Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 61
13■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { blessuð jólin } ■■■■
sinn og snjórinn eru eitt af því sem
skapa góða jólastemningu og því
er um að gera að nota ísinn sem
mest í skreytingar.
Til að gera ísskreytingu eins
og er hér á myndunum er eftirfar-
andi aðferð beitt. Hráefnið er sett
í einingar, litlar dollur eða stærri
form. Hægt er að frysta ber, grein-
ar, greni eða hvað sem fólki dettur
í hug. Sjóðið vatn og látið kólna.
Hellið vatninu yfir hráefnið í doll-
unum og stingið svo í frystinn.
Vatnið er soðið til að klak-
inn verði tær í gegn og til að ná
skreytingunni í miðju klakans er
best að lagfrysta. Frystið fyrst í
botni formsins. Leggið svo gren-
ið eða berin ofan á frysta lagið,
bætið við meira vatni og frystið á
ný. Þriðja laginu er svo bætt við
þegar seinna lagið er tilbúið. Þegar
skreytingin er orðin gegnfrosin má
gefa hugarfluginu lausan tauminn.
Hægt er að fylla fötu af klökum
og leggja frystu einingarnar ofan
á, setja í fallegar skálar eða bera
fram með eftirrétti. Fljótandi kerti
fara líka vel með ísskreytingu til að
gefa hlýju á móti kulda. Á mynd-
inni eru kertin fryst í klaka og
sellerí þannig að selleríið umvefur
kertið. Skreytta ísfatan nýtist sem
hlýlegur kælir fyrir vínflöskur eða
kampavín og er líka augnakonfekt
ein og sér yfir hátíðarnar. - jóa
Ljómar nú ís og hjarn
Oft þarf ekki meira en snjó og ís til að koma hátíðarskapinu af stað.
Með því að nota fljótandi kerti má ná fallegum glampa á ísinn.
Falleg ísskreyting kemur gestum og gang-
andi í hátíðarskap. fréttablaðið/stefán
Að bræða gott
súkkulaði vel
Þegar súkkulaði er brætt er
best að gera það við mjög
lágan hita. Ef hitinn er of mik-
ill getur súkkulaðið brunnið
við eða hlaupið í kekki. Um leið
og súkkulaðið fer að bráðna er
gott að hræra aðeins í því.
Gott er að bræða súkkulaðið
yfir vatnsbaði. Þá er vatn hitað
í potti og hitanum haldið og
súkkulaðið sett í skál sem hvíl-
ir á pottbörmunum. Fylgjast
þarf vel með því að ekki kom-
ist vatn eða gufa í súkkulaðið
því þá þéttist það og hleypur í
grófa kekki. Þó er möguleiki á
að laga slíkt með því að bæta
grænmetisolíu út í, aðeins einni
teskeið í einu þar til súkkulaðið
verður slétt aftur.
Góða súkkulaðibráð. - jóa ÁSKRIFTARSÍMI 550 5060 | WWW.VISIR.IS
100 HUGMYNDIR FYRIR JÓLABÖRNIN
LAGT Á HÁTÍÐARBORÐIÐ
ÆVINTÝRIÐ Í ENGLABORG
JÓLABLAÐIÐ KOMIÐ ÚT!
MÁLUM BÆINN RAUÐAN
Bakstur
Þegar pipar-
kökur bakast…
Margir spyrja sig hvað eigi að
gefa þeim sem eiga allt. Ein
lausn á þeim vanda er að gefa
persónulegar gjafir, eitthvað
sem fæst ekki úti í búð. Tilvalið
er fyrir fjölskyldufólk að baka
saman piparkökur og skreyta
þær. Hægt er að búa til ömmu
og afa, og reyna að líkja eftir
fötunum þeirra með skreyt-
ingum. Jafnvel er mögulegt
að útbúa heilu fjölskylduna af
piparkökukörlum og -kerling-
um og bæta við gæludýrum
og mörgu öðru skemmtilegu.
Öllum herlegheitunum er svo
pakkað fallega ásamt skemmti-
legu korti og viðtakandinn
getur ekki annað en glaðst yfir
þessari stórskemmtilegu gjöf.