Fréttablaðið - 13.12.2006, Qupperneq 100

Fréttablaðið - 13.12.2006, Qupperneq 100
Hvað er það við ungæðislegt rokk sem er svona heillandi? Stundum geri ég mér ekki lengur grein fyrir því. Tökum þessa sveit hér sem dæmi, The Gossip. Ég myndi aldrei láta hafa það eftir mér að þessi sveit væri þétt eða vel spil- andi. Við fyrstu hlustun minnti hún mig á landsbyggðarkvöldið á Músíktilraunum. Ég myndi meira að segja halda því fram að þessi plata hljómar fremur illa. Hljóð- færin eiga það meira að segja til að vera rammfölsk. En af ein- hverjum óútskýranlegum ástæð- um er þetta með betri rokkplötum sem ég hef heyrt á árinu. Helsta ástæða þess er líklegast söngkonan með Bjarkar augna- ráðið, Beth Ditto, sem var nýlega valin „svalasta fígúra rokksins“ í NME. Hún er ekki bara fyrsta konan sem fær titilinn, heldur líka fyrsta lesbían og fyrsti einstakl- ingurinn þyngri en hundrað kíló. Hún hefur þykka og góða rödd sem myndi henta svartri soul- söngkonu en þessi bleiknefjaða snót velur að syngja pönkskotið rokk með beittum ádeilutextum. En það sem heillar mann strax upp úr skónum er hversu mikið hún gefur af sér. Hún skiptir beint úr því að bræða mann eins og smjörlíki með blíðum raddlykkj- um yfir í fimmta gír, þar sem röddin bjagast í hálsinum á henni. Hljóðfæraskipanin er eins og hjá Yeah Yeah Yeah´s. Eina spilið undir rödd Beth er trommusláttur frá stelpu sem heldur rétt svo takti, og leikur stráks sem þarf að læra að stilla gítarinn sinn betur. Þau hafa þó góða tilfinningu fyrir því hvað virkar, þegar kemur að riffum og upplífgandi töktum. Það er mikill neisti í þessu, það fer ekki á milli mála. Þetta er ein af þessum plötum sem vex og vex við hverja hlustun þangað til að hún er orðin svo stór hluti af lífi manns að maður er reiðubúinn til þess að gefa þó nokkuð mikið til þess að sjá þau spila á tónleikum. Tja, a.m.k. and- virði tveggja bíómiða, eða svo. Í laginu „Yr Mangled Heart“ syng- ur Beth með mikilli innlifun, „I don´t want the World. I just wan´t what I deserve!“. Hún á eftir að fá það og þó nokkuð meira en hún ætlast til. Kannski að heimurinn fylgi með í kaupbæti? Birgir Örn Steinarsson !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 80þúsund gestir MEÐ ÍSLENSKU TALI 5 edduverðlaun MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á FORSALA AÐGÖNGUMIÐA ER HAFIN Á MIDI.IS - ATH: EINNIG ER HÆGT AÐ VERSLA MIÐA Í FÖRSÖLU Í KVIKMYNDAHÚSUM Jólamyndin 2006 Frábær jólamynd fyrir alla fjölskylduna! 40þúsund gestir DAVID EDWARDS, DAILY MIRROR AUBRAY DAY, TOTAL FILM “SIGUR” “MÖGNUД “FRÁBÆR” DEBORAH ROSS, THE SPECTATOR “STÓRFENGLEG” CHARLES GANT, HEAT JONATHAN ROSS, FILM 2006 ZOO MARK ADAMS SUNDAY MIRROR MATTHEW BOND, THE MAIL ON SUNDAY CASINO ROYALE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 6 500 KR. HÁTÍÐ Í BÆ kl. 5.50, 8, 10.10 THE NATIVITY STORY kl. 8 B.I. 7 ÁRA MÝRIN W.ENGLISH SUBTITLES kl. 6 og 10.10 B.I. 12 ÁRA BORAT kl. 8 og 10 THE HOLIDAY kl. 5.10, 8 og 10.45 CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 10.50 B.I. 14 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50 HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 3.40 500 KR. HÁTÍÐ Í BÆ kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 3.40 BORAT kl. 10.20 B.I. 12 ÁRA MÝRIN kl. 5.40 B.I. 12 ÁRA THE HOLIDAY kl. 8 og 10.30 HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 6 500 KR. HÁTÍÐ Í BÆ kl. 6 SAW III kl. 8 og 10.15 W.ENGLISH SUBTITLES IN REGNBOGINN Beth Ditto eignast heiminn tónliSt Standing in the Way of Control The Gossip HHHH