Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 50

Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 50
2 Heimili Ebbu ber þess vott að þar eru jólin undirbúin af kostgæfni. „Ég hef verið mikið jólabarn alveg frá því ég man eftir mér. Er alin upp við það. Móðir mín var jóla- kona og amma líka. Þetta er bara í genunum,“ segir hún brosandi. Hún kveðst halda þeim sið móður sinn- ar að byrja jólaföndur í ágúst og vera að allt haustið. „Við föndruð- um mikið saman og með vinkonum okkar,“ rifjar hún upp. Ebba hefur málað mörg jóla- stell og gefið bæði börnum sínum og vinum og ættingjum. Auk þess eru ótal aðrir hlutir sem hún hefur málað. En þegar hún ætlaði að fara að stilla upp jólaskrautinu í fyrra fannst ekki stór hluti þess. „Það hafði þá verið tekið svona hraustlega til í geymslunni. Þetta var jólabær sem hvarf og ýmislegt smádót,“ segir Ebba. Nú hefur hún endurnýjað birgðirnar og kveðst skipta alveg út skrauti í eldhús- hillum og sjónvarpsholi áður en aðventan gengur í garð. „Ég á tvo ganga af jólaskrauti þannig að ég er ekki alltaf með það sama,“ útskýrir hún. En er eitthvað sér- stakt í uppáhaldi? „Já, það sem móðir mín saumaði þykir mér alveg óskaplega vænt um. Hún sat oft og saumaði heilu næturnar því þá hafði hún frið. Svo finnst mér bara allt sem er handunnið óskap- lega mikils virði.“ Ebba kveðst alltaf hafa bakað frá 10 upp í 20 smákökusortir fyrir jólin og lokið því af í nóvember. Nú er hún hins vegar á danska kúrnum svo engar kökur verða á borðum þetta árið. Aðventan er mikill eftirlætis- tími hjá Ebbu. Fyrsta helgin þetta árið fór í Kaupmannahafnarferð að njóta jólastemningar og sá siður sem hún tók í arf eftir móður sína að bjóða í aðventukaffi færðist því aftur um eina helgi. „Ég hef aldrei neitt stress á aðventunni og ef eitt- hvað er ógert, þá bara sleppi ég því,“ segir hún og bætir við: „Ég nýt þess sem í boði er, fer á tón- leika og slaka á heima við kertaljós og jólatónlist.“ - gun Andi jólanna í genunum Ebbu Arngrímsdóttur handavinnukennara brá í brún er hún áttaði sig á að stórum hluta jólapostulínsins hafði óvart verið hent. Hún er búin að mála mikið síðan í ágúst. Ebba stressar sig ekkert á aðventunni heldur nýtur þess að fara á tónleika og slaka á heima. fréttablaðið/stefán Ebba er flink með pensilinn enda hefur hún stundað postulínsmálun frá 1980 og kennt handavinnu frá 1982. fréttablaðið/stefán ■■■■ { blessuð jólin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Handmálaðar postulínsstytturnar fara vel undir útsaumaða jólakransinum. fréttablaðið/stefán Það sem Ebba heldur hvað mest upp á er jólaútsaumurinn eftir móður hennar. fréttablaðið/hörður Mörg jólastell hefur Ebba málað. Þetta er hennar eigið. fréttablaðið/hörður Kórinn. fréttablaðið/stefán Þessar Betlehemsstyttur voru jólaútstilling Kirkjuhússins fyrir nokkrum árum og ekki til sölu fyrr en á aðfanga- dagsmorgun. Þá náði Ebba í þær. fréttablaðið/hörður Kærleikurinn skín út úr þessu handmálaða pari. fréttablaðið/stefán
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.