Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 33
MIÐVIKUDAGUR 13. desember 2006 5
Jólatré úr plexigleri vekja at-
hygli í verslunum Epal, bæði í
Skeifunni og Leifsstöð. Þau eru
eftir myndlistarmanninn Elínu
Hansdóttur.
„Trén voru upphaflega byggð á
verkinu MONEYTREE, sem ég
sýndi í Listasafni Árnesinga árið
2004. Það tré var útbúið raufum
sem hægt var að stinga peninga-
seðlum í. Ég lagði til nokkra seðla
í upphafi sýningarinnar en svo
var gestum í sjálfsvald sett hvort
þeir vildu bæta við blóma trjánna
eða tína af þeim.“ Þannig lýsir
Elín tilurð hinna nýstárlegu
plexiglertrjáa og hún hefur meiri
sögu að segja. „Haustið 2005,
þegar ég dvaldi í Kína í mánuð,
lét ég búa til fyrir mig plexiglert-
ré fyrir sýningu sem ég var að
taka þátt í í New York og alls
voru framleidd fyrir mig tólf
tré.“
Trén hennar Elínar eru um 1.20
m á hæð og 1 m í þvermál. Þau
eru búin til úr litlum akrílplast-
trjám sem Elín segir fást í veislu-
búðum í New York. „Slík tré eru
sett á veisluborð í brúðkaupum
og eiga að safna aur fyrir brúð-
hjónin,“ útskýrir hún.
Elín bendir á að trén standi á
mörkum hönnunar og myndlist-
ar. „Þetta er verk sem getur að
sjálfsögðu verið uppi allt árið, en
er líka skemmtileg tilbreyting í
stað jólatrés yfir hátíðarnar.
Trén má skreyta með ýmsu móti
hvort heldur sem er með nýmóð-
ins skrauti úr svörtum palíettum
og fjöðrum eða gamaldags jóla-
pokum, allt eftir smekk hvers og
eins.
Svo er einfalt að taka það í
sundur og það tekur ekki mikið
pláss í geymslu. Það er hins
vegar takmarkað upplag af þeim
og fleiri verða ekki framleidd.“
- gun
Nýstárleg plexígler-jólatré
Plexiglertréð má skreyta með ýmsum
hætti. Hér er það með rauðum jóla-
pökkum í húsnæði Epal í Skeifunni.
Fréttablaðið/anton
Uppskrift dagsins
Þegar tíminn er naumur til
baksturs getur verið bráðgóð
lausn að baka rúllutertur því
það er svo fljótlegt. Gaman er
að eiga bæði brúna og hvíta.
Draumterta
3 egg
1,5 dl sykur
50 g kartöflumjöl
1,5 tsk. lyftiduft
2 msk. kakó
Egg og sykur eru þeytt vel.
Þurrefnunum blandað saman
og bætt varlega út í. Bökunar-
pappír er breiddur á plötu og
deigið breitt út á hann. Sett inn
í 180 gráðu heitan ofn og bakað
í um 10 mínútur. Hvolft á hreint
viskastykki og látið kólna. Á
meðan er búið til smjörkrem
sem síðan er breitt ofan á
kökuna og henni er rúllað upp.
Smjörkrem
100 g smjör
4 dl flórsykur
2 msk. soðið vatn
1 tsk. vanilla
Hvít rúlluterta
3 egg
125 g sykur
50 g hveiti
50 g kartöflumjöl
1 tsk. lyftiduft
1 msk vatn
Aðferðin er sú sama og við
draumtertuna en út í kremið er
sett 1,5 msk. kakó.
Rúllutertur
Draumaterta, bragðgóð og auðveld.
Hvít rúlluterta, skemmtilegt mótvægi
við þá brúnu.
Stórhöfða 25 • 110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is
Góðan dag!
Við gerum okkur grein fyrir því að góður svefn er ein mikilvægasta for-
senda vellíðunar og góðrar heilsu. Þess vegna höfum við nú ákveðið að
bjóða til sölu Winx 300 heilsurúm frá Lattoflex í Þýskalandi. Lattoflex
hefur verið í fararbroddi í þróun heilsurúma í hálfa öld og eiga Winx 300
rúmin sér enga hliðstæðu.
Winx 300 heilsurúmin sóma sér vel í
fallegum og vönduðum svefnherbergis-
húsgögnum frá Zack.
• Þau bæta blóðflæði með vöðva-
slakandi örhreyfingum. Winx virkjar
eðlilegar hreyfingar í svefni og skilar
hreyfiorkunni mjúklega til líkamans
ólíkt mörgum öðrum rúmum sem draga
í sig orkuna.
• Axla- og mjaðmasvæði eru mýkri til
að halda bakinu beinu og losa spennu.
Þrískipt fjöðrunarkerfi stuðlar að endur-
nærandi svefni. Að auki veitir næmni
sérhannaðra vængja líkamanum breyti-
legan stuðning óháð þyngd.
• Álagspunktar eru hverfandi vegna
vængjanna sem Lattoflex hefur þróað
ásamt Evo dýnunum sem eru hannaðar
með tilliti til lögunar líkamans.
• Rúmin eru að auki stillanleg undir
baki og öxlum eftir breytilegum þörfum
hvers og eins, og þau fást einnig með
slakandi nuddkerfi.
Winx heilsurúmin uppfylla fjögur skilyrði sem eru forsenda rétts stuðnings við bak og þess að vakna endurnærð og úthvíld að morgni:
Fjárfestu í betri líðan!
Skoðaðu vefsetur okkar www.eirberg.is til að fá nánari upplýsingar um Winx 300 heilsurúmin
eða komdu í verslun Eirbergs að Stórhöfða 25 (gulu húsin). Í desember er verslunin opin
á laugardögum kl. 11:00 - 16:00 og á virkum dögum kl. 9:00 - 18:00.
Unicef
Prýtt liStavErkum Frá yFir 200
þjóðlönDum.
jólakort barna-
hjálpar Sameinuðu
þjóðanna, uniCEF,
eru komin í verslanir.
kortin fást í öllum
betri bókabúðum
landsins og á skrif-
stofu uniCEF á Íslandi að laugavegi
42. uniCEF kortin eru prýdd listaverk-
um og eru frá yfir 200 þjóðlöndum.
Hægt er að kaupa dagbækur, kerti,
leikföng og margt fleira á skrifstofu
uniCEF. margar gjafavaranna eru
búnar til í þróunarlöndunum og
þannig er stutt við atvinnusköpun og
framleiðslu. allur ágóðinn af sölunni
rennur til verkefna uniCEF.
jólakort }
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI