Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 42
MARKAÐURINN 13. desember 2006 miðvikudagur4
f r é t t i r
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Nefnd sem samgönguráðherra skipaði í vor leggur,
samkvæmt heimildum Markaðarins, til að ráðist
verði sem fyrst í lagningu nýs sæstrengs með
aðkomu ríkisins til að tryggja öryggi gagnaflutn-
inga til og frá landinu. Nýr strengur kæmi til
viðbótar Farice-1 sæstrengnum sem tekinn var í
notkun í febrúarbyrjun 2004 og svo tenginga um
Cantat-3 sæstrenginn sem kominn er til ára sinna.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kemur
til starfa í dag eftir vinnuferð til útlanda og tekur
við skýrslu nefndarinnar, en í henni eiga sæti full-
trúar Farice, Símans, Vodafone, Samtaka banka og
verðbréfafyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins.
Á föstudag er svo stefnt að því að ráðherra kynni
tillögur nefndarinnar í ríkisstjórn og að þær verði
svo í kjölfarið gerðar opinberar. Ætlað er að kostn-
aður við lagningu nýs sæstrengs nemi um þremur
milljörðum króna.
Verkefni nefndarinnar var að huga að því hvort
og hvernig koma ætti á varasambandi við útlönd
um sæstreng og hvaða leiðir væru færar í þeim
efnum, bæði hvað varðaði fjármögnun og rekstur.
Velt er upp mögulegu samstarfi við fyrirtæki og
eins önnur lönd, en Farice-sæstrengurinn var sem
kunnugt er lagður í samstarfi fjarskiptafyrirtækja
hér heima og í Færeyjum auk aðkomu ríkisins.
Líklegt er að sérstaklega sé horft til samstarfs við
Færeyjar, en þar hefur þegar verið ákveðið að ráð-
ast á næsta ári í lagningu nýs sæstrengs til viðbótar
við Farice-strenginn. Kjósi stjórnvöld hér að efna
til samstarfs við Færeyinga og fá að samnýta þann
streng þurfa þau því væntanlega að bregðast skjótt
við. Þann streng á að leggja til Skotlands, líkt og
Farice-1 strenginn, en stefnt er að því að færeyski
strengurinn nýi verði kominn í rekstur í nóvember
á næsta ári.
Forsvarsmenn upplýsingatæknifyrirtækja hafa
bent á nauðsyn þess að hér sé tryggt öryggi gagna-
flutninga. Þannig hefur Hilmar Veigar Pétursson,
framkvæmdastjóri CCP, framleiðandi tölvunet-
leiksins EVE Online, sagt skort á slíkri tengingu
hafa verið ráðandi í að allir miðlarar leiksins voru
settir upp í lundunum.
Í niðurstöðum nefndar forsætisráðherra um
alþjóðlega fjármálastarfsemi hér, sem kynnt var
í byrjun síðasta mánaðar, er einnig bent á að í
greinargerð með tillögu til þingsályktunar um
stefnu í fjarskiptamálum 2005-2010 komi fram að
„fjarskiptasamband milli Íslands og útlanda sé við-
kvæmt fyrir óvæntum áföllum, svo sem bilunum
eða skemmdarverkum, og staðan því óásættanleg
til lengri tíma litið vegna viðskiptahagsmuna og
þjóðaröryggis“. Staðan er sögð geta hamlað því að
innlend og erlend fyrirtæki teldu sér fært að ráðast
í að byggja hér upp þjónustu sem krefðist öruggrar
tengingar við umheiminn. Nefnd forsætisráðherra
taldi því mikilvægt að hefja hið fyrsta lagningu á
nýjum sæstreng. Ljóst er af viðræðum við þá sem
til þekkja að almennt séu menn sammála um nauð-
syn þess að leggja nýjan streng og því viðbúið að
mjög fljótlega verði tekin ákvörðun um að ráðast
í verkið.
NútímiNN er stafræNN Í skýrslu þar sem fjallað var um
möguleikann á því að koma hér upp alþjóðlegri fjármálamiðstöð
er örugg gagnatenging við útlönd sögð ein af grunnforsendum. Til
að viðkvæm starfsemi þrífist hér þarf að sýna fram á að óheppilegt
botnvörputog geti ekki kippt landinu úr sambandi. Markaðurinn/AFP
Farice 2 lagður fyrir
ríkisstjórn á föstudag
Samgönguráðherra kynnir í vikulokin fyrir ríkisstjórn tillögur
varðandi lagningu nýs sæstrengs til viðbótar við Farice-1.
Engar tilfærslur urðu á félögum
inn eða út úr nýrri Úrvalsvísitölu
fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní
á næsta ári. Sömu fimmtán félög
og skipuðu eldri Úrvalsvísitölu
sitja því sem fastast áfram.
Tvisvar á ári eru tólf til fimmt-
án félög valin inn eftir ákveðnum
reglum sem byggjast á gögnum
um viðskipti frá 1. desember árið
2005 til 30. nóvember í ár.
Kaupþing banki hefur mesta
vægi allra félaga í vísitölunni,
að 34 prósentum, en bæði
Landsbankinn og Glitnir hafa
rúmlega fjórtán prósenta vægi.
