Fréttablaðið - 13.12.2006, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 13.12.2006, Qupperneq 6
6 13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR KjörKassinn EInKAVæÐInG Jafet Ólafsson, fyrr- um framkvæmdastjóri Verðbréfa- stofunnar hf., sem annaðist mats- gerð á tilboðum í hlut íslenska ríkisins í ÍAV, segir að sér hafi fundist matið helst til of flókið fyrir svona ferli. „ Okkur var nátt- úrulega sagt hvernig ætti að leggja mat á þetta mál og það má alveg deila um það af hverju það var verið að hafa svona marga mælikvarða. Þetta var einum of flókið mat að okkur fannst.“ Að öðru leyti sagðist Jafet hvorki geta né vilja tjá sig frekar um málið. Verðbréfastofan hf. tók við sem umsjónaraðili söluferlisins á síð- ustu stigum þess eftir að Lands- bankinn hafði sagt sig frá því sökum tengsla við bjóðendur. Í greinargerð sem hún skilaði til einkavæðingarnefndar kemur bersýnilega í ljós að Verðbréfa- stofunni hf. þykir ýmislegt athuga- vert við tilboð EAV ehf. Þar segir meðal annars að matsaðilinn telji fyrirvara sem séu í tilboði EAV ehf.: „í besta falli ekki ganga upp og hægt er að velta upp þeirri spurningu hvort tilboðið sé í raun gilt. Framkvæmdarnefnd um einkavæðingu hefur kosið að taka tilboðið gilt eins og það er lagt fram. Samkvæmt upplýsingum frá nefndinni er ekki hægt að ganga að neinum þessara fyrir- vara. Það er því nærtækast að telja að þá gildi lægra tilboðið frá EAV.“ Þrátt fyrir þessa skoðun matsaðilans ákvað einkavæðing- arnefnd að ganga til samninga við EAV ehf. Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá því að Halldór Ásgrímsson hefði látið boð ganga inn á fund einkavæðinganefndar um að hann væri „á þeirri skoðun að tvö tilboð væru sambærileg“. Halldór vildi ekki svara spurningum blaða- manns þegar leitað var eftir því í gær en sendi þess í stað frá sér yfirlýsingu. Þar segir hann það hafa verið öllum ljóst sem skoð- uðu tilboðin að tvö þeirra væru mjög sambærileg, en önnur lægri. Þegar Landsbankinn hafi sagt sig frá málinu vegna tengsla hafi svo skapast óvenjuleg staða. „Var sú staða að sjálfsögðu rædd við mig sem utanríkisráðherra enda bar ég ábyrgð á málinu.“ Baldur Guðlaugsson, fulltrúi fjármálaráðherra í einkavæðing- arnefnd, sem lét samkvæmt fund- argerðum bóka mótmæli við orð- sendingu Halldórs til nefndarinnar, sagðist í gær ekki muna eftir ein- stökum atriðum í atburðarásinni. Ekki náðist í Sturlu Sigurjónsson né Sævar Þór Sigurgeirsson í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. thordur@frettabladid.is Öllum ljóst að tvö til- boð voru sambærleg Halldór Ásgrímssyni segir í yfirlýsingu að öllum hafi verið ljóst að tvö tilboð í ÍAV hafi verið sambærileg. Hann lét þau boð ganga á fund einkavæðinganefnd- ar. Baldur Guðlaugsson segist ekki muna eftir atburðarásinni. Halldór Ásgrímsson Segir í yfirlýsingu að öllum hafi verið ljóst að tvö tilboð væru sambærileg, en önnur lægri. Hann vildi ekki svara spurningum blaðamanns í gær. Baldur guð- laugsson Fulltrúi fjármála- ráðherra í einka- væðingarnefnd. jafet ólafsson Fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Verðbréfastof- unnar hf. Er til fátækt á Íslandi? já 88,4% nei 11,6% spurning dagsins í dag Á að neita gjaldþrota innflytj- endum um ríkisborgararétt? Segðu skoðun þína á visir.is EfnAhAGsMál Fimmtán þúsund einstaklingar fá í dag eða næstu daga leiðréttar vaxtabætur frá hinu opinbera, þar af eru sex þús- und