Réttur


Réttur - 01.06.1955, Qupperneq 32

Réttur - 01.06.1955, Qupperneq 32
160 RÉTTTJR um leið og þetta er viðurkennt ber að gæta þess að kringum- stæðurnar hjálpuðu til að 'forða fjöregginu frá glötun. Nú eru þær kringumstæður ekki lengur fyrir hendi. í stað þess varnar- múrs sem hin hræðilega einangrun vissulega var, stendur nú um- heimurinn opinn upp á gátt og áhrif hans, ill sem góð, flæða innst upp í dali og yzt út um nes. Þessi staðreynd hefur ekki látið sig án vitnisburðar. Hún er einmitt meginorsök þess að alþýða ís- lands hefur leyft að þjóðfélag hennar yrði gert að galihúsi. Nú kynni enn að verða spurt: en varsm ekki að tala um það áðan að andleg mennt, bókmenntir og listir, hefði aldrei staðið með meiri blóma en nú? Vissulega — hvað magn og fjölbreytni snertir er þar varla um neinn samanburð að ræða — um gæðin og varanleikann á samtíminn auðvitað alltaf erfitt með að dæma. En hversu mikill sem blóminn í fjöreggi okkar annars kann að vera virðist þar sá gallinn á að hann hafi skort afl til að bægja frá þeim „Iæpuskap og ódyggðum" sem flætt hafa með eykjum að þessu landi í seinni tíð. Skáldskapurinn var sú höfuðgrein andlegrar menntar sem feður okkar skákuðu gegn hungrinu um aldir með þeim árangri sem raun ber vitni. Eg held að það sé ekki vegna þess að þetta vopn sé lélegri smíð en áður sem bit þess virðist nú bregðast í stríðinu um líf þjóðarinnar. Eg held að það sé einfaldlega vegna þess að fólkið, íslenzk alþýða, gefi sér ekki tíma til að eignast það og beita því af þeirri einlægni og skerpu sem til þarf ef það á að vera áhrifaríkt tæki jafnt til sóknar sem varnar. Vera má að í verkum okkar beztu skálda sé íslenzk tunga nú fegurri en nokkru sinni fyrr. En þeirra verk eiga sinn kjarna í gerólíkri reynslu horfinna kynslóða. Þessvegna gemr tungan eigi að síður verið í mikilli hættu af þeirri ástæðu einni. Is- lenzka atómaldarinnar verður að sækja sitt líf í brjóst ykkar, hinnar nýju kynslóðar. Þið verðið að gefa henni nýtt innihald ef fjöreggið á ekki að bresta. Það er sem sé búið að ónýta fyrir okkur mörg dýrmætustu orð tungunnar, falsa og afskræma hug- tökin, firra þau sínu hugsjónalega gildi, svipta þau hinum siðlega kjarna. Hvað táknar orðið frelsi í landi þar sem einn aðalatvinnuveg-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.