Réttur - 01.01.1960, Page 2
2
R E T T U R
meginstefnu þess og örlög, án þess þjóðin hafi gert sér þess
viðhlítandi grein. Erlendur fjáraustur, snöggar þjóðlífsbreytingar
og spenna kalda stríðsins hafa sljógvað svo söguskyn hennar að
hún virðist um sinn hafa glatað hæfileikanum til að koma auga
á hættur nútíðar í ljósi fortíðar. Henni er því yfirleitt hulinn sá
möguleiki að nú kunni að standa yfir ný sturlungaöld í landi.
Samt er þetta svo. Lýðveldið er nú í sömu hættunni statt og þjóð-
veldið forna fyrir sjö öldum. Og orsökin er hin sama: græðgi
siðspilltra forusmmanna í fé og völd.
Það sem ekki hvað sízt mun glepja sjón almennings er að hinar
sögulegu staðreyndir gerast nú með nokkuð öðrum hætti en forð-
um daga. Þá óðu innlendir höfðingjar með báli og brandi um
landið þvert og endilangt og veittu alþýðu manna hinar hroða-
legustu búsifjar. Nú hefur aftur á móti verið kallaður hingað
erlendur her sem simr hér á friðstóli yfir vinmælum og launskrafi
við innlenda höfðingja, jafnframt því sem hérvist hans hefur orðið
almenningi meira eða minna hagsmunamál. Þetta er auðvitað
ærinn yfirborðsmunur — og sízt til þess fallinn að skerpa vöku
þjóðarinnar. En þrátt fyrir þennan mun eru eðliseinkennin hin
sömu: utanstefnur innlendra valdsmanna, hingaðkomur erlendra
legáta, þrotlaust samningamakk við hið framandi vald, bæði leynt
og Ijóst. Hernaðarsamningarnir við ameríska stríðsgróðavaldið eru
stórum ófrýnilegri en gamli sáttmálinn sem gerður var við norska
konungsvaldið. Og enda þótt múmþágur og valdaþóf þessarar
síðari sturlungaaldar sé sýnu kyrrlátara en brennur og vígaferli
hinnar fyrri, er spilling sú sem grafið hefur um sig í núverandi
valdakerfi þjóðfélagsins sízt betur kynjuð né hættuminni en þá.
Svo víðtæk og djúptæk er þessi spilling að hún hefur náð
að gegnsýra fjölda þeirra manna sem talizt hafa fulltrúar vinnu-
stéttanna í landinu. Saga Alþýðuflokksins er þar skýlausasta dæm-
ið. Sá flokkur var upphaflega myndaður af róttækasta hluta hinn-
ar ungu verklýðshreyfingar í höfuðstaðnum með það fyrir augum
að ryðja hér sósíalisma braut. Nú er hann orðinn forgengill komm-
únistahatursins hér á landi og ein formyrkvaðasta pláneta ame-
ríska stríðsgróðavaldsins.
Hin herfilegu svik flokksforustunnar við málstað íslenzkrar