Réttur - 01.06.1955, Blaðsíða 13
RÉTTTJR
141
innilega og þá menn innlenda sem mæla þeim uppí eyrun; þeir
virða þá yfirleitt ekki viðtals nema til að skipa þeim fyrir verkum.
Það liggur í hlutarins eðli að útlendur ásælnismaður virðir þann
íslendíng einan sem stendur fast á sjálfstæði og fullveldi lands
síns. Ef mótmæli gegn útlendri ásælni og yfirgángi aldrei þagna
með þjóðinni; ef það er gegn skýrum vilja landsfólksins, ekki
síst þeirra sem skipa trúnaðarstöður, að hervæddir útlendir þrá-
setumenn traðka hér tún og haga, þá erum við sjálfstæðir hvað
sem við kunnum að vera kallaðir þjóðréttarlega. Land verður
ekki heldur ósjálfstætt þó útlent stríðsfólk troði landsfólkinu um
tær; menn eru ekki orðnir ósjálfstæðir að marki fyren þeir biðja
útlendíngana að gánga á sér. Það er eingin kúnst að vera sjálf-
stæður ef ekkert aðvífandi vald hefur reynt að troða mönnum
um tær. Þegar japanar höfðu troðið sér mitt inn í Kína, í minnum
þeirra manna sem nú lifa, og sest upp meðfram fljótum og öðrum
samgaunguæðum, og meira að segja fluttu þángað með sér nú-
tímatækni sem var í sjálfu sér gott, þá sátu þeir í landinu gegn
mótmælum allrar kínversku þjóðarinnar, og augnvum datt í hug
að þeir mundu haldast þar við til leingdar. Ef tíu miljónir kín-
verja stæðu gráir fyrir járnum á bökkum Missísippífljóts, og segð-
ust vera komnir þángað til að vernda Bandaríkin, þá fvrst mundi
koma í Ijós hvort Bandaríkin væru sjálfstæð þjóð eða ekki. Nú
er ég ekki að segja að kínverjar séu að neinu levti verri menn
heldur en bandaríkjamenn, fremur en mér dvtti í hug að segja að
danir væru verri menn en íslendíngar, þó dönsk stiórn hafi haft
Island að nýlendu og hjálendu í mörghundruð ár. Oðru nær, ég
held að kínverjar séu alveg eins góðir og bandaríkjamenn. En ef
bandaríkjamenn Iétu sér Iynda að hafa tíu miljónir vopnaðra
kínverja inní landi sínu miðju, án þess að mótmæla þessum að-
skotadýrum seint og snemma, vaknir og sofnir, af instu djúpum
sálar sinnar; ef þeir segðu: „ég er hræddur um að ég missi stöðuna
eða fái ekki lán ef ég er á móti þessum mandarínum," þá mundu
bandaríkjamenn vera ekki aðeins ósjálfstæð og ófullvalda bjóð
í Iandi sínu (og það ekki síður þó þeir hétu sjálfstæð þjóð í ein-
hverjum pappírsgögnum); heldur mundu þeir vera verri þjóð en
kínverjar.