Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 60
12
Jólin eru annasamur tími. Eins mikið
og okkur langar til að sinna öllum og
öllu virðist tíminn ávallt af skornum
skammti. Þótt okkur langi til að baka
tuttugu sortir af smákökum, skreyta
eins og jólin hafi gubbað yfir heim-
ilin okkar og vanda valið á jólagjöf-
um með ítarlegum verslunarferðum,
verðum við að velja og hafna því
ekki getur maður gert allt.
Hins vegar mega mannlegir jóla-
sveinar ekki gleyma að um jólin má
segja nei. Lögmálið um tímann gild-
ir þennan mánuð sem aðra, vilji fólk
gefa sér tíma til ýmissa verka, þá
gefur það sér þann tíma.
Veldu þér kvöld sem þú vilt verja
með börnunum í piparkökubakstur,
eða í að skrifa jólakort, eða að fara á
tónleika eða bara til að lesa jólabók
um engla og hreindýr. Bjóðist þér
að gera eitthvað annað það kvöld er
svarið einfaldlega nei.
Við megum ekki gleyma að við
stjórnum eigin tíma. Á annasömum
tímum eins og í desember virðumst
við stjórnast af annarra manna tíma
eða afgreiðslutíma verslana. En það
er lítið mál að taka völdin í sínar
hendur og segja við sjálfan sig:
„Þetta eru mín jól og þau verða eins
og ég vil.”
Farið nú bara að skipuleggja svo
jólamánuðurinn verði afslappaður
og eytt í faðmi vina og ættingja.
Nei, nei, nei,
ekki um jólin
Jólin eru hátíð barnanna og fátt eykur á
jólagleðina en stund með þeim við föndur
eða bakstur. nordicphotos/gettyimages
Með því að stjórna eigin tíma og segja nei
við því sem ekki fellur inn í aðventudag-
skrána má meðal annars gefa sér góðan
tíma til að föndra glæsilega aðventukransa.
nordicphotos/gettyimages
■■■■ { blessuð jólin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Útikerti, bál, kertaljós, jólaskraut og piparkökulykt
myndaði huggulega jólastemningu á jólamarkaði sem
haldinn var í gamalli hlöðu við bæinn Skeið í botni
Svarfaðardals hinn 10. desember.
Þetta var annar sunnudagurinn í röð sem jólamark-
aðurinn var haldinn og tókst vel til enda veðrið óvenju
fallegt.
Fólk fann sér fallegar jólagjafir, smakkaði þýska jóla-
brauðið stollen og dreypti á jólaglögg. Það naut kyrrðar
og friðs í faðmi fjallanna í botni Svarfaðardals.
Bærinn Skeið stendur á rólegum stað í botni Svarf-
aðardals vestanverðum um 18 km frá Dalvík.
Forðum var þetta sveitabær með hefðbundnum
búskap, en búskap var þar hætt 1995. Bæjarins er fyrst
getið á 11. öld í sögu landsins. Í botni dalsins eru tveir
jöklar, þaðan renna tvær ár, sem eru upptök Svarfað-
ardalsár.
Jólaljós í Svarfaðardal
SíðaSti jólamarkaðurinn á Skeiði í Svarfaðardal verður haldinn á Sunnudag.
Gestir nutu kyrrðar og fallegra jólaljósa.Bærinn Skeið stendur á rólegum stað í botni Svarfaðardals.