Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 39
Nýtt met | Viðskiptahalli hefur
aldrei verið meiri á einum árs-
fjórðungi en hann reyndist tæp-
lega 81 milljarður króna á þeim
þriðja. Viðskiptahalli ársins er því
orðinn 205 milljarðar króna og
meiri en allt árið í fyrra.
Úr landi | Actavis íhugar að flytja
framleiðslu um tuttugu samheita-
lyfja til Bretlands. Um er að ræða
lyf sem hefur verið kostnaðar-
samt að framleiða á Íslandi. Með
þessu er leitast við að lækka verð
lyfjanna.
Ný útgáfa | Landsbankinn hefur
lokið við skuldabréfaútgáfu í
Kanada fyrir 300 milljónir kan-
adískra dala eða 18 milljarða
íslenskra króna. Útgáfan er á
gjalddaga í janúar 2010.
Fons næststærstur | Fons, sem
er að meirihluta í eigu Pálma
Haraldssonar, hefur keypt 9,2
prósenta hlut Straums-Burðaráss
og dótturfélags þess, Iðu fjárfest-
inga, í 365. Fons er eftir kaupin
næststærsti hluthafinn í 365.
LÍ ráðleggur | Landsbanki Íslands
var aðalráðgjafi við kaup norska
fjárfestingarfélagsins Estatia
á kanadísku magnesíum-málm-
steypunni Meridian Technologies
á yfir 12 milljarða íslenskra
króna.
Dragast saman | Heildarútlán
Íbúðalánasjóðs námu 4,7 milljörð-
um króna í nóvember. Þetta er
1,5 milljörðum króna minna en í
mánuðinum á undan. Heildarútlán
sjóðsins á árinu nema ríflega 44,6
milljörðum.
Bæta við | FL Group hefur eign-
ast þrjátíu prósenta hlut í Glitni
eftir að fjárfestingafélagið keypti
bréf í bankanum fyrir 2,3 millj-
arða króna. Heildarhlutur bank-
ans er metinn á rúma 99 milljarða
króna.
Sérfræðingar Lánstrausts
Benda á veiku
blettina
18
General Motors
Dregur úr fram-
leiðslu jeppa
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 13. desember 2006 – 48. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Framtíðarskipan gengismála
Peningalaust
Ísland
10-11
Fjárfestarnir Kristinn Björnsson
og Magnús Kristinsson hafa
sett hlutabréf sín í FL Group
inn í Gnúp fjárfestingafélag sem
þeir stofnuðu ásamt Þórði Má
Jóhannessyni, fyrrum forstjóra
Straums-Burðaráss.
Jafnframt hefur Gnúpur selt
um fimm prósenta hlut til FL
sem á nú um sjö prósent í eigin
bréfum. Öll viðskiptin fóru fram
á genginu 23,1 sem var undir
þáverandi markaðsgengi hluta-
bréfa í FL.
Eignarhlutur Gnúps er því
um 17,2 prósent í FL eða rúmir
32 milljarðar að markaðsvirði.
Félög í eigu Magnúsar héldu
utan um 14,5 prósenta hlut í FL
fyrir viðskiptin, en félag í eigu
Kristins og systkina hans um 7,7
prósent.
Í tilkynningu til
Kauphallarinnar kemur fram að
Kristinn og Magnús eigi saman-
lagt 93 prósent hlutafjár í Gnúpi.
Fjárfestingafélagið Brekka, sem
er í eigu Þórðar Más, er einnig
meðal hluthafa. - eþa
Gnúpur kaupir
og selur í FL
Vísitala neysluverðs hækkaði
um 0,04 prósent
milli mánaða
í desember og
jafngildir það
7,0 prósents
verðbólgu síð-
astliðna 12 mán-
uði, samkvæmt
útreikningum
Hagstofunnar.
Til samanburð-
ar var verðbólgan 7,3 prósent í
nóvember.
Hækkunin er ívið minni en
greiningardeildir bankanna spáðu
en þær hljóðuðu upp á 0,1 til 0,2
prósenta hækkun milli mánaða.
Eldsneytisverð lækkaði milli
mánaða. Á móti hækkaði verð á
bílum og húsaleigu en það er í
takt við spár greiningardeilda
bankanna. Þá lækkaði matvöru-
verð þriðja mánuðinn í röð en það
var þvert á spár bankanna. - jab
Minni
verðbólga
B e n s í n d æ l a
Vísitala neysluverð
hækkaði minna en
gre in ingarde i ld i r
bankanna reiknuðu
með.
Peningalaust hagkerfi þar sem evran
væri viðmiðunargjaldmiðill kann að
vera leið sem hentar hér á landi, segir
Björn Rúnar Guðmundsson, sérfræð-
ingur greiningardeildar Landsbankans.
Hann stingur upp á því að hugað verði
að vænleika þessarar leiðar, en með
henni yrði tekið hér upp myntráð og
vaxtaákvarðanir yrðu hér áfram sjálf-
stæðar að því marki að ákvörðunar-
valdið lægi hjá Seðlabanka Íslands.
