Réttur


Réttur - 01.06.1955, Page 6

Réttur - 01.06.1955, Page 6
134 RÉTTXJR aðeins „slormfuglinn' , heldur og „boðbera stormsins", þar sem hann boðar eigi aðeins hinn komandi storm, HELDIJR KALLAR HANN TIL SÍN". Hinn gamli bolsévikki, Jemeljan Jaroslavski, segir í grein, sem heitir „Vegur verkalýðssk.-ildsins í banni laganna", eftirfarandi um upphaf tuttug- ustu aldar: „Svo komu „Vorlög" Gorkis, scm voru prentuð og afrituð, en einkum hafði „Stormfugl" Gorkis, þessi bar- áttusöngur byltingarinnar, djúpstæð á- lirif. Það er vart til nokkurt rit í bók- menntum vorum, sem hefur verið gef- ið eins oft út og „stormfugl" Gorkis. hað var gefið út í hverjum cinasta bæ, því var dreift vélrituðu og fjölrituðu, það var handskrifað, það var lesið upp í leshringum verkamanna og stúdenta. Að líkindum kom „Stormfuglinn" á þessum árum út í milljónum cintaka. I>að er engum efa bundið að herhvöt Gorkis og logandi baráttukvæði hans — „Stormfuglinn", „Kvæðið um fálk- ann" — höfðu eins mikil byltingará- hrif á fólkið og ávörpin frá einstökum deildum flokksins, jafnvel gáfu sjálf- ar flokksnefndirnar oft út cggjanir Gorkis og tryggðu þeim þannig mikla útbreiðslu á meðal fjöldans". Kvæðið um „stormfuglinn" var citt af þeim verkum Gorkis, sem Lenin elskaði mest og vitnaði oft I. Stophan G. Stephansson (Tetkning eftlr Ríkarð Jónsson) Stephan G. Stephansson ræðir cinnig um „Stormfugl" Gorkis í sinni snjöllu ræðu „Hægt cr að þreyja þorrann og góuna". Hann kcrnst svo að orði, er hann lýsir samveru sinni í járnbrautarvagninum í Kanada með „rússneskum stritvinnumönnum og hversdagsklæddum", er voru að syngja söngva sína: „Rússarnir fóru að syngja sína söngva og sungu um stund. Auðvitað þekkti ég ekki það, sem þeir fóru með, hvorki Ijóð né lag. En það lét svo mjúkt og mæ3u- lega, að ég hlýddi á það hljómklökkur, eins og vetrarkvíðann heima, þegar hann gjálfraði fyrir golunni úti fyrir gluggaþekjunni, eða þegar ég heyri súginn þjóta í sölnuðu skógarlaufinu hérna á haustin. Vagnstjórinn hastaði nú á Rússana herralega, til eftirlætis við okkur ekki —

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.