Frumraun The Gossip er stórkostleg. Rokkið hefur eignast nýja súperstjörnu með söngkonunni Beth Ditto. Fyrsta plata hljómsveitarinnar Brooklyn Fæv, Góð jól, er komin út. Á plötunni eru þekktir jóla- smellir sem Brooklyn Fæv gera að sínum með rödduðum söng án undirleiks. Íslenskir textar hafa verið gerðir við nokkur af eldri lögunum og á Bragi Valdimar Skúlason heiðurinn af þeim. Brooklyn Fæv sló fyrst í gegn árið 1998 þegar hún vann Söngva- keppni framhaldsskólanna. Sama ár kom út jólalagið Sleðasöngur- inn. Fyrir tveimur árum kom síðan út annað jólalag, Einmana á jóla- nótt. Bæði þessi lög eru á plötunni auk níu laga til viðbótar, þar á meðal Góða ósk um gleðilega hátíð. Er það íslensk útgáfa af laginu Have Yourself a Merry Little Christmas og er enginn annar en Raggi Bjarna gestasöngvari. „Hann er mesti töffari Íslands- sögunnar held ég,“ segir Davíð Olgeirsson, einn af fimm meðlim- um Brooklyn Fæv. „Þegar við vorum að æfa í sumar komumst við fljótlega að því að það væri bara einn maður á Íslandi sem gæti sung- ið Have Yourself a Merry Little Christmas. Ég held líka að þetta sé fyrsta lagið sem hann syngur án undirleiks,“ segir hann. - fb Raggi Bjarna á jóla- plötu Brooklyn Fæv Brooklyn fæv og raggi Bjarna Aðalsteinn Jón Bergdal, Davíð Þ. Olgeirs- son, Karl Sigurðsson, Kristbjörn Helga- son og Viktor Már Bjarnason, ásamt gestasöngvaranum Ragga Bjarna. Jennifer Hudson heitir nýjasta stjarna Hollywood, en hún fer með eitt aðal­ hlutverkanna í kvikmynd­ inni Dreamgirls sem hefur gert það afar gott í Banda­ ríkjunum á haustmánuðum. Jennifer kom fyrst fram í þriðju seríu af sjónvarpsþættinum American Idol, þar sem hún komst áfram í tíu manna hópinn en féll svo úr leik stuttu síðar. Óhætt er að segja að Jennifer hafi nú náð meiri frama en sigurvegari keppninnar, en margir gagnrýnendur spá að frammistaða hennar í kvikmynd- inni muni tryggja henni tilnefn- ingu til Óskarsverðlaunanna, en nú um helgina lenti hún í öðru sæti í flokknum besta leikkona í auka- hlutverki þegar kvikmyndaverð- laun gagnrýnendasamtaka Los Angeles voru veitt. Sagði meðal annars söngvarinn Elton John að kynþáttur stúlkunnar hafi ráðið ferð þegar hún féll úr Idol, en hann telur að Bandaríkjamenn hafi síður viljað svartan sigurvegara tvö ár í röð, en Ruben Studdard vann keppnina árið áður. Allt kom þó fyrir ekki og ung stúlka að nafni Fantasia vann keppnina. Kvikmyndin Dreamgirls er endurgerð á samnefndum söng- leik frá árinu 1981 og rekur hún sögu stúlknasveitar á Motown- árunum og hvernig þær hægt og rólega ná heimsfrægð með öllum þeim vandamálum sem því fylgir. Ásamt Jennifer leika í kvikmynd- inni söngkonan Beyoncé Knowles, Eddie Murphy, Jamie Foxx og Danny Glover. Er sagt að Jennifer gefi Beyoncé ekkert eftir á hvíta tjaldinu, hvorki í leik né söng, en segir Jennifer sjálf að það hafi verið undarlegt að leika við hlið Beyoncé þar sem hún hafi verið hennar helsti aðdáandi um árabil. Dreamgirls er fyrsta kvikmynd Jennifer og alveg örugglega ekki sú síðasta. dori@frettabladid.is Hudson slær í gegn jennifer hudSon Slær í gegn í nýrri mynd sem ber heitið Dreamgirls, en þar leikur hún gegn Beyoncé Knowles, Eddie Murphy og Jamie Foxx. HEIMSFRUMSÝND 15. DESEMBER Vinningar eru miðar fyrir tvo, Eragon bókin, Eldest bókin, Eragon tölvuleikurinn, DVD myndir tölvuleikir og margt fleira! Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T S m ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S k lú bb . 9 9 kr /s ke yt ið .
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.