einstaklingar sem fengu engar vaxtabætur í sumar og eru nú að fá þær í fyrsta sinn. Leiðréttingin kemur í kjölfarið á endurskoðun kjarasamninga frá því í sumar. Vaxtabæturnar eru yfirleitt á bilinu fimm þúsund upp í 80 þúsund krónur. Þær miðast við nettóeign upp á 4,8 milljónir hjá einstaklingum og rúmar átta milljónir hjá hjónum og skerðast hjá þeim sem eiga meira. Yngvi Már Pálsson, skrifstofustjóri hjá fjármálaráðu- neytinu, segir að eignaviðmið- ið byggist á hækkun á fast- eignamati. Það hafi hækkað um fimm pró- sent á smærri stöðum úti á landi og allt upp í þrjátíu og fimm prósent sérbýlið á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Ólafur Darri Andrason, hag- fræðingur ASÍ, segir að ASÍ telji þessar lagfæringar ófullnægjandi og á skjön við samkomulag frá því í sumar. Jákvætt sé að ákveðinn hópur fái leiðréttingu en stór hópur fái ekki leiðréttingu sem þó væri full ástæða til að fengi hana. „Það sem er alvarlegast er að skerðingin sem ekki er leiðrétt núna mun vara til allrar framtíðar. Þetta er grunnurinn að vaxta- bótakerfinu fyrir næsta ár,“ segir hann. „Það er ekki hægt að segja annað en að þetta valdi okkur verulegum vonbrigðum.“ Hækkun útgreiddra vaxtabóta nemur samtals 577 milljónum króna. - ghs ólafur darri andrason Fimmtán þúsund einstaklingar fá greiddar vaxtabætur frá ríkinu í dag: Stór hópur fólks fær ekkert löGREGlUMál Karlmaður í Vest- mannaeyjum, sem hafði í fórum sínum 1,3 kíló af hassi og lítilræði af amfetamíni, verður samkvæmt upplýsingum frá sýslumanninum í Vestmannaeyjum ákærður í þess- um mánuði. Hann hefur ekki verið í haldi lögreglu á meðan ákæru- meðferð hefur staðið yfir. Lögreglan í Eyjum fann fíkni- efnin um síðustu áramót en í fórum mannsins fannst einnig umtalsvert af peningum sem talið er að hafi verið ávinningur af fíkniefnasölu. Fréttablaðið flutti af því fréttir í janúar að maðurinn hefði stund- að fíkniefnasölu í Eyjum árum saman áður en lögreglan fann efnin en höfuðpaur málsins, sem seldi efnin til Eyja, var búsettur á höfuðborgarsvæðinu þegar málið kom upp. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins tengdist maðurinn höfuðpaur málsins fjölskyldu- böndum. Efnin voru flutt til Eyja með Herjólfi en þau sem tóku þátt í að flytja efnin fylgdust náið með vöktum lögreglu í Vestmannaeyju og Þorlákshöfn við ferjuna og áttu auðvelt með að panta sér far undir fölsku nafni þar sem ekki þurfti að sýna skilríki er farið var um borð í Herjólf. Rannsókn málsins lauk á fyrri hluta ársins en ákærumeðferð hefur staðið yfir undanfarna mán- uði og lýkur senn. - mh Karlmaður verður ákærður fyrir fíkniefnabrot í Vestmannaeyjum fyrir áramót: Ákærður eftir árs rannsókn Herjólfur Burðardýr fluttu efnin til Eyja með Herjólfi. FréttaBlaðið/kk löGREGlUMál Lögreglan í Reykja- vík hefur þurft að bregðast við líflátshótunum vegna andláts þrítugs karlmanns sem lést eftir að hafa fengið hjartastopp í lögreglu- bifreið. Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir lögreglu hafa brugðist við með ákveðnum aðgerðum. „Við höfum fengið hótanir og ábendingar sem hafa leitt til þess að við teljum ástæðu til þess að grípa til aðgerða. Við höfum meðal annars fjölgað lögreglumönnum á vakt og tryggt öryggi þeirra en gefum ekki upp með hvaða hætti. En við tökum þessar hótanir alvarlega.“ - mh Lögreglan í Reykjavík: Með varann á vegna hótana
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.