Réttur - 01.06.1955, Blaðsíða 46
174
RÉTTUR
stjórnar og framkvæmd stefnuskrár þeirrar, sem nú er
til umræðu, er þýðingarmesta hagsmunamál verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Flokksþingið álítur það brýnasta verkefni þjóðarinnar
að mynda ríkisstjórn, sem hnekkir yfirráðum hermangara-
og einokunarauðvaldsins, hefur að nýju uppbyggingu at-
vinnulífsins í þeim landsfjórðungum, er eyðingin vofir nú
yfir og stefnir að því að setja vinnu handa og heila í önd-
vegi í þjóðfélaginu.
Óhugnanlegustu fyrirbærin í þjóðlífinu eiga rætur sínar
að rekja til hnignunar og rotnunar auðvaldsskipulagsins
sjálfs. Þess vegna verður Sósíalistaflokkurinn jafnan að
vera minnugur þess, að takmarkið er afnám auðvalds-
skipulagsins, enda þótt ráðstafanir vinstri ríkisstjórnar
myndu á núverandi stigi stórauka einkareksturinn á ýms-
um sviðum. Verkefni ríkisstjórnar, sem styður sig við al-
þýðusamtökin, er eins og nú standa sakir, að hnekkja valdi
einokunarauðvaldsins og hinna erlendu bandamanna þess
í íslenzku efnahagslífi, tryggja stjómmálalegt og efna-
hagslegt sjálfstæði þjóðarinnar og tryggja afkomu og
efnahagslegt öryggi alþýðunnar til sjávar og sveita.
En skilyrðið til þess, að allt þetta gerist og leiði til vel-
famaðar almennings, er að ríkisvaldið sjálft sé hrifið úr
höndum hermangara- og einokunarauðvaldsins og komist í
æ ríkara mæli undir áhrif alþýðunnar sjálfrar og samtaka
hennar. Með því vinnst það tvennt í senn, að verndað yrði
og varið það lýðræði og þau lýðréttindi, er alþýðan nú
nýtur og komið í veg fyrir, að braskarastéttin taki sér
stjórnmálalegt alræði, — og hitt að alþýðan geti hafið
sókn fram til þjóðfélags samvinnu og sameignar, þjóðfélags
sósíalismans".
Þingrof og kosningar — Alþýðusambandið gengst
fyrir alþýðufylkingu í kosningunum
Vegna hins þunga straums til vinstri og ólgunnar í