Fyrirfram hafði greiningar-
deild Kaupþings reiknað með
að Icelandic Group tæki sæti
Atlantic Petroleum en sú varð
ekki raunin. - eþa
Engar breytingar á
Úrvalsvísitölunni
Ú r v a l s v í s i t ö l u -
f é l ö g i n
vægi í vísitölu miðað við 30.11.2006
Kaupþing 34,55
Landsbankinn 14,85%
Glitnir 13,29%
Actavis 9,31%
Straumur-Burðarás 7,45%
Bakkavör 6,54%
FL Group 5,11%
Mosaic Fashions 2,48%
Össur 1,21%
Atorka 1,18%
Alfesca 1,10%
Hf. Eimskipafélag Íslands 1,03%
Marel 0,79%
Atlantic Petroleum 0,64%
365 hf. 0,47%
Heildarafli íslenskra skipa var
105 þúsund tonn í síðasta mánuði
en það er ríflega sex þúsund
tonnum og sex prósentum meira
en fyrir ári. Heildarafli íslenska
fiskiskipaflotans nemur 1.251
þúsund tonni það sem af er árs
en það er 22 prósenta samdrátt-
ur á milli ára.
Greiningardeild Glitnis segir
samdráttinn skýrast af mun
styttri loðnuvertíð á árinu. Á
móti kom að hærra hlutfall en
áður fór til manneldis auk þess
sem afurðaverð sé hærra nú en í
fyrra vegna lækkunar krónunnar
og hærra afurðaverðs á erlend-
um mörkuðum, sem er í sögu-
legu hámarki. Megi því búast
við hærra aflaverðmæti á árinu
í heild þrátt fyrir aflasamdrátt á
milli ára, að mati Glitnis. - jab
fiskiskip Greiningardeild Glitnis býst við
hærra aflaverðmæti á árinu þrátt fyrir sam-
drátt í veiðum. Markaðurinn/GVa
Aflaverðmæti eykst
Gera má ráð fyrir að bændur
greiði nú um tvö hundruð þúsund
krónum meira á ári fyrir áburð-
inn en þeir gerðu í fyrra. Könnun
sem Búnaðarsamband Suðurlands
lét gera nýverið og Bændablaðið
segir frá leiðir í ljós að áburðar-
verð hefur hækkað verulega milli
ára. Er hækkunin á bilinu tíu til
sautján prósentum.
Áætlað er að þau fjögur fyr-
irtæki sem bítast um áburðar-
markaðinn, Áburðarverksmiðjan,
Betra land, Skeljungur og
Sláturfélag Suðurlands, ann-
ist sölu á um 55 til 60 þúsund-
um tonna af áburði hér á landi
árlega. Áburðarsalar hafa skýrt
verðhækkunina með gengisþró-
un hér á landi og hækkun flutn-
ingskostnaðar í kjölfar olíuverðs-
hækkana. - hhs
sauðfé Bændur greiða um 200 þúsund krónum meira fyrir áburðinn í ár en í fyrra.
Áburðarverð hækkar
Þó nokkuð er um að kýr gangi
kaupum og sölum um þessar
mundir. Í viðtali Bændablaðsins
við Jóhannes Símonar-son hér-
aðsráðunaut kemur fram að eft-
irspurn eftir þjónustu Kúatorgs
Búnaðarsambands Suðurlands,
þangað sem bændum gefst kost-
ur á að leita ef þeir hyggjast
kaupa eða selja kýr, hafi ekki
verið ýkja mikil. Ástæðan sé
sú að þeir hugi fyrst að mark-
aði fyrir gripi sína innansveitar
og verði oftast ágengt í þeim
efnum.
Í greininni kemur fram að
algengt verð á kvígum hafi
verið á bilinu 75 til l85 þúsund
krónur. Nú sé gangverð á kvíg-
um á fyrsta mjaltaskeiði um 120
til 130 þúsund
krónur. - hhs
Kýr rokseljast
kýr kvígur
á fyrsta
mjaltaskeiði
kosta 120 til
130 þúsund
krónur.
Samskip hafa opnað þriðju sölu-
skrifstofuna í Svíþjóð, en hún
er í Helsingjaborg. Hinar skrif-
stofurnar eru í Gautaborg og
Varberg.
Söluskrifstofur Samskipa eru
við þetta orðnar 56 talsins í fjór-
um heimsálfum, auk umboðs-
manna víða um heim.
Samskip bjóða vikuleg-
ar siglingar frá Varberg til
Íslands, með viðkomu í Árósum
og Þórshöfn í Færeyjum, auk
umfangsmikilla gáma- og lest-
arflutninga milli Svíþjóðar og
meginlands Evrópu sem og aust-
ur til Eystrasaltslandanna og
Rússlands. - óká
Opna í Svíþjóð
SPRON Myntlán eru veitt til kaupa, framkvæmda eða endurfjármögnunar
á íbúðarhúsnæði eða atvinnuhúsnæði. Unnt er að taka fullt SPRON Myntlán
eða blandað lán þar sem helmingur lánsins er myntlán og hinn helmingurinn
í íslenskum krónum.
Upplýsingar í næsta útibúi SPRON í síma 550 1200,
í þjónustuveri SPRON í síma 550 1400
eða á spron.is
Gæti lán í erlendri mynt
verið lausnin?
A
RG
U
S
/
06
-0
55
0
Myntlán