Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 106

Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 106
50 13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR fótboltI Eiður Smári og félagar hans í Barcelona mæta mexíkóska liðinu Club America í Heimsmeist- arakeppni félagsliða í knattspyrnu í dag. Þetta er eini titillinn sem Barcelona hefur ekki unnið og Ronaldinho segir leikmenn liðsins ólma í að vinna þennan bikar. „Okkur langar til að vinna og það eru margar ástæður fyrir því, en aðallega samt vegna þess að Barca hefur aldrei unnið þennan bikar. Við erum hjá Barcelona til að komast á spjöld sögunnar og þetta er sérstakur bikar. Önnur ástæða er að ef við vinn- um þá væri það góður endir á frá- bæru ári hjá okkur. Það er hægt að segja að við séum bestir í heimi, við erum bestir á Spáni, í Evrópu og vonandi getum við sagt það sama hér. Að eiga möguleika á að vinna titil sem enginn annar leikmaður í sögu Barcelona hefur unnið gefur þessu aukið gildi,“ sagði Ronaldin- ho en keppnin fer fram í Tokyo í Japan. Leikurinn er í undanúrslitum keppninnar en Club America hefur þegar spilað einn leik í keppninni til þess. Xavi miðju- maður Barcelona sagði að Club America kæmu líklega betur und- irbúnir til leiks gegn Barcelona. „Þeir hafa verið hér um tíma og eru búnir að aðlagast aðstæðum hér. Við erum bara nýkomnir en það er engin afsökun af því að fólk ætlast til að við vinnum þennan bikar,“ sagði Xavi. Sigurliðið í leik Barcelona og Club America mætir annaðhvort brasilíska liðinu Internacional eða egypska liðinu Al-Ahly. - dsd Barcelona mætir Club America í dag í Heimsmeistarakeppni félagsliða í knattspyrnu í Tókýó í Japan: Eini titillinn sem Barca hefur ekki unnið eiður mættur til tokyo Leikmenn Barcelona komu til Tokyo á mánudaginn og hér er Eiður Smári nýkominn úr flugvélinni. nordic phoToS/afp foRMúlA 1 Breski ökuþórinn Jenson Button verður frá æfingum fram á næsta ár en hann slasaðist á rifjum fyrir nokkru í go-kart keppni. Button hefur ekkert getað æft með Honda liðinu frá því að tímabilinu lauk og mun ekki æfa með liðinu í Jerez á Spáni í síðustu æfingu ársins. „Við höfum fylgst með batanum undanfarnar vikur og erum ánægðir að segja að hann gengur mjög vel. Við viljum ekki taka neinar áhættur og því mun Button ekki æfa með okkur í Jerez í þessari viku,“ sagði talsmaður Honda. - dsd Honda-liðið í Formúlu 1: Button frá fram á næsta ár jenson button Meiddist í go-kart fyrir nokkrum vikum. nordic phoToS/gETTy fótboltI Frakklandsmeistarar Lyon hafa neitað því að félagið ætli sér að kaupa franska landsliðsmanninn Frank Ribery í janúar. Milan Baros hefur einnig verið orðaður við félagið en Lyon- menn neita þeim orðrómi einnig. Forseti Lyon, Jean-Michel Aulas, hefur fengið lista í hendurnar yfir þá leikmenn sem Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóri félagsins, vill kaupa. „Houllier lét mig fá lista yfir leikmenn en leikmaðurinn þarf að vera til sölu. Frank Ribery er ekki til sölu,“ sagði Aulas. Houllier útilokaði kaup á Baros. „Baros mun ekki koma hingað, ég ætla ekki að segja það aftur,“ sagði Houllier. - dsd Frakklandsmeistarar Lyon: Munum ekki kaupa Ribery fótboltI Steve McManaman, fyrrum leikmaður Liverpool, Real Madrid og enska landsliðsins er á leið til Hong Kong til að spila knattspyrnu með fyrstu deildar- liðinu Hong Kong Rangers