Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 67

Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 67
MARKAÐURINN 13MIÐVIKUDAGUR 13. DeseMbeR 2006 s k o ð u n Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var á meðal tvö þúsund starfsmanna í Bretlandi á vegum CIPD og birt er á vefn- um peoplemanagement.co.uk og onrec.com er sambandi á milli margra starfsmanna og yfirmanna líkt við hjóna- band sem komið er í krísu. Sambandið einkennist oft af lélegum samskiptum og litlu trausti sem leiðir af sér litla framleiðni, lélega frammistöðu og mikla starfsmannaveltu. Þú teKUR MIg seM sjálf- sAgÐAN hlUt … Fjórðungi (25 prósentum) starfsmanna finnst sjaldan eða aldrei að vinna þeirra skipti fyrirtækið máli og aðeins 38 prósent starfsmanna segja að yfirmenn og millistjórnendur komi fram við þá af virðingu. VIÐ tölUM eKKI sAMAN leNgUR … Um þriðjungur (30 prósent) seg- ist sjaldan eða aldrei fá end- urgjöf á frammistöðu frá yfir- manni. Þá segjast 42 prósent starfsmanna ekki fá upplýsingar um framgang mála í fyrirtæki sínu og aðeins 37 prósent starfs- manna finnst að viðhorf þeirra, skoðanir og álit hafi áhrif innan fyrirtækisins. Þú dRegUR úR MéR … Um 44 prósent starfsmanna finna fyrir óhóflegum þrýst- ingi einu sinni eða tvisvar í viku eða oftar og 22 prósent starfsmanna finna fyrir miklu álagi og stressi. ljóMINN eR fARINN … Um helmingur aðspurðra (43 prósent) er óánægður með samband sitt við yfirmann og um fjórðungur aðspurðra hlakkar sjaldan eða aldrei til að fara í vinnuna. ég tReystI ÞéR eKKI … Aðeins 37 prósent aðspurðra bera fullt traust til yfirmanna og 32 prósent starfsmanna eru óánægð með hvernig fyrirtæk- inu er stjórnað. ég VIl losNA …Um fjórðung- ur starfsmanna er óánægður með núverandi vinnu sína og 47 prósent eru að leita sér að nýju starfi eða eru að skipta yfir í nýtt starf. Þá kom fram í könnuninni að starfsmenn yfir 55 ára aldri voru tengdastir fyrirtækjunum en starfsmenn undir 35 ára voru líklegastir til að vera óánægðir. Catherine Truss, einn af höf- undum rannsóknarinnar, segir að hér sé augljóst hversu mikið vinnubrögð stjórnenda hafa áhrif á viðhorf starfsmanna til vinnu sinnar og það þurfi ekki að vera flókið ferli að bæta sambandið svo að starfs- fólki finnist það vera metið að verðleikum. sif sigfúsdóttir MA í mann- auðsstjórnun Hjónaband í hættu s t a r f s m a n n a s t j ó r n u n Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Forráðamenn fyrirtækja, stærri og smærri, vita að velgengni veltur ekki síst á ánægju starfsfólksins. VR stendur árlega fyrir könnuninni Fyrirtæki ársins en niðurstöðurnar veita forráðamönnum mikilvæga innsýn í viðhorf starfsmanna og eru dýrmætur mælikvarði á frammistöðu fyrirtækisins í starfsmannamálum. Fyrirtækjum stendur til boða að allir starfsmenn taki þátt í könnuninni, óháð því í hvaða stéttarfélagi þeir eru. Þannig geta allir sagt sinn hug og heildstæðari mynd fæst af stöðu fyrirtækisins. Nánari upplýsingar um Fyrirtæki ársins 2007 er að finna á vr.is. F í t o n / S Í A Fær fyrirtækið gæðastimpil frá starfsfólkinu? Desemberhlaupið er hafið og maður er auðvitað með í því. Það er gaman undir lok ársins að veðja á hvaða hestar hlaupa hraðast á lokaspretti ársins. Ég sagði um daginn að ég byggist ekki við að 365 færi niður fyrir 3,65. Ég hafði rangt fyrir mér. Ég hef alltaf verið maður til að við- urkenna þegar ég hef rangt fyrir mér. Þess gerist nánast aldrei þörf og þegar það gerist, þá opn- ast venjulega ný tækifæri. Þegar gengið fór niður fyrir mína spá, þá náttúrlega keypti ég. Rúmri viku síðar er maður kominn með fyrir öllum jólagjöf- unum. Annars er ég farinn að búa mig undir magurt ár, þó að loka- spretturinn á þessu lofi ágætu. Seðlabankinn mun sennilega gefa 50 punkta hækkun í jólagjöf og það óháð því hvort maður setur skóinn út í glugga eða ekki. Svo sýnist mér að allir stóru kall- arnir á markaðnum séu komnir í einhvern fjölmiðlaleik. Ég skil ekki hvað þeir eru að pæla með því. Það er aldrei hægt að stjórna umræðu um sig til lengdar og meiri hætta að maður lendi inn í umræðu með því að eiga í fjöl- miðlum. Þess vegna hef ég aldrei átt í fjölmiðlum, nema sem ósýni- legur skammtímafjárfestir. Það er fullt af tækifærum á þessum markaði til lengri tíma litið. Bankarnir verða á fullu næsta árið og margt spennandi að gerast hjá þeim. Þeir munu hins vegar gjalda á næsta ári fyrir samdrátt og einhver gjaldþrot sem óhjákvæmilega er fylgifisk- ur okurvaxtanna sem verða ráð- andi framan af ári. Það verður allavega meiri vinna en áður að halda góðum gangi í fjárfesting- unum. Ég held að maður dragi saman seglin á næstunni og bíði eftir bölsýninni. Kreppan 2001 til 2002 varð grundvöllur mikilla afreka hjá mér og ég ætla mér ekki minni hluti þegar hagkerfið fer á sving eftir samdrátt og svartsýni sem mun koma á næsta ári. Þetta hljómar allt saman frek- ar auðvelt. Það kunna flestir að lesa í hagsveifluna. Vandinn er hins vegar að láta ekki tilfinning- una á markaðnum sópa sér með. Það er auðveldara um að tala, en í að komast. Svipað og að hætta að reykja. „Það er enginn vandi að hætta að reykja, það hef ég oft gert,“ sagði Mark Twain og sama gildir um ákvarðanir á markaði. Þegar ég fór inn á markaðinn á þessum tíma sögðu margir vinir mínir að ég væri galinn. Þegar ég skuldsetti mig grimmt, þá afskrifuðu þeir mig alveg. Hvar er ég í dag og hvar eru þeir? Þeir eru launamenn, en ég minn eigin herra. Og hvílíkur herra. spákaupmaðurinn á horninu s p á k a u p m a ð u r i n n Búið að redda jólunum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.