Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 111
13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR54
Hrósið …
„Þetta var mjög fallegt allt saman.
Brúðkaupið var fallegt og veislan
á eftir ekki síðri,“ segir sjónvarps-
maðurinn Jóhannes Kr. Kristjáns-
son í Kompási. Á laugardaginn
síðasta gengu þau Jóhann Trausta-
son og Guðbjörg Inga, unnusta
hans, í heilagt hjónaband. Lands-
menn þekkja þau skötuhjúin
eflaust betur undir nöfnunum Jói
og Gugga, en þau hafa verið fasta-
gestir í sjónvarpsþættinum Komp-
ási á Stöð 2 síðasta árið. Þar hafa
sjónvarpsáhorfendur getað fylgst
með þeim berjast við eiturlyfja-
fíkn sína. Síðast þegar fréttist af
Jóa og Guggu höfðu þau farið í
meðferð og bjuggu í húsnæði á
vegum Krossins. Það var einmitt
Gunnar Þorsteinsson í Krossinum
sem gaf þau saman.
„Það voru reyndar ekki margir
gestir í brúðkaupinu en þetta var
góðmennt. Kompás var að sjálf-
sögðu á staðnum, enda var þetta
stór stund í lífi þeirra Jóa og
Guggu,“ segir Jóhannes Kr. Hann
fæst ekki til að upp-
lýsa hvernig Jóa og
Guggu hafi gengið að
berjast við eitur-
lyfjafíkn sína að undanförnu, segir að það komi í
ljós í næsta þætti sínum. En hvað
gaf Jóhannes og Kompásfólkið
vinum sínum í brúðkaupsgjöf?
„Við erum nú ekki enn búin að
gefa þeim brúðkaupsgjöf en við
munum færa þeim alla þættina
sem þau hafa verið í á diskum
fljótlega,“ segir Jóhannes.
Eftir að Gunnar Þorsteinsson
hafði gefið brúðhjónin saman var
haldin vegleg veisla í Tæknigarði.
„Það var fólk sem gaf þeim
veisluna. Eftir að það sá síðasta
þátt ákvað það að hjálpa þeim Jóa
og Guggu. Mjög fallegt af þeim,“
segir Jóhannes Kr. Kristjánsson.
- hdm
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
veistu svarið
Svör við spurningum á bls. 8
1 Augusto Pinochet
2 Máni Svavarsson
3 Eggert Magnússon
LÁrÉtt
2 jurt 6 upphrópun 8 umfram 9
sönghópur 11 slá 12 niðurlægja 14
hvæsa 16 tímaeining 17 rangl 18 ferð
20 í röð 21 tryggur.
LóðrÉtt
1 að lokum 3 guð 4 nískupúki 5 hall
andi 7 hreinar meyjar 10 þjófnaður
13 nálægt 15 þurrka út 16 stefna 19
óreiða.
LausN
LÁrÉtt: 2 gras, 6 oj, 8 auk, 9 kór, 11
rá, 12 smána, 14 fnæsa, 16 ár, 17 ráf,
18 túr, 20 lm, 21 trúr.
LóðrÉtt: 1 loks, 3 ra, 4 aurasál, 5
ská, 7 jómfrúr, 10 rán, 13 nær, 15
afmá, 16 átt, 19 rú.
„Þetta sýnir bara hvað Ísland er
lítið. Arnaldur var staddur þarna í
bænum vegna þess að kvikmynda-
hátíðin er tvískipt; annars vegar
er þetta kvikmyndahátíð og hins
vegar bókmenntahátíð sem Arn-
aldur tók þátt í og honum fannst
það ekkert tiltökumál að veita
verðlaununum viðtöku,“
útskýrir Ragnar Braga-
son, leikstjóri kvikmynd-
arinnar Börn, sem á
sunnudaginn fékk sérstök verð-
laun dómnefndar á ítölsku kvik-
myndahátíðinni Courmayeur Noir.
