Réttur - 01.01.1959, Side 43
R É T T U R
43
yrði gerð að lögleiða almenna og algera afvopnun innan ákveð-
ins skamms tíma, og er tekið yrði að framkvæma slíka afvopn-
unaráætlun, þá myndi andrúmsloft í alþjóðamálum breytast mjög
til batnaðar. Skapast myndi algerlega nýr grundvöllur að sam-
skiptum ríkja, einnig þeirra, er teljast til mismunandi þjóð-
skipulagskerfa eða andvigra hernaðarlegra og pólitískra fylkinga.
Ótti við hugsanlega árás af hálfu eins eða annars ríkis myndi
Þar með vera úr sögunni í raun og veru. Fúsleiki ríkja að fram-
kvæma almenna og algera afvopnun myndi vera raungæfileg
og sannfærandi röksemd um það, að þeim væri engin ágengni
í hug, heldur væri þeim einlægt áhugamál að grundvalla skipti
sín við önnur ríki á megnireglu friðsamlegrar sambúðar þjóða.
Og er öll vopn hefðu verið ónýtt og herir lagðir niður, ættu
ríkin þess engan kost að reka aðra stjórnmálastefnu en friðsam-
lega. Ónýting stríðsvopnanna myndi treysta stórum grundvöll-
inn að friðsamlegri sambúð ríkja, með því að ekki gæti verið um
neinn annan grundvöll að ræða í milhrikjaviðskiptum.
Skapast myndu áður óþekkt skilyrði til að bæta lífsafkomu
allra þjóða með því að hagnýta til gagns þá fjármuni, sem rík-
in eyða nú í það að halda uppi her manns og framleiða vopn.
Andstæðingar afvopnunarstefnunnar reyna ósjaldan að gera
hana tortryggilega með því að staðhæfa, að stöðvun hergagna-
framleiðslu hlyti að leiða af sér efnahagsörðugleika og skapa
otvinnuleysi meðal þess fjölda, sem nú er starfandi í vopnaiðnað-
inum. En slík röksemd er blekking.
Fer ekki hergagnaframleiðslan með gífurlegt magn almenn-
ingsfjár, sem hagnýta mætti til að koma upp íbúðum handa
þjóðfélagsþegnunum, nýjum skólum handa börnum þeirra, sjúkra-
húsum, þar sem veitt yrði ókeypis læknishjálp, og stofnunum
til styrktar aldurhnignu fólki og öryrkjum. Myndi ekki hagnýt-
mg þessara fjármuna til friðsamlegra þarfa skapa miklum fjölda
fólks næga atvinnu?
A því er enginn efi, að ef almenn og alger afvopnun tækist,
Þá gæti hraði efnahagslegrar og andlegrar þróunar margfaldazt
1 öllum löndum heims. Þær milljarðafúlgur fjár, sem renna myndu
«1 atvinnuveganna, ef hernaðarútgjöld féllu niður, myndu hag-
nýttar á nýjan og miklu hagkvæmari hátt en nú á sér stað. Hin-
rr óeðlilegu múrveggir, sem ríkin hlaða milli sín til þess að
varna því, að leyndarmál þeirra í vísindum og tækni seytli út,
Wyndu hverfa smám saman, því að undirrót þessarar leyndar
eru hernaðarsjónarmið. Vísindamönnum allra landa myndi gert
tiltækilegt að beita sér eingöngu að því að bæta lífsskilyrði
Wanna og auka farsæld þeirra. Frjáls skipti á reynslu í þessum