Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 68

Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 68
MARKAÐURINN 13. desember 2006 mIÐVIKUdAGUr14 nýjasta tækni og vísindi jón aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Bandarísku fjölmiðla- og afþreyingarrisarnir News Corp., Fox, Viacom, CBS og NBC, eru sagðir eiga í viðræðum um að búa til vefsvæði þar sem sjón- varpsefni frá fyrirtækjunum verður birt.Vefsvæðið mun verða sett á laggirnar gegn YouTube. Bandaríska dagblaðið The Wall Street Journal segir málið hafa komið upp fyrr á árinu en viðræð- urnar eru skammt á veg komnar. Þá segir ennfrem- ur að markmiðið með stofnun vefsvæðisins sé að ná inn tekjum á ört stækkandi auglýsingamarkaði á Netinu og saxa þannig á markaðshlutdeildir svip- aðra vefja. Hugmyndin er að fyrirtækin muni eiga jafnan hlut í vefsvæðinu. Vöxtur í vefsvæðum þar sem boðið er upp á myndskrár hefur verið gríðarlegur á síðustu árum og nefna menn oft YouTube sem dæmi um vöxtinn. Vefsvæðið var sett á laggirnar fyrir tveimur árum en þar er netverjum gert kleift að birta myndbönd sín af ýmsu tagi. Þar á meðal er efni frá CBS og NBC, sem varið er höfundarréttarlögum. Daglegir notendur YouTube eru um 100 milljón talsins en netleitarfyrirtækið Google keypti fyr- irtækið fyrir 1,65 milljarða dali eða 114 milljarða íslenskra króna fyrir skömmu. youtube Bandarískir fjölmiðlarisar eru sagðir hafa í hyggju að setja á laggirnar vefsvæði til höfuðs YouTube. Markaðurinn/aFP Fjölmiðlarisar fara gegn YouTube Hagsmunahópur sem berst fyrir betri ferðarafhlöðum segir örugg- ari rafhlöður fyrir fartölvur verða að líta dagsins ljós á næstunni. Hópurinn nefnist The Portable Battery Working Group og eiga fulltrúar frá nokkrum tölvu- fyrirtækjum sæti í honum. Hópurinn var settur saman eftir að japanska hátækni- fyrirtækið Sony varð að innkalla rúmlega 10 milljón rafhlöður fyrir fartölvur á heimsvísu frá nokkrum af stærstu fartölvuframleið- endum í heimi á haustdög- um. Galli í rafhlöðunum varð til þess að hætta var á að þær ofhitnuðu og kviknaði í þeim í einhverjum tilfell- um. - jab fartölva frá toshiba Hópur á vegum tölvuframleið- enda krefst betri rafhlaða fyrir fartölvur í framtíðinni. Krefjast öruggari rafhlaða í fartölvur Nýjasta leikjatölvan frá Nintendo, Wii, rauk hraðar út en heitar lummur þegar fyrsta sendingin kom til landsins á fimmtudag í síðustu viku. Fjöldi manns hafði lagt inn pöntun fyrir tölvunni en þar sem færri leikjatölvur bárust til landsins en vonir stóðu til varð að draga úr hatti hverjir fengju eintak. Rúnar Hrafn Sigmundsson, sölumaður hjá Ormsson, umboðsaðila Nintendo á Íslandi, segir svo mikla eftirspurn eftir nýju leikjatölvunni Evrópu að dreifingaraðili Nintendo í Þýskalandi hafi séð sig neydd- an til að dreifa leikjatölvunum bróðurlega á milli umboða í álfunni. Hafi því um þriðjungi færri leikjatölvur komið hing- að til lands en gert hafði verið ráð fyrir. Mikil eftirspurn hefur verið um allan heim eftir Wii-tölv- unni, og í Bandaríkjunum hefur hún selst þrisvar sinnum betur en nýja leikjatölvan frá Sony, Playststation 3. Þá spillir verðið ekki fyrir en Nintendo Wii kostar tæpar 30.000 krónur hjá Ormsson samanborið við um 50.000 krónur sem búist er við að PS3 muni kosta þegar hún kemur á markað í Evrópu í mars á næsta ári. Rúnar segir tvær sendingar af leikjatölvunni koma hingað fyrir jólin, þar af ein nú í vik- unni, til að tryggja að allir þeir sem bíða eftir hörðum pakka fyrir jólin verði ánægðir. - jab Wii-tölvan uppseld Bandaríski hugbúnaðar- risinn Microsoft stefnir að því að selja rúm milljón eintök af Zune, nýja spila- stokknum sem fyrirtækið framleiðir, á fyrri helmingi næsta árs. Microsoft setti Zune- spilarann á markað um miðjan síðasta mánuð til höfuðs iTunes-spilastokkn- um frá Apple, sem hefur selst í um 70 milljónum ein- taka á síðastliðnum fimm árum. Zune-spilarinn á hins vegar nokkuð í land með að velta iTunes-stokknum úr toppsætinu því sala hefur verið minni en væntingar stóðu til og er hann í 5. sæti yfir mest seldu spilastokka af svipaðri gerð með ein- ungis um tveggja prósenta markaðshlutdeild. Þá hafa gagnrýnendur tækjabúnaðar og neytendur ekki gefið spilaranum jafn góða dóma og horft var til. Talsmaður Microsoft er þrátt fyrir þetta bjartsýnn á framhaldið og segir söl- una munu taka við sér. „Við horfum ekki á sölutölur á milli vikna heldur á heild- arsöluna yfir lengra tíma- bil,“ sagði hann. Zune-spilarinn er með 30 gígabæta hörðum diski og er með þráðlausri tækni, sem gerir notend- um hans kleift að senda myndir og lög á samþjöpp- uðu formi sín á milli án þess að snúrur komi nokk- uð við sögu. - jab zune-spilari Microsoft stefnir á að selja allt að eina milljón spilastokka á fyrri hluta næsta árs. Markaðurinn/aFP Microsoft stefnir hátt með Zune nintendo Wii leikjatölva Svo mikil eftir- spurn hefur verið eftir nýjustu leikjatölvunni frá nintendo að skipta varð eintökum bróðurlega á milli umboða í Evrópu. Peningamarka›ssjó›ir eru fjárfestingarsjó›ir skv. lögum nr. 30/2003 um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingar- sjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is. Ávöxtun í dollurum P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ I R Kynntu flér kosti Peningamarka›ssjó›a KB banka í ISK, USD, EUR og GBP. *Nafnávöxtun í EUR, USD og ISK á ársgrundvelli fyrir tímabili› 01/11/06-01/12/06. 4,4%* ávöxtun í evrum 5,5%* ávöxtun í dollurum 13,4%* ávöxtun í krónum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.