Réttur - 01.06.1955, Blaðsíða 39
RÉTTUR
167
ir upp til móttöku á miklu magni af togarafiski. Þar verði
reist stór hraðfrystihús, komið upp fiskherzlu, saltfiskverk-
un og fiskimjölsverkun. Hafnaraðstaðan verði á slíkum
stöðum gerð góð fyrir stór fiskiskip, og þar verði fáanleg-
ar allar nauðsynjar til togarareksturs.
4. Fiskiðjuver verði reist, svo að unnt sé að vinna úr
aflanum innanlands. Skulu þau annaðhvort vera bæjareign
eða rekin af samvinnusamtökum sjómanna og útgerðar-
manna og skila réttu verði til þeirra.
5. Vextir af útgerðarlánum verði stórlega lækkaðir og
olíur, salt, veiðarfæri og aðrar nauðsynjar útgerðarinnar
útvegaðar með réttu verði.
6. Breytt verði þegar reglugerðarákvæðmn um hið frið-
lýsta svæði bátaflotans fyrir Vestfjörðum, Norðurlandi
og Austf jörðum, og með því lagður grundvöllur að farsælli
bátaútgerð þessara landshluta.
Stefnt sé að stækkun landhelginnar a.m.k- í 16 sjómílur
frá yztu eyjum og töngum og landgrunnið allt lagt undir
íslenzka lögsögu.
7. Landbúnaðurinn sé efldur, og aðgerðir allar í þeim
efnum miðaðar við það, að lífskjör og aðstaða þess fólks,
sem í sveitunum býr, sé ekki lakari en verkalýðsins við
sjávarsíðuna.
Lánsf jármagn til ræktunar og bygginga í sveitum sé auk-
ið, og lánin veitt til langs tíma með lágum vöxtum.
8. Allar þær greinar iðnaðar, sem þjóðhagslega eiga rétt
á sér, skulu efldar með aðstoð ríkisvaldsins.
Stóriðjufyrirtæki, svo sem áburðarverksmiðja, skulu
vera í eign ríkisins.
9.1 raforkumálum sé við það miðað, að Austfirðingar og
Vestfirðingar f ái raforku — ekki aðeins til heimilisnotkun-
ar og smáiðnaðar, heldur einnig til stóriðnaðar.
Að sæstrengur tengdur kerfi Sogsvirkjimar verði lagður
til Vestmannaeyja.
Að orka Þiðriksvallavatns, Fossár á Snæfellsnesi og
Andakílsárfossa verði fullnotuð, og þessi orkuver tengd