samkvæmt dagblaðinu The South China Morning Post. Blaðið segir að McManaman muni ganga í raðir félagsins fyrir árslok. McManaman er 34 ára gamall og hefur ekki leikið knattspyrnu síðan hann yfirgaf Manchester City sumarið 2005. Hann hefur að undanförnu starfað við íþróttalýs- ingar á sjónvarpsstöðinni ESPN Star í Asíu og hefur einnig komið nálægt gerð myndarinnar Goal! 2 sem er framhald myndarinnar Goal! sem kom út árið 2005. - dsd Fyrrverandi Liverpool-hetja: McManaman til Hong Kong? mcmanaman Lék aðeins 25 leiki með Manchester city á tveimur tímabilum. nordic phoToS/gETTy íþróTTaLjóS dagur sveinn dagbjartsson dagur@frettabladid.is hAnDboltI Fréttablaðið birti í síð- ustu viku viðtal við Júlíus Jónas- son, kvennalandsliðsþjálfara í handbolta, þar sem hann varpaði fram þeirri tillögu að fækka leik- mönnum á leikskýrslu úr fjórtán í tólf í þeim tilgangi að skapa fleiri alhliða leikmenn, sem gætu leyst fleiri en eina stöðu í sóknarleik. Einnig talaði Júlíus um að með þessu gæti svo farið að góðir leik- menn sem væru á bekknum hjá bestu liðunum myndu færa sig um set, sem gæti jafnað deildina. Fréttablaðið fór á stúfana og tók tal á þjálfurum liðanna í DHL- deild kvenna og karla og kannaði afstöðu þeirra til málsins. Í dag verður púlsinn tekinn á þjálfurum DHL-deildar kvenna. aðalsteinn ósammála júlíusi Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar, var alls ekki sam- mála Júlíusi í þessu máli. „Þjálfari reynir að nota breiddina til að við- halda ákveðnum hraða í leiknum og leikmenn þurfa að geta komið útaf til að hvíla sig. Það hlýtur að vera gott fyrir gæði handboltans að liðin hafi góða breidd, þá leggja leikmenn meira að sér til að kom- ast í liðið. Mér finnst þetta ódýr lausn. Mér finnst þetta ekki vera vanda- mál liðanna sem eru að gera vel í sínum málum. Það er greinilega eftirsóknarvert að vera í Stjörn- unni og Val þar sem verið er að vinna góða vinnu og mér finnst að hæstvirtur landsliðsþjálfari ætti að hjálpa litlu liðunum eða liðun- um sem eru ekki að vinna vinnuna sína. Er ekki eðlilegra að þau lið fari að gera betur heldur en að hin liðin fari að dreifa því sem þau gera vel, svo að hinum vegni betur? Það hefur verið markvisst stefnt að því í Stjörnunni að láta leikmenn spila fleiri en eina stöðu. Það getur vel verið að það vanti fleiri alhliða leikmenn en það þarf þá að byrja á því í yngri flokkum og í yngri landsliðum Íslands,“ sagði Aðalsteinn. Ágúst ekki spenntur Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, viðurkenndi að hann hefði lítið velt þessu fyrir sér. „Einhverjar hljóta ástæðurnar að vera fyrir því að leikmenn sækjast í þessi félög og okkar megin þá er langt frá því að það séu peningarnir. Eitthvað annað er það, hvort það sé umgjörðin eða hvað. Við erum ekki með fulla vasa af peningum en við segjum ekki nei við þá leikmenn sem vilja spila fyrir okkur. Ég er svo sem ekkert voðalega sammála því að fækka niður í 12 leikmenn. Það yrði kannski til þess að æfingahópur- inn yrði minni og það gæti þess vegna verið að gæðin yrðu minni á æfingum og það gerði það að verk- um að liðin yrðu ekki eins góð,“ sagði Ágúst. Vill sleppa útlendingum Haddur Stefánsson, þjálfari Akureyrar, er aftur á móti mjög hlynntur tillögu Júlíusar og vill ganga enn lengra. „Ég er alveg sammála þessu. Ég er meira að segja svo stórtækur að mér finnst að það