Réttur


Réttur - 01.06.1955, Qupperneq 25

Réttur - 01.06.1955, Qupperneq 25
RÉTTUR 153 hreyfingar á Islandi, heldur og þjóðarinnar allrar — svo fram- arlega sem okkur kemur saman um að sósíalismi sé það sam- félagsform sem heyrir framtíðinni til. Ykkar ábyrgð er því kannski enn þyngri en okkar gömlu skarfanna. Það eruð þið, sem hafið vaxið inn í atómöldina á ykkar mótunarskeiði, fyrirheit hennar jafnt sem váboðar hljóta að hafa runnið ykkur dýpra í merg og blóð en okkur sem eldri erum, þið eigið þá fersku persónulegu reynslu sem okkur hefur ef til vill skort skilyrði til að meðtaka — atómöldin er því fyrst og fremst ykkar öld og það er ykkar sérstaka hlutverk og skylda að leysa ráðgátur hennar og vanda- mál. ★ Við skulum þá fyrst líta á umheiminn. Það hefur verið mikil tÍ2ka í kalda stríðinu að skipta honum í tvo afmarkaða og and- stæða hluta: austur og vestur, sósíalisma og kapítalisma, friðar- þjóðir og stríðsþjóðir. Nú er þessi skipting orðin úrelt. Atómöldin er þegar búin að rífa járntjaldið ofan frá og niður í gegn og þar með stilla valinu svo skýrt upp fyrir öllu mannkyni að ekki er lengur um neitt að villast: annaðhvort friðf/r og velmegun ellegar stríð og tortíming. Fyrra sjónarmiðinu fylgja ekki einungis þjóðir sósíalismans og flokkar hans út um öll lönd, heldur einnig meginþorri allra þjóða hvar í heiminum sem eru. Seinna sjónarmiðið aðhyllast ekki nema tiltölulega fáir vopnasalar og stríðsgróðamenn sem virðast þess albúnir að myrða allt mannkynið um leið og þeir verða að gefast upp sjálfir. Þessum forhertu reyfurum fylgja svo vesalingar þeir sem orðnir eru það fjötraðir og blindaðir í afsiðunarstofnunum kapítalismans að „þeir vita ekki hvað þeir gera". Þetta held ég að sé sannleikurinn í málinu. Hversvegna ætti líka nokkur heilbrigð manneskja, hvað þá heilar þjóðir, að hafa tilhneigingu til að fyrirfara sér einmitt á morgni þeirrar aldar sem gefur glæsilegri fyrrheit en nokkur önnur í sögu mann- kynsins? Takizt að gera atómöldina að friðaröld og verði tæknimenn- ingin hagnýtt til hins ítrasta og þeim óhemju auði sem sóað hefur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.