Réttur


Réttur - 01.06.1955, Page 49

Réttur - 01.06.1955, Page 49
RÉTTTJR 177 það að mynduð verði vinstri ríkisstjórn sem byggði stefnu sína á vinsamlegu samstarfi við alþýðusamtökin. Þau viðhorf blasa nú við alþýðu manna að nýlega hafa verið samþykktar á Alþingi gífuriegar álögur, sem tugir verkalýðsfélaga um land allt hafa mótmælt sem tilfinnan- legum árásum á Iífskjör vinnandi fólks, og að ástandið í dýrtíðar- og efnahagsmálum er þannig, að búast má við stórfelldum aðgerðum af hálfu ríkisvaldsins á þessu ári. og af marggefinni reynslu óttast verkalýðssamtökin, að enn verði gerðar einhliða stjórnmálaráðstafanir á kostnað hins vinnandi fólks. Alþingiskosningar í sumar — ári fyrr en lög standa til — auka enn á tortryggni almennings, ]>ví að fuUkomlega er óvíst, hvað við kann að taka upp úr kosningum, og enn fremur allt á huldu um fyrirætlanir í efnahagsmálum. Alþýðusamtökin óska einskis fremur en að hægt verði að komast hjá vinnudeilum og aðrar leiðir fundnar til vernd- ar alþýðuhagsmunum og til lausnar atvinnu-, dýrtíðar- og efnahagsmála þjóðarinnar. Niðurstöður vorar eru því þessar: 1. Alþýðusambandið varar alvarlega við því, að stefnt verði að kosningum nú, á þeim grundvelli að vinstri öflin gangi tvistruð til þeirra og berist á banaspjót. 2. Verði samt að því ráði hnigið, þá lýsir sambandsstjóm yfir því, að hún mundi í þeim kosningum beita sér fyrir sem allra við- tækustu samstarfi allra þeirra aðila, sem vilja vinna að mynd- un rikisstjórnar allra vinstri flokkanna í landinu á grundvelli stefnuskrár Alþýðusambandsins. 3. Með skírskotun til framanr:taðs skorar Alþýðusamband fs- lands á þing Framsóknarflokksins að víkjast nú ekki undan þeirri skyldu, að taka ákvörðun um myndun ríkisstjómar nú þegar, sem styðjist við þann þingmeirihluta sem fyrir hendi er og sé þannig skipuð, að verkalýðssamtökin í heild sinni geti veitt henni stuðning og traust, — enda snúi sú ríkisstjóm sér þegar, sem ábyrg meirihlutastjórn, að lausn aðkallandi vandamála og und-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.