Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 16
16 13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR
EfnAhAGsMál Verðbólgan mælist
sjö prósent nú í desember, sam-
kvæmt mælingu Hagstofunnar á
vísitölu neysluverðs. Verðbólgan
var 7,3 prósent á ársgrundvelli í
nóvember. Hún sígur því hægt og
rólega niður á við. Verðbólga án
húsnæðisliðar helst óbreytt frá
því í nóvember.
Guðrún Ragnheiður Jónsdóttir,
sérfræðingur á vísitöludeild Hag-
stofunnar, segir að litlar breyting-
ar eigi sér stað á vísitölunni þessa
dagana og ekki mikið sem hafi
áhrif á hana. Verðbólgan hafi
breyst mikið frá mars til júní á
þessu ári þegar gengið hafi lækk-
að mikið, verð hækkað verulega
en á þessum tíma hafi húsnæðis-
verð ekki verið byrjað að hjaðna.
Verðbólgan fari líklega ekki að
hjaðna verulega fyrr en um mitt
næsta ár.
„Verðbólguhjöðnunin kemur
ekki svo mikið fram fyrr en við
losnum við stóru mælingarnar.
Hjöðnun verðbólgunnar verður
líklega mjög hröð næsta vor þegar
háu mælingarnar detta út og svo
má búast við að verðlagsáhrif af
aðgerðum ríkisstjórnarinnar komi
til viðbótar eftir 1. mars. Verð-
bólgan ætti því að vera komin
niður í verðbólgumarkmiðið næsta
vor eða haust,“ segir hún.
Vísitala neysluverðs mældist
266,2 stig í desember og hafði
hækkað um 0,04 prósent frá því í
nóvember. Vísitala neysluverðs án
húsnæðis er óbreytt 245 stig. Verð
á bensíni og dísil hefur mest áhrif
á vísitöluna.
Henný Hinz, hagfræðingur hjá
ASÍ, segir að búist hafi verið við
örlítið meiri vísitöluhækkun, sér-
staklega að matur og drykkjarvör-
ur myndu hækka í verði en það
hafi ekki gengið eftir. „Þetta þýðir
bara að það er minni verðbólga og
í fyrsta skipti í langan tíma helst
húsnæðisliður vísitölunnar
óbreyttur,“ segir Henný.
Gjaldskrárhækkanir koma til
framkvæmda um áramótin, til
dæmis hjá tryggingafélögum og
sveitarfélögum. Henný segir að
útsölur í janúar og febrúar geti
hins vegar vegið á móti.
Sigurður Jóhannesson, hag-
fræðingur við Háskóla Íslands,
segir að skattalækkanir ríkis-
stjórnarinnar, lítið atvinnuleysi og
þær framkvæmdir sem eru í gangi
auki almennt líkurnar á hækkun
stýrivaxta hjá Seðlabankanum 21.
desember. „Það er ennþá mikið líf
á vinnumarkaðnum og maður sér
ekki að þetta háa vaxtastig sé farið
að bíta mikið,“ segir hann.
ghs@frettabladid.is
Konungur Kveður Syed Sirajuddin
Syed Putra Majalullail hefur verið
konungur Malasíu í fimm ár en kvaddi
konungstignina í gær því þar í landi er
skipt um konung á fimm ára fresti.
fréttablaðið/aP
Sept.
2005
Jan.Des.
2006
Mars Maí Júlí Sept. Nóv. Des.
4,8%
4,2% 4,1%
7,6%
8,4%
8,6%
7,2%
7,0%
verðbólgan
samkvæmt vísitölu neysluverðs
september 2005 til desember 2006
Verðbólguhjöðnun í vor
Verðbólgan er sjö prósent og hefur lækkað örlítið milli mánaða. Sérfræðingur hjá Hagstofunni segir hjöðn-
unina verða næsta vor. Hagfræðingur við HÍ telur talsverðar líkur á hækkun stýrivaxta 21. desember.
seðlabanKinn Sigurður Jóhann-
esson, hagfræðingur við Háskóla
Íslands, segir skattalækkanir, lítið
atvinnuleysi og framkvæmdir auka
líkurnar á því að Seðlabankinn
hækki stýrivexti 21. desember.
sKÓlAMál Tæplega 1.700 fermetra
viðbygging hefur verið tekin í
notkun við Laugarnesskóla. Við
vígslu viðbyggingarinnar flutti
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri ávarp og nemendur
skólans sungu og fluttu frumsam-
in ljóð.
