Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 40
MARKAÐURINN 13. desember 2006 miðvikudagur2
f r é t t i r
G E N G i S Þ r Ó U N
Vika Frá áramótum
365 25% -25%
Actavis 0% 33%
Alfesca -1% 25%
Atlantic Petroleum 1% 27%
Atorka Group 3% 3%
Bakkavör 2% 24%
FL Group 2% 26%
Glitnir 4% 36%
Hf. Eimskipafélagið 1% -31%
KB banki 3% 13%
Landsbankinn 2% 6%
Marel -1% 18%
Mosaic Fashions -2% -13%
Straumur 1% 10%
Össur 0% -1%
Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Samanlagt útflutningsverð-
mæti fyrir fersk þorsk- og ýsu-
flök nam 10 milljörðum króna
á fyrstu tíu mánuðum ársins.
Þetta er 30 prósenta aukning á
milli ára, samkvæmt upplýsing-
um Landssambands smábáta-
eigenda.
Verðmæti þorskflaka hefur
hækkað um 20 prósent en ýsu-
flaka um 16 prósent á milli ára.
Til samanburðar jókst heildar-
magn þorskflaka um 7 prósent
en ýsuflaka um 15 prósent á
sama tíma.
Langmest af útfluttum flök-
um fór líkt og fyrri ár á markað
í Bretlandi. Næstmest fer til
Bandaríkjanna en þar á eftir
kemur Frakkland en þangað
fóru 8 prósent af útfluttum flök-
um á árinu - jab
ýsuflak Bretland er stærsti markaðurinn
fyrir íslensk ýsuflök. Markaðurinn/E.Ól.
Verðmæti flaka jókst um 30%
Stærri fjármálafyrirtæki
kunna að geta losað um tölu-
verða fjármuni í rekstri sínum
eftir að um áramót taka gildi
nýjar alþjóðlegar reglur um
eigið fé fjármálafyrirtækja
gildi. Reglurnar byggja á svo-
nefndum Basel II staðli.
Guðrún Jónsdóttir hjá
Fjármálaeftirlitinu áréttar að
í engu sé slegið af í kröfum
til fjármálafyrirtækja. Stærri
fjármálafyrirtæki njóta þess
hins vegar að vera með öflug
áhættustýringartæki og eiga
þess kost að koma á svoköll-
uðu „innra matskerfi“ þar sem
áhætta er metin í samstarfi við
Fjármálaeftirlitið.
„Í raun borgar sig samt ekki
nema fyrir stærstu fyrirtæki að
taka þetta upp,“ segir Guðrún og
bendir á að því fylgi mikil vinna
og umfang. Kjósi fyrirtæki að
taka upp innra mat tekur svo
við þriggja ára aðlögunartími
þar sem einungis er heimilt
að trappa eigið fé fyrirtækis-
ins niður um ákveðið hlutfall á
ári hverju. Eftirlitsferlið sem í
staðinn kemur á svo að tryggja
að fyrirtækin hafi ávallt nægi-
legt eigið fé að styðjast við.
„Reglurnar sem við gefum út
núna eru frá samtökum banka-
eftirlita og snúa í raun að dálítið
breyttum eftirlitsháttum,“ segir
Guðrún, en þeir byggja í meira
mæli á samstarfi fyrirtækjanna
og eftirlitanna. - óká
Nýjar reglur losa um peninga
Fjármálaeftirlitið undirritaði
á mánudag samstarfssamning
við fjármálaeftirlitið á Mön.
Samningurinn tekur til sam-
starfs um eftirlit og upplýs-
ingaskipti og er sá fyrsti sem
Fjármálaeftirlitið gerir við eftir-
litsaðila utan EES.
„Mön er þekkt fjármálamið-
stöð og ég er ánægður með að við
skulum vera búin ljúka þessum
fyrsta samningi við ríki fyrir
utan EES, miðað við útrás bank-
anna verður þetta ekki síðasti,“
segir Jónas Fr. Jónsson, forstjóri
FME. Annað dæmi um starfsemi
banka utan EES er nýstofna útibú
Glitnis í Kína. Samningurinn við
fjármálaeftirlitið á Mön er sagð-
ur til kominn vegna starfsemi
dótturfélaga Kaupþings Singer &
Friedlander á Mön. Samningurinn
tekur þó til almenns samstarfs
milli eftirlitsstofnananna. - óká
FME semur um eftirlit Mön
Kaupthing Fund Global Value,
sjóður í umsjá eignastýringar
Kaupþings, fékk nýverið fjór-
ar stjörnur af fimm í einkunn
frá matsfyrirtækinu Standard &
Poors. Þetta er hæsta einkunn
erlendra hlutabréfasjóða hér.
Stjörnugjöfin endurspeglar
ávöxtun að teknu tilliti til áhættu
í samanburði við aðra sambæri-
lega sjóði. Sjóðurinn var metinn
gagnvart hópi 672 annarra.