„Engin þjóð hefur enn sem komið er
tekið upp peningalaust kerfi þó svo að
fræðilega hafi þessi hugmynd verið á
reiki innan hagfræðinnar í heila öld,“
segir Björn Rúnar í grein sinni um
framtíðarskipan gjaldeyrismála hér.
Hann telur þó að með aukinni tækni-
væðingu og rafrænum greiðslum sé bara
tímaspursmál hvenær skrefið verði tekið
til fulls.
Björn Rúnar segir að þótt „dollaravæð-
ing“ hafi fengið á sig óorð í Argentínu og
myntráð hafi á margan hátt þótt gamal-
dags kunni millivegurinn að henta hér.
Umræða um framtíð krónunnar sem
gjaldmiðils hefur verið áberandi á árinu
og forsvarsmenn fyrirtækja bent á að
hún standi í raun í vegi fyrir erlendri
fjárfestingu hér og að með jafn óstöðug-
an gjaldmiðil sé strik sett í allar rekstr-
aráætlanir fyrirtækja sem viðskipti eiga
við útlönd.
Sjá úttekt í miðopnu / - óká
Björn rúnar
Guðmundsson Björn
Rúnar stingur upp á nýrri
leið hvað varðar gjaldmið-
il þjóðarinnar í viðamikilli
grein í miðopnu blaðsins.
Evran án aðildar að ESB
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að setja á þagn-
artímabil í þrjár vikur fyrir útgáfu Peningamála
og tvær vikur fyrir aðra vaxtaákvörðunardaga.
Ákvörðun um þetta var tekin fyrir helgi að sögn
Eiríks Guðnasonar seðlabankastjóra. Næsti vaxta-
ákvörðunardagur er 21. desember og fyrsta þagn-
artímabil bankans því þegar hafið.
Eiríkur segir það ekki síst vera fyrir ásókn
greiningardeilda erlendra fjármálastofnana að
þagnartímabilsleiðin hafi verið farin. „Þær hafa
sóst hér eftir fundum og einhvern veginn hitt
nákvæmlega á að vera svona skömmu fyrir ákvörð-
unardag,“ segir hann og bætir við að þekkist að
sami háttur sé hafður á í öðrum seðlabönkum. Nú
tjá starfsmenn bankans sig því ekki um stefnu
hans eða efnahagsmál þegar að vaxtaákvörðun
líður. „Við gefum út mikið efni með Peningamálum
og nokkuð þegar aðrir ákvörðunardagar eru og
okkur þykir það nóg. Svona framlag af okkar
hálfu hefur stóraukist með Seðlabankalögunum og
framkvæmd þeirra og ætti að nægja,“ segir hann.
Greiningardeildir bankanna hér segja ákvörð-
un bankans skiljanlega og í raun sé með þessu
lítið annað gert en að formgera fyrirkomulag
sem þegar hafi verið við lýði. Á fimmtudag-
inn eftir viku er aukavaxtaákvörðunardagur hjá
Seðlabankanum, en í nóvember byrjun lét bankinn
stýrivexti óbreytta í 14 prósentum, en hvað frek-
ari hækkun í spilunum yrðu þróun efnahagsmála
ekki hagfelld. Greiningardeildir bankanna gera
allar ráð fyrir hækkun. Ingólfur Bender, forstöðu-
maður greiningardeildar Glitnis, segir flest það
sem gerst hafi frá síðasta vaxtaákvörðunardegi
ýta undir þörfina á hækkun og bendir þar bæði
á gengisþróun og tölur um viðskiptahalla. Glitnir
spáir 25 punkta hækkun. Landsbankinn telur að
hækkunin gæti numið allt að 50 punktum, með
fyrirvara um hvernig hagvaxtarmæling sem birt
verður í dag kemur út. Þá gerir greiningardeild
Kaupþings ráð fyrir 50 punkta hækkun og rekur
þörfina á henni ekki síst til lítils aðhalds í nýsam-
þykktum fjárlögum. Bent er á að fjárlögin geri ráð
fyrir töluverðri lækkun skatta og hækkun útgjalda
um leið. Greiningardeildin segist óttast að vegið
sé nærri grunnafkomu ríkissjóðs sem muni hefna
sín um leið og þensla gangi niður. „Ennfremur,
virðast allir hemlar á fjárfestingum ríkisins vera
að gefa eftir og gildir einu hvort um sé að ræða
bein ríkisútgjöld eða einkaframkvæmdir á vega-
bótum,“ segir bankinn og bendir á að baráttan við
verðbólguna sé enn í algleymingi.
Seðlabankinn þegir
í tvær til þrjár vikur
Erlend ásókn í upplýsingar hefur knúið Seðlabankann til
að setja reglur um þagnartímabil fyrir vaxtaákvarðanir.
Greiningardeildir spá 25 til 50 punkta hækkun næst.