Fyrsta skóflustungan að
viðbyggingunni var tekin í
desember 2004 en hún tengist
gamla skólahúsinu með glergangi
og var leitast við að nota sömu
byggingarefni til að halda
heildarsvip skólans. Í viðbygging-
unni er fjölnota salur, kennslu-
stofa fyrir tónlist, verk- og
listgreinar ásamt kennslurými
fyrir yngstu börnin. - hs
Laugarnesskóli:
Viðbygging
tekin í notkun
viðbygging við laugarnessKóla
tæplega 1.700 fermetra viðbygging
hefur verið tekin í notkun.
sAMsTARfssAMnInGUR Eimskipa
félag Íslands og Skógræktarfélag
Íslands hafa undirritað samstarfs
samning sem felur í sér frekari
uppbyggingu og bætta aðstöðu
fyrir gesti sem koma í Brynjudal
í Hvalfirði. Samningurinn gildir
til þriggja ára og við undirritun
hans um síðustu helgi var glatt á
hjalla og jólasveinar skemmtu
yngstu kynslóðinni.
Skógræktarfélag Íslands
ræktar jólatré í Brynjudal og við
undirritun samningsins heimsóttu
á þriðja hundrað starfsmenn
Eimskips Brynjudal og völdu sitt
eigið jólatré. - hs
Samstarfssamningur:
Uppbygging
í Brynjudal
ÞRÓUnARAÐsTOÐ Þróunarsamvinnu-
stofnun Íslands hefur hafið
þriggja ára átaksverkefni í
fræðslumálum fyrir frumkvöðla í
Úganda en um er að ræða fyrsta
verkefni ÞSSÍ sem lýtur að stuðn-
ingi við einkageirann. Heildar-
kostnaður verkefnisins er metinn
á 40 milljónir íslenskra króna, þar
af er hlutur Þróunarsamvinnu-
stofnunar um 30 milljónir króna.
Að sögn Ágústu Gísladóttur,
umdæmisstjóra ÞSSÍ í Úganda, er
helsta markmið verkefnisins að
bæta aðgengi frumkvöðla að
gæðaþjálfun, einkum þeirra sem
áforma að reka lítil eða meðalstór
fyrirtæki. Ágústa segir að þjálf-
unin feli meðal annars í sér að
frumkvöðlarnir tileinki sér við-
eigandi viðskiptafærni sem geri
þeim kleift að nýta sér fyrirliggj-
andi upplýsingar og þjónustu,
bæði fjárhagslegar og tæknilegar.
„Prófun á námsefninu var gerð
fyrir nokkru með þátttöku 18
úgandískra frumkvöðla sem báru
því vel söguna.“ ÞSSÍ hefur skrif-
að undir samning við fjármála-
ráðuneyti Úganda en helstu sam-
stafsaðilar verkefnisins eru
Fjárfestingarstofa Úganda, Háskól-
inn í Reykjavík, Makarere
viðskiptaháskólinn, Fræðslusetur
iðnaðarins og Samtök úgandskra
frumkvöðlakvenna. - hs
Þróunarsamvinnustofnun styrkir frumkvöðla í Úganda um þrjátíu milljónir:
Þjálfa frumkvöðla í Úganda í Afríku
fyrsti útsKriftarhópurinn Markmið verkefnisins er að bæta aðgengi frumkvöðla
að gæðaþjálfun, einkum þeirra sem áforma að reka lítil eða meðalstór fyrirtæki.
fRAKKlAnD, AP Leiðtogi stjórnar-
andstöðu Hvíta-Rússlands,
Alexander Milinkevits, tók í gær
við mannréttindaverðlaunum
Evrópusambandsins við
hátíðlega athöfn í Frakklandi.
Hlaut hann heiðurinn vegna
baráttu sinnar fyrir lýðræði í
heimalandi sínu.
Milinkevits tapaði forseta-
kosningum í mars, en hann hafði
boðið sig fram gegn Alexander
Lukasjenkó, forseta.
Verðlaunin eru nefnd eftir
Andrei Sakharov, einum
frægasta andófsmanni Sovét-
ríkjanna, og eru afhent einu
sinni á ári til einstaklinga eða
samtaka sem talin eru hafa
unnið ötullega að mannréttind-
um, alþjóðlegu samstarfi eða
lýðræði og laganna rétti.
- smk
Mannréttindaverðlaun ESB:
Hvít-Rússi
heiðraður
alexander MilinKevich Hlaut mannréttindaverðlaun ESb í gær. fréttablaðið/aP