Glæpasagnahöfundurinn Arnaldur
Indriðason veitti þeim viðtöku
fyrir hönd leikstjórans. Væntan-
lega gerir það tilviljunina enn
skemmtilegri að Arnaldur er
sem kunnugt er höfundur
Mýrarinnar en kvikmynd
byggð á bókinni hefur
slegið öll aðsóknarmet
hér á landi. „Það var hringt í mig á
laugardeginum og ég beðinn um
að koma og taka við þeim en þar
sem ég var í Búdapest að leggja
lokahönd á sýningareintökin fyrir
Foreldra gafst mér því miður ekki
tækifæri til þess,“ bætir leikstjór-
inn við en hið sjálfstæða fram-
hald Barna verður frumsýnt
19. janúar á næsta ári.
Ragnar segir kvikmynda-
hátíðina vera haldna í litlum
bæ við ítölsku Alpana en
Ingvar E. Sigurðsson,
einn framleiðandi
myndarinnar, hafi
farið fyrir hönd
aðstandenda mynd-
arinnar og tekið
þátt í blaðamanna-
fundum og öllu því sem fylgir slík-
um hátíðum en hann leikur ein-
mitt einnig aðalhlutverkið í
Mýrinni. Formaður dómnefndar-
innar var Mike Hodges sem gerði
meðal annars kvikmyndina Get
Carter með Michael Caine í aðal-
hlutverki og hreifst hann
mjög af hinni íslensku
kvikmynd. - fgg
Arnaldur fulltrúi Barna á kvikmyndahátíð
iNgvar e. sigurðssoN
Ræddi við formann
dómnefndar, Mike
Hodges, sem
hreifst mjög af
hinni íslensku
mynd.
ragNar Komst
ekki til Ítalíu þar
sem hann var í
Búdapest að
klára sýningar
eintök fyrir
myndina
Foreldrar.
arNaLdur Fannst það
lítil fyrirhöfn að
veita sérstökum
verðlaunum
handa Börn
um viðtöku
á Ítalíu.
Hjónin Arngrímur Marteinsson og
Ingibjörg Sveinsdóttir hafa í nógu
að snúast um þessar mundir. Það
er þó ekki hefðbundið jólastress
sem herjar á hjúin, því þau ferðast
um borgina endilanga til að halda
tónleika – bæði með hljómsveit-
inni Vinabandinu og sem dúettinn
Hjónabandið.
Þó að Arngrímur og Ingibjörg
hafi verið gift í áratugi er tónlistar-
samstarfið þó tiltölulega nýtil-
komið. „Ég var alltaf svona gutl-
andi á píanó og harmonikku og
spilaði á böllum,“ sagði Arngrímur,
„en Ingibjörg byrjaði ekkert fyrr
en um sextugt. Mig vantaði svo
trommuleikara með mér og hún
bauð sig fram. Hún fékk trommu-
settið í sextugsafmælisgjöf og fór
að spila. Það gekk alveg ágætlega
og hefur gengið síðan,“ útskýrði
Arngrímur.
Vinabandið er hins vegar
sprottið upp úr félagsstarfi í
Gerðubergi. „Þangað komu hljóð-
færaleikarar sem voru hættir að
vinna ákveðna daga í viku,“ sagði
Arngrímur. „Svo var Guðrún
Jónsdóttir í Gerðubergi beðin um
að útvega hljómsveit fyrir lands-
mót hjá samtökum sem ég man í
svipinn ekki alveg hvað heita, og
benti á okkur,“ sagði Arngrímur.
„Við köllum hana einmitt mömmu
okkar af því að það var hún sem
kom þessu öllu af stað,“ bætti
hann við. Hljóðfæraleikararnir
héldu eina æfingu, spiluðu á sam-
komunni og hafa varla lagt frá sér
hljóðfærin síðan. „Guðrún skírði
þetta Vinabandið, við erum fjórir
hljóðfæraleikarar og fjórir söngv-
arar,“ sagði Arngrímur, en hljóm-
sveitin hefur nú verið starfrækt í
ein níu ár.
