Réttur


Réttur - 01.06.1955, Blaðsíða 7

Réttur - 01.06.1955, Blaðsíða 7
RETTUR 135 Rússanna. Hann hafði líka flutt nokkra af okkur moiri-mönnunum í sæmilegra fólksfélag, ef að sæti losnuðu lengra aftur í lestinni. Loks kom hann til mín og bauðst til að búa um mig á betri bekk. Ég naut bess víst, að ég var vitund skár klæddur en þessir verkamenn í vinnulörfunum, og bar svo utan á mér heimiU til króksbekkjar hjá heldra fólkinu. Ég afþakkaði boðið; kvaðst mundu reyna að komast af litla stund lengur. Hann tók því vel og hughreysti mig með, að skammt yrði nú þreyttum að þola. Þessi sóðasveit, sem ég sæti hjá, yrði nú að rýma vagninn á næstu stöð. Undir söngnum hafði ég orðið hugsi. Yfir mig hafði liðið ein þessi stund, þegar smáatvik líta út eins og lykill að anddyri aldarfarsins, svo örlögin blasa við, aftur og fram. Þessi angurværi kveinstafur í rússnesku röddunum (rann mér í hug), hann er sársaukahljómurinn úr sögunni þeirra, hann er klökkvi kúgaðrar þjóðar. Um leið og ímyndun mín rakti upp ið fáa, sem ég er fróður um í ættbálkssögu þessa óvígasta knérunns af Ariana-ættinni, sem kallast Slavar, undir yfirgangi Tartara, norrænna víkinga, Rómverja og stjórn sinna eigin guða og manna. IVIér fannst ég merkja í rússnesku röddunum slag ( lífæð lýðsins. Áður hafði ég, af hendingu, gengið á annan óm, runninn frá sömu sögu. Það var Ijóð í lausu máli eftir Maxím Gorki, kunnasta nútíðarskáld Rússanna. Það var hetjukvæði um mávinn, eða hvað menn vilja kalla það, þetta stormanda kyn, sem um aldur og árdag stríðir á öldum úthafsins, steytir móti stormunum og skýzt undan, upp í óveðrið, með skríkjandi sigurópi ins flóttafleyga, þcgar haf og himinn virðast hafa dregið saman allt sitt afl til að kremja hann við klettabrúnina, slcppur frá þeim lifandi, aðeins til að eiga f sama leiknum við þá upp aftur og aftur og ævilangt. Ég skildi um hvern þetta var kveðið. Mávurinn var enginn annar en frelsisþrá rússneska byltingarandans, í bardaga hans að bjarga landi sínu.“ Síðan segir Stephan söguna af bömunum, er þreyja skyldi þorrann og góuna. Og svo lýkur hann hugleiðingunum um hvorttveggja svo: ,,Frelsisþrá — sjálfstæðisþrá — menningarþrá — framfaraþrá — farsældarþrá, hvað sem á að kalla hana. Þessi þrá, sem ein gerir lífið hér að lifandi manna lífi og mennina að mönnum — hún er mávurinn, sem Gorki orti um, og ég get dáðst að þeim Ijóðum, með hugann f hans sporum. En sá söngur er stórþjóða-drápa, og mér fannst ég merkja óm af brotinni bringu f rússnesku röddunum forðum. Út- særinn er svo óendanlega víður, öldurnar svo efldar undan stormum allra átta; framsýnin á þar svo langt að sjá til lands gegnum rokið, og vonunum villist stund- um sýn, hvort mávinn muni bera upp að hömrunum eða höfninni. íslenzka munnmælasagan um börnin, sú sem ég hafði yfir áðan, er að vísu æfintýri einstæðingsins, smáþjóðarinnar okkar. En hún er þó eins og hringhenda, með sigurhljóm í hverjum stuðli. Aðeins að þreyja þorrann til góuloka, og sjá fram úr vetri. Það hefur íslenska þjóðin ætíð gert . . . .“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.