Réttur


Réttur - 01.06.1955, Síða 61

Réttur - 01.06.1955, Síða 61
RÉTTTJE 189 ana og mæðurnar. Óvinirnir mæta þar þéttum skógi af hornum hringinn í kring. í menningarlöndum má nú heita öflug samheldni milli emb- ættismanna, klerka og kaupmanna, og hefir lengi verið. Enn- fremur hefi eg nú bent á, að reynslan hefir sýnt, að þar sem menning og menntun er komin lengst á veg og blöff verka- manna flest og sterkust, t. d. í Danmörku og á Þýzkalandi — þar eru og samtökin orðin öflugust, og eiga nú, eftir því sem út lítur, vissan sigur áður en langt líður. En þetta stríð hefir nú líka staðið þar í 40 ár og næstum óslit- ið sumstaðar. Og við, sem höfum að mestu heyrt þann vopnagný álengdar og verið sjálfir langt frá bardögunum, gerum okkur naumast í hugarlund, hver fádæma ógrynni sá sigur hefir kost- að, af ósérplægni einstakra manna og atorku eða þolgæði í ýmiskonar háðung og hörmungum. Ennfremur geysilegt fjár- magn — margar milljónir króna úr vösum verkamanna og vina þeirra. En sigurinn er sælastur þegar hann er dýrustu verði keyptur. Eg hefi sjálfur 12 ára persónulega kynningu af þessum bardaga, eins og hann hefir verið háður í Danmörku. Eg hefi séð þar sjálfur hvernig jafnaðarmenn hafa brotist í gegn um skort og vandræði, háð og hatur, og eru nú orðnir, eins og ég gat um, meiri hluti í bæjarstjóm Kaupmannahafn- ar, öflugur flokkur á þingi, og að þeir hafa stofnsett eitt stærsta bakarahús bæjarins og spomað við hækkun brauðverðs, svo að þeir hafa sparað borgarbúum — fátækum og ríkum — óefað nokkur hundruð þúsunda króna á ári, og auk þess fyrir öl- gerð, kjötverzlun o. fl. o. fl. Stærsta blaðið þeirra (Social-Demokraten) gefur þeim yfir 100,000 kr. ágóða á ári, og hefir yfir 60 þúsund kaupendur, og kostar þó 13 kr. árgangurinn. En fjöldi kaupendanna er alls ekki ríkari en við erum flestir. — Eg hefi nú í 25 ár keypt og lesið útlend blöð og tímarit jafnaðarmanna, og varið til þess alt að 20 krónum árlega. Það er tæplega mögulegt að lesa árum saman þau rit án þess að sáma svo niðurlægingin, að maður hlýtur að verða félagslyndur, og reyna það sem unnt er til þess að færa menn saman. Frá minni hendi get eg nú ekki bent á nema ofurlítið af góðum vilja. Og það vita margir góðir menn í þessu félagi, að eg hefi boðið fram þá litlu fræðslu, sem eg gat veitt, ef menn hefðu séð sér gagn að því að þiggja það. Af því það er sam- færing mín að fræðslan og þekkingin komi ykkur upp á sam- taka og sigurbrautina. Þessi sannfæring mín er orsök í því að

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.