Réttur


Réttur - 01.06.1955, Side 54

Réttur - 01.06.1955, Side 54
182 RÉTTUR leg ákvörðun um framboð tekur miðstjórnin með samkomu- lagi þeirra, sem hana skipa. Þingmenn þeir, sem kosnir verða á vegum bandalagsins skulu mynda með sér þingflokk. Skal hann starfa í sam- ráði við miðstjórnina og verkalýðssamtökin samkvæmt stefnuskrá, sem í meginatriðum er byggð á stefnuyfirlýs- ingu Alþýðusambandsins. Endurskoðun liernámssamningsins Rétt áður en þingi var slitið fyrir páskana lögðu fulltrú- ar Framsóknar og Alþýðuflokksins í utanríkisnefnd fram tillögu um endurskoðun hernámssamningsins á þessa leið: „Stefna íslands í utanríkismálum verði hér eftir sem hingað til við það miðuð að tryggja sjálfstæði og öryggi landsins, að höfð sé vinsamleg sambúð við allar þjóðir og að íslendingar eigi samstöðu um öryggismál við nágranna- þjóðir sínar, m.a. með samstarfi í Atlantshafsbandalaginu. Með hliðsjón af breyttum viðhorfum síðan varnarsamn- ingurinn frá 1951 var gerður og með tilliti til yfirlýsinga um, að eigi skuli vera erlendur her á íslandi á friðartímum, verði þegar hafin endurskoðun á þeirri skipan, sem þá var tekin upp, með það fyrir augum, að Islendingar annist sjálfir gæzlu og viðhald varnarmannvirkja — þó ekki hernaðarstörf — og að herinn hverfi úr landi. Fáist ekki samkomulag um þessa breytingu, verði málinu fylgt eftir með uppsögn samkv. 7. gr. samningsins“. Fulltrúi Sósíalistaflokksins, Finnbogi R. Valdimarsson, lagði fram tillögu, þar sem skýrt og afdráttarlaust var kveðið á um að herinn skyldi fluttur á brott fyrir 5. maí 1957, en felld niður viljayfirlýsingin um þátttöku íslands í Atlantshafsbandalaginu og réttlætingin á utanríkisstefnu undanfarinna ára. Tillaga hans var á þessa leið: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að æskja nú þeg- ar endurskoðunar þeirrar, sem gert er ráð fyrir í 7. grein varnarsamnings milli Islands og Bandaríkjanna frá 5. maí

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.