Sjóðurinn, sem fjárfestir í 30-
40 hlutabréfum í Bandaríkjunum,
hefur hækkað um 48 prósent á
undanförnum þremur árum. - eþa
Fremstir að
mati S&P
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Þrír stærstu sparisjóðir landsins, SPRON, SPV/
SPH og SpKef, ætla að selja nýtt stofnfé fyrir um
14,7 milljarða króna á næstunni. Þarna er um tals-
verða fjárhæð að ræða þegar haft er í huga að allt
stofnfé í sparisjóðakerfinu nam tæpum sjö millj-
örðum króna um síðustu áramót.
Stofnfjárútgáfan styrkir eiginfjárstöðu spari-
sjóðanna og gerir þeim kleift að vaxa frekar. Hún
býður einnig upp á þann möguleika að arðgreiðslur
til stofnfjáreiganda aukist.
Fyrir síðustu helgi hófst tíu milljarða króna
stofnfjárútboð í SPRON þar sem núverandi stofnfé
verður aukið um 90 prósent. Ef allt stofnféð selst
verður heildarvirði stofnfjár um 20 milljarðar í
SPRON. Þetta er önnur stofnfjáraukningin í SPRON
á þessu ári en í vor var nýtt stofnfé selt fyrir fimm
milljarða króna.
Stjórn hins nýja sameinaða
sparisjóðs SPH og
SPV hefur
ákveðið að nýta heimild til stofnfjáraukningar að
fullu með því að selja nýtt stofnfé fyrir 3,7 millj-
arða króna. Útboðslýsing er til yfirlestrar hjá FME
en ekki liggur endanlega fyrir hvort stofnfjáraukn-
ingin fari fram á þessu ári.
Þá liggur fyrir útboðslýsing í Sparisjóðnum í
Keflavík um sölu á stofnfé fyrir hálfan milljarð
að nafnvirði samkvæmt heimild frá árinu 2003.
Þetta samsvarar einum milljarði króna miðað við
uppreiknað gengi stofnfjárbréfa sjóðsins. Útboðið
hefst þann 21. desember.
„Tilgangurinn með þessari sölu er að styrkja
eiginfjárgrunn félagsins. Afkoma sparisjóðsins
verður góð á þessu ári en aukinn stærð og meiri
hagnaður taka í svokölluð eiginfjárhlutföll,“ segir
Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri í SpKef.
Jafnframt liggur fyrir fyrir stofnfjáreigenda-
fundi í Spkef tillaga um að stjórn spari-
sjóðsins fái heimild til að gefa
út nýtt stofnfé fyrir 700 millj-
ónir króna að nafnvirði eða
1,4 milljarða að söluvirði.
Geirmundur segir að ekki
hafi verið tekin ákvörðun
um sölu þess hlutar sam-
þykki fundurinn tillöguna.
Á fundinum verður lögð
fram tillaga um breyting-
ar á samþykktum sjóðs-
ins vegna samruna við
Sparisjóðinn í Ólafsvík.
Þar er gert ráð fyrir að
starfssvæði sparisjóðs-
ins verði útvíkkað.
Höfuðstövðar spron í
ármúlanum Þrír stærstu
sparisjóðirnir ætla að selja nýtt
stofnfé fyrir fimmán milljarða
króna að söluvirði.
Selja stofnfé fyrir
fimmtán milljarða
SPRON, SPV og SpKef vilja auka stofnfé sem styrkir eigin-
fjárstöðu sparisjóðanna. Heildarstofnfé í sparisjóðakerfinu
nam sjö milljörðum um síðustu áramót.
Norska lággjaldaflugfélag-
ið Sterling, sem er í eigu FL
Group, hyggst stofna nýtt félag
undir nafninu Essential Aircraft
Maintenance Services A/S
(EAMS) utan um viðhaldsþjón-
ustu sína. Félagið verður selt
í tveimur hlutum á næstu sex
mánuðum, þann 1. febrúar og
1. maí. Almar Örn Hilmarsson,
forstjóri Sterling, segir þann
háttinn hafðan á til þess að
Sterling hafi áfram ákveðna
stjórn yfir fyrirtækinu á meðan
breytingarnar ganga í gegn.
Kaupendur nýja félagsins
eru meðal annarra fyrrverandi
stjórnendur hjá SAS og aðrir
sem hafa langa reynslu af við-
haldsrekstri, bæði í Skandinavíu
og Evrópu, ásamt hópi fjárfesta.
Nýja félagið mun, auk Sterling,
sinna öðrum viðskiptavinum
og sérhæfa sig sérstaklega í
Boeing 737 og Airbus 320 flug-
vélum.
Almar segir söluna í takti
við það sem önnur lággjalda-
flugfélög hafa gert. Óvenjulegt
sé að þau sinni viðhaldi á flota
sínum sjálf. Það að nýja félg-
ið muni jafnframt sinna öðrum
viðskiptavinum feli í sér kostn-
aðarhagræðingu. - hhs
Sterling selur
viðhaldsþjónustuna