ættu að vera mörk á því hversu margir útlendingar mættu vera í deildinni og annað. Helst vildi ég sleppa útlendingum í íslensku deildinni og hafa bara íslenska leikmenn. Við erum með fullt af stelpum sem bera ekki nógu mikla ábyrgð í sínum félags- liðum. Ég vil líka meina að það væri hægt að gera miklu betur við íslensku stelpurnar ef peningnum yrði eytt í þær en ekki í útlend- inga. Ég held að það yrði líka meiri samkeppni innan hópsins um að vera einn af þessum tólf leikmönn- um en að vera einn af þessum fjór- tán,“ sagði Haddur. Halldór Kristjánsson, þjálfari FH, sagðist vera nokkuð sammála Júlíusi. „Ef við tökum mína stöðu sem dæmi þá hef ég varla fjórtán leik- menn til að skrifa upp á. Þetta myndi kannski verða til þess að þær góðu stelpur sem sitja á bekknum hjá þessum góðu liðum myndu hugsa sinn ganga en hvort það myndi styrkja deildina eða ekki veit ég ekki. En að hafa fjór- tán leikmenn býður líka upp á að leyfa ungu stelpunum að spreyta sig,“ sagði Halldór. ekki viss um þessar hugmyndir Alfreð Finnsson, þjálfari Gróttu, tók ekkert alltof vel í þessa hug- mynd Júlíusar. „Staðreyndin er sú að flest liðin eiga í vandræðum með að manna fjórtán manna hóp en það er svolítið viðloðandi kvennaboltann að bestu leikmenn- irnir vilja hópast saman í fá lið. Það getur vel verið að það sé hættuleg þróun. Ég er samt ekkert viss um að þessar hugmyndir myndu vera handboltanum eitthvað til fram- dráttar. Þetta yrði til þess að erfið- ara yrði að gefa ungum leikmönn- um tækifæri og að því leyti er ég ekki fylgjandi þessu,“ sagði Alfreð. Einar Jónsson, þjálfari Hauka, tók jákvætt í þetta. „Ég held að þetta gæti alveg haft góð áhrif. Að mínu mati eru bara þrjú lið í dag með stóran hóp og kannski hefði þetta helst áhrif hjá þeim. Þetta yrði kannski til þess að dreifa betri leikmönnunum,“ sagði Einar. allar elta þær vinkonur sínar Díana Guðjónsdóttir hjá HK sagði að leikmenn sjálfir þyrftu að líta í eigin barm. „Ég skil alveg hvert hann er að fara en það ljóst að hann hefur ekki verið lengi í kvennaboltanum af því að stelpur hugsa alltof mikið um það í dag að leggja metnað- inn sinn aðeins til hliðar og vilja vera þar sem vinkonurnar eru. Ég skil ekki af hverju þessar stelpur eru allar að hópast í sömu liðin. Ég veit ekki hvort þetta myndi breyta einhverju,“ sagði Díana. Einar Jónsson, þjálfari ÍBV, var mjög hlynntur þessari tillögu. „Ég er algjörlega sammála þessu. Fyrst og fremst held ég leikmenn- irnir myndu dreifast meira á liðin. Það eru heldur ekki mörg lið að nota fjórtán leikmenn í leik,“ sagði Einar. Magnús Jónsson, þjálfari Fram, var aftur á móti ekki sammála til- lögu Júlíusar. „Eins og staðan er í dag þá held ég að það sé skynsam- legra að hafa fjórtán leikmenn, allavega ef ég tala fyrir mig. Ég er bara með svo marga leikmenn,“ sagði Magnús Jónsson. Á morgun koma fram viðbrögð þjálfara í DHL-deild karla. Misjöfn viðbrögð við tillögu júlíusar Þjálfarar í DHL-deild kvenna taka misvel í þá hugmynd Júlíusar Jónassonar, þjálfara kvennalandsliðs Ís- lands, um að fækka leikmönnum liða úr fjórtán í tólf á skýrslu. Fréttablaðið tók púlsinn á þjálfurunum. íslenska kVennalandsliðið júlíus jónasson hefur ákveðnar skoðanir um það hvernig bæta mætti kvennahandboltann en ekki eru allir sammála honum. fréTTaBLaðið/Tihi jovanovic
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.