Hljómsveitirnar tvær hafa haft
nóg að gera. „Núna erum við að
spila svona fjórum, fimm sinnum í
viku, það eru jólaskemmtanir úti
um allt,“ sagði Arngrímur. „Venju-
lega spilum við ekki nema svona
tvisvar, þrisvar í viku,“ bætti hann
við. Hljómsveitirnar hafa nokkra
fasta viðkomustaði og sækja
Alzheimersjúklinga og eldri borg-
ara reglulega heim. „Svo erum við
alltaf á Sólheimum í Grímsnesi
tvisvar á ári,“ sagði Arngrímur.
Efnisskrá sveitanna inniheldur
yfirleitt lög sem eldri íbúar lands-
ins kunna. „Við spilum lög með
íslenskum texta, reynum að fá alla
til að syngja með og svo er alltaf
dansað mikið,“ sagði hann.
Arngrímur segir Vinabandið og
Hjónabandið yfirleitt ekki þiggja
laun fyrir greiðann. „Ekki nema
því sé þröngvað upp á okkur. Við
erum bara að leika okkur og finnst
það gaman,“ sagði hann keikur.
sunna@frettabladid.is
HjónABAndið: treður upp fjórum sinnum í viku
Finnst gaman að leika sér
HjóNabaNdið Arngrímur Marteinsson, sem hefur lengi gutlað við píanó og harmonikku, gaf ingibjörgu Sveinsdóttur trommu
settið í sextugsafmælisgjöf. FRéttABlAðið/StEFán
... fær tónlistarmaðurinn Einar
Tönsberg, Eberg, sem heldur
uppi heiðri Íslendinga í sjón-
varpsþáttunum The O.C. með
tónlist sinni.
Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir
gafst upp á lífinu í danmörku fyrir
skemmstu og fluttist á
suðrænni slóðir, til
Barcelona. Þar hélt
verðlaunarithöf
undurinn að hún
væri laus við kalda
vetur og gæti
skrifað við bestu
aðstæður árið
um kring. Það
hefur ekki
alveg ræst,
Auði er sífellt kalt á heimili sínu og
kennir um öðruvísi húsbyggingastíl
en hún á að venjast. Rithöfundur
inn hefur þó fundið einfalda lausn
á þessum vanda. Hún hefur óskað
sér ullarpeysu í jólagjöf frá ömmu
sinni og sér því fram á þægilega
vormánuði.
jólafrí alþingismanna hófst fyrir
helgi, ef frí skyldi kalla, því eins og
alþjóð veit felst svo margt fleira
í starfi alþingismanna en að sitja
á þingi. Siv Friðleifsdóttir, sem er
ekki aðeins þingmaður heldur líka
ráðherra, heldur úti ítarlegum dag
bókarfærslum á vef sínum og ekki
verður séð að fyrsti „frídagurinn“
hafi einkennst af mikilli afslöppun.
Að loknu morgunkaffi skundaði
Siv beinustu leið niður í ráðuneyti,
dreif sig því næst í símatíma á
flokksskrifstofu Framsóknarflokks
ins, mætti í viðtal hjá fréttastofu
Sjónvarpsins og rak smiðshöggið
á daginn með jólafundi Slysavarnar
deildar kvenna á Seltjarnarnesi.
Siv fer þó líklega ekki í jólaköttinn
því seinnipartinn gafst henni tóm
til að skjótast í nýja verslun iKEA í
Garðabæ, sem að sögn
ráðherrans er
„flott“. - hdm/bs
FrÉttir aF FóLki
Jói og Gugga í heilagt hjónaband
stoLt og ÁNægð jói og Gugga gengu í heilagt hjónaband um síðustu helgi. Vegleg
veisla var haldin í tæknigarði.
við aLtarið jói og Gugga staðfestu
ást sína í Krossinum.
PresturiNN
Gunnar
Þorsteinsson
í Krossinum
gaf þau jóa
og Guggu
saman.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3