Réttur - 01.06.1955, Blaðsíða 40
168
RÉTTTJR
saman, til þess að tryggja byggðum Mið-Vesturlands næga
raforku.
Að þegar verði hafin virkjun Efri-Sogsfossa til að full-
nægja hraðvaxandi raforkuþörf Suðvesturlands.
Að orkuverin norðanlands verði tengd saman og véla-
kostur þeirra aukinn, til þess að þegar virkjað afl þessara
orkuvera notist til fulls.
III. Ýmis hagsmima- og réttindamál verkalýðsins
og verkalýðssamtakanna
1. Breytt verði gagngert um stefnu í húsnæðis- og hús-
byggingamálum, þannig að íbúðahúsabyggingar og leiga
íbúðarhúsnæðis lendi ekki í braski, eins og nú á sér stað,
heldur séu byggingar íbúða miðaðar við þarfir almennings,
og gróðasjónarmið milliliða verði útilokuð.
Stefnt skal að því að gera mönnum kleift að fá sómasam-
legar íbúðir til umráða fyrir 10% af mánaðarlaunum sín-
um, og sé vaxtaafsláttur gefinn barnmörginn f jölskyldum.
Að því takmarki sé stefnt að útrýma óhæfu íbúðarhúsnæði
í sveitum og við sjó á næstu f jórum árum.
2.1 sambandi við lagasetningu um atvinnuleysistrygging-
ar séu verkalýðssamtökunum tryggð full umráð yfir vörzlu
og ávöxtun atvinnuleysissjóðanna í bönkum og sparisjóð-
um, og njóti lán til byggingar verkamannabústaða for-
gangsréttar.
Verkalýðssamtökin skulu hafa meirihluta í stjórn bygg-
ingasjóðs verkamanna — eins og bændasamtökin hafa
meirihluta í stjórn Byggingar- og landnámssjóðs.
3. Komið verði á lagasetningu um rekstursráð stórra at-
vinnufyrirtækja á líkum grundvelli og nágrannaþjóðir okk-
ar á Norðurlöndum hafa komið á hjá sér.
4. Tryggingalöggjöfin verði vandlega endurskoðuð og
endurbætt.
5- Ríkissjóður leggi fram stofnfé til verkalýðsskóla og