásjá bandarískra
dómsyfirvalda. - jab
Patricia dunn á leið í réttarsal
innanhússrannsókn bandaríska tölvufram-
leiðandans HP leiddi til þess að stjórnarfor-
maður fyrirtækisins varð að segja af sér.
Markaðurinn/aFP
Sátt í vafasamri
rannsókn HP
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Flugfélög í Bandaríkjunum búast við hörðum slag
verði eignir seldar undan bandaríska flugfélaginu
Delta.
Delta hefur átt við mikla rekstrarörðugleika að
stríða og fóru stjórnendur félagsins fram á greiðslu-
stöðvun á síðasta ári. Fyrir um mánuði síðan gerði
bandaríska flugfélagið US Airways 8 milljarða dala
óvinveitt yfirtökutilboð í Delta en það svarar til um
566,8 milljarða íslenskra króna. Verði af samruna
verður til eitt stærsta flugfélag í heimi.
US Airways er sjöunda stærsta flugfélag
Bandaríkjanna en hjá því starfa 35.000 manns.
Delta er hins vegar þriðja stærsta flugfélag lands-
ins með 47.000 starfsmenn.
Í kjölfar þess að yfirtökutilboðið var lagt fram í
nóvember greindi Gerald Grinstein, forstjóri Delta,
og aðrir stjórnendur flugfélagsins, frá því að þeir
ynnu að því hörðum höndum að koma í veg fyrir að
hluthafar Delta taki tilboði US Airways. Þá segjast
þeir enn fremur vera að vinna að því eftir fremsta
megni að vinna stuðning lánadrottna, því þörf væri
á stífri hagræðingu í rekstri flugfélagsins til að
forða því frá gjaldþroti.
Hvað sem verður er reiknað með að eignir flug-
félagsins verði seldar frá því í hagræðingarskyni á
helstu flugvöllum vestanhafs fyrir allt að 8,6 millj-
arða bandaríkjadali eða um 600 milljarða íslenskra
króna.
Paul Tate, fjármálastjóri bandaríska lággjalda-
flugfélagsins Frontier, segir harða baráttu um
eignirnar fram undan.
Tate segir Frontier ætla að fylgjast grannt með
þróun mála og séu líkur á að félagið festi sér ein-
hverjar eignir, sér í lagi þær sem verði seldar á
vesturströnd Bandaríkjanna.
„Ef einhverjar eignanna höfða til okkar þá
munum við kanna málið. En við vitum að önnur
flugfélög horfa á sömu eignir,“ sagði Tate og lagði
áherslu á að hart yrði barist um eignir Delta.
ein af vélum delta Stjórn bandaríska flugfélagsins Delta íhugar
að selja hluta af eignum félagsins til að forða því frá gjaldþroti.
Önnur flugfélög hafa hug á eignunum. Markaðurinn/aFP
Búist við hörðum
slag um Delta
Bandaríska flugfélagið Delta hyggst selja eignir til að kom-
ast hjá gjaldþroti og forðast yfirtöku.
Slagurinn um bresk-hollenska
stálfyrirtækið Corus harðnaði
þegar brasilíski stálframleiðand-
inn CSN gerði yfirtökutilboð í
fyrirtækið aðfaranótt mánudags.
Tilboðið hljóðar upp á 4,9 millj-
arða punda eða um 667 milljarða
íslenskra króna.
Verði af kaupum CSN á Corus
verður til fimmti stærsti stál-
framleiðandi í heimi með 24
milljóna tonna framleiðslugetu
á ári.
Tilboðið kom nokkuð á óvart
enda hafði indverski stálfram-
leiðandinn Tata Steel, sem fram
til þessa hefur verið orðaður við
Corus, fengið samþykki stjórnar
Corus fyrir yfirtökutilboðinu í
félagið nokkrum klukkustundum
fyrr.
Síðasta tilboð Tata Steel hljóð-
aði upp á 500 pens fyrir hvern
hlut í Corus eða jafnvirði 640
milljarða íslenskra króna. Tilboð
CSN var hins vegar 15 pensum
hærra og hefur verið haft eftir
talsmanni fyrirtækisins að stjórn
Corus hefði mælt með því við
hluthafa stálframleiðandans að
þeir tækju tilboðinu.
Kapphlaupið um Corus hefur
keyrt verðið upp á bresk-hol-
lenska stálframleiðandanum en
gengið hækkaði um 5,5 prósent á
markaði í dag. Gengið stendur nú í
527,75 pundum á hlut sem er 12,75
pensum yfir tilboði CSN. - jab
ein af verksmiðjum corus tveir
stálframleiðendur hafa keppst um að gera
yfirtökutilboð í bresk-hollenska stálfyrirtæk-
ið Corus. Markaðurinn/aFP
Brasilíumenn að kaupa Corus?
Frederick Smith, forstjóri
bandarísku póstflutningaþjón-
ustunnar FedEx, sagði í sam-
tali við franska viðskiptablaðið
Les Echos í byrjun vikunnar, að
fyrirtækið hefði enn hug á að
kaupa A380 fraktflugvélar frá
evrópsku flugvélaverksmiðjun-
um Airbus.
Smith greindi ekki
nákvæmlega frá því
hversu margar vélar fyrirtækið
myndi kaupa.
FedEx afpantaði nýverið tíu
fragtflugvélar af sömu gerð frá
Airbus og sagði Smith, að það
hefði verið gert til að létta undir
með EADS, móðurfélagi Airbus,
sem greint hefur frá töfum á
afhendingu vélanna. - jab
a380 þota
frá airbus
Póstflutningafyrirtækið
hefur hug á að
kaupa þotur frá
airbus þótt það
hefði afpantað 19
þotur fyrir skömmu.
Airbus fyrir FedEx
Japanski bílaframleiðandinn
Nissan Motors svipti hulunni af
umhverfisvænum bíl sem gengur
fyrir etanólblöndu á bílasýningu í
Los Angeles í Bandaríkjunum um
síðustu helgi. Framleiðsla hefst á
næsta ári. Bíllinn er liður í bættri
umhverfisstefnu fyrirtækisins
en vél hans byggist á tækni frá
Toyota, einum helsta keppinauti
Nissan í Japan.
Nissan kynnti sömuleiðis í vik-
unni nýja áætlun til næstu fjög-
urra ára sem draga á úr útblæstri
bíla. Eftir 2010 vonast fyrirtæk-
ið til að kynna til sögunnar raf-
magnsbíl, en hann yrði sá fyrsti
sinnar tegundar í Japan.
Nissan hefur hafið samstarf
við franska bílaframleiðandann
Renault um smíði á tveggja lítra
bíl, sem líta mun dagsins ljós á
fyrri helmingi næsta ári. Nissan
stóð framarlega á tæknisviðinu í
japanska bílaiðnaðinum á árum
áður. Með bættri umhverfisstefnu
og markmiðum til næstu ára sem
stuðla eiga að minni útblæstri
stefnir fyrirtækið að því að verða
leiðandi á sviði umhverfisvænna
og sparneytinna bíla á heimsvísu.
Sérstaklega er horft til banda-
ríska markaðarins en ökutækja-
eigendur þar í landi hafa marg-
ir snúið baki við bandarískum
bensínsvelgjum í kjölfar snarpra
hækkana á eldsneyti á þessu ári
og horfa til sparneytinna jap-
anskra bíla. - jab
varaforstjóri nissan við bílinn
nissan ætlar að setja umhverfisvænan bíl á
markað á næsta ári. Markaðurinn/aFP
Nissan framleiðir umhverfisvæna bíla