Réttur


Réttur - 01.06.1955, Síða 52

Réttur - 01.06.1955, Síða 52
180 RÉTTTJR þingi, sem eru trúir málstað vinnandi fólks og sem for- dómalaust vilja vinna að istefnumálum þeim, sem Al- þýðusambandið hefur markað, er skilyrði þess, að ný stjómarstefna, vinsamleg verkalýðssamtökunum og vinn- andi fólki, verði tekin upp, og að takast megi að leysa hagsmunamál almennings án sí-endurtekinna verkfalla“. Viðræðunefnd Alþýðusambandsins var þvínæst falið að gangast fyrir stofnun bandalags allra þeirra aðila, flokka og samtaka, er vildu ganga sameiginlega til kosninga í sumar á grundvelli stefnuyfirlýsingar sambandsins. — Málfundafélag iafnaðarmanna í Reykjavík ákvað að gerast aðili að kosningabandalagi vinstri manna. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík og á Akureyri hafa lýst samþykki sínu við gerðir Alþýðusambandsins og stuðn- ingi við væntanleg kosningasamtök alþýðunnar. — Þau verkalýðsfélög, sem þegar hafa haldið fundi til að ræða málið, hafa gert slíkt hið sama, þar á meðal Verkalýðs- félag Borgarness, þar sem fylgismenn stjórnarflokkanna eru í meirihluta og fara með stjórn. Þó var samþykkt þess einróma. Svar hægri mannanna í Alþýðuflokknum varð hins veg- ar það, að reka forseta Alþýðusambandsins, Hannibal Valdimarsson, úr flokknum. Þetta gerðist 22. marz. Þjóð- varnarflokkurinn hafnaði einnig tilboði um samvinnu. Sama dag sem Hannibal var rekinn úr Alþýðuflokknum sneru þeir Hermann 'Jónasson og Haraldur Guðmundsson sér til Sósíalistaflokksins og spurðu hvort flokkurinn vildi fallast á að afstýra vantrausti á ríkisstjórn, er Hermann Jónasson myndaði og Framsóknarflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn yrðu aðilar að. Skyldi sú stjórn hafa það hlut- verk að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga, en hlutleysi Sósíalistaflokksins yrði veitt án allra skilyrða. Sósíalistaflokkurinn svaraði að hann væri reiðubúinn til að veita hlutleysi stjórn, er Hermann Jónasson myndaði, gegn því að eftirfarandi málum yrði ráðið til lykta áður en

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.