Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 90
13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR
Ég get svo svarið það! Það er hreinlega
verið að reyna að krossfesta mann!
Þetta kemur allt í einu hita-, vatns- og
holræsagjöld. Vélarolían! Af verðinu að
dæma mætti halda að þetta væri allt
kreist aftur úr risaeðlurassi!
Og hér er líka árgjaldið
fyrir “Juicy Melons”
auðvitað allt á sama
tíma!
Heimurinn er á
hælunum á mér.
Heldur þetta lið að ég
eigi bara endalaust af
peningum!
Góðan dag, mig
vantar aðstoð með
eitt ljósið hjá mér.
Og svo vogar
fólk sér!
Hvað ertu
að brasa!
Uss! ég er að fylla
út svona 5 mínútna
greindarpróf á
netinu!
Og ég er ...
Búinn!
Svo hinkrum við aðeins
á meðan tölvan metur
framistöðuna!
Útkoman er!
Greinda-
vísitala:
38
Hah! er þetta
greindavísitalan þín
eða líkamshitinn?
Raggi á
Grensásvídeói
mælti með þessari
hryllingsmynd!
Líffræði-
tíminn
Mig langar í
pistasíuhnetur!
Hvernig var í
leikskólanum í dag?
Fínt
Hvað lærðir
þú?
Fullt!
Besti vinur minn hann Huginn
segir að nýi Batman geti flogið
og að Jackie Chan geti stokkið
yfir bíla.
En hvað sögðu
leikskóla-
kennararnir?
Það man
ég ekki.
Það gerast stórundar-
legir hlutir í Reykjavík
þegar veturinn færist
yfir. Þá er ég ekki að
meina þegar fyrstu
snjókornin falla,
eða þegar laufin
fjúka af trjánum, held-
ur gerist eitthvað alveg stór-
merkilegt þegar hálkan kemur. Við
vitum öll af því að von er á hálku og
eigum þess vegna að vera tilbúin,
en samt sem áður tekst okkur að
sofna á verðinum á hverju einasta
hausti og síðan verður allt brjálað.
Þetta gerist ekki á landsbyggðinni,
held ég. Þar eru menn löngu búnir
að útbúa sig í tæka tíð. En þegar
hálkan kemur í Reykjavík eru fæst-
ir á nagladekkjum, bílar hendast út
um allt og er það bara hipsumhaps
hvenær bremsan virkar og hvenær
ekki. Pitsustaðir hætta gjarnan að
senda út pitsur því enginn sendill
er nógu hugaður til þess að ferðast
með pitsu á ónegldum dekkjum.
Fólk dettur svo mikið á rassinn í
kringum mann að það hættir að
vera fyndið. Fullorðnir menn taka
upp á því að negla eigin skó meira
að segja, kaupa sér mannbrodda,
sem oftar en ekki enda í eigin sköfl-
ungi. Það verður líka ákveðið siðrof
hjá Reykvíkingum, allt í einu
hverfa flestar umferðarreglur út í
veður og vind, fólk keyrir yfir
hringtorg, keyrir utan vegar, keyr-
ir á, en langflestir keyra bara ekki
neitt. Það óttast margir veturinn.
Ég til dæmis eyði yfirleitt öllu
sumrinu í að kvíða vetrinum, eins
ömurlega og það kann að hljóma.
Maður á ekki að óttast veturinn.
Snjórinn lýsir upp dimmasta
skammdegið og börnum þykir
alveg stórkostlegt að fá að leika sér
í hjarninu. Það er hálkan sem maður
á að óttast. Börnum finnst ekkert
gaman að leika sér í hálku og við
hin óttumst ekkert frekar en að
renna á ennið. Hálkan er það versta
við vetrartímann. Það eina sem
dugir gegn hálkunni er salt. Margir
spyrja sig að því hvort það sé virki-
lega ekki til betri lausn á jafn
tæknivæddum tímum, en nei, það
eru bara svona húsráð sem virka
gegn óvættum eins og hálkunni.
Svipað eins og hvítlaukur er það
eina sem dugar gegn vampírum.
Stuð milli Stríða: Saltið hálkuna
DóRI DNA segir að hálkan sé það versta við veturinn