Réttur - 01.01.1960, Síða 22
22
R É T T U B
málunum, því til þess hefði verkalýðurinn þurft að hafa úrslita-
áhrif á ríkisvaldið og koma á sósíalistískum búskaparháttum.
.Efnahagísþróunin á Islandi er komin á það stig að til þess að
hvorttveggja gerist —
1. að framfarir í atvinnumálum verði eins miklar og tækni og
markaðssambönd leyfa, og
2. að lífskjör almennings fari batnandi ár frá ári, er nauðsynlegr
að komið verði á róttækri, þjóðlegri stjórn, sem styðjist við
alþýðustéttir, menntamenn og millistétt, taki upp heildarstjórn
á þjóðarbúskapnum, þjóðnýti stærstu hraðfrystihúsin og aðal-
greinar utanríkisverzlunarinnar, aflétti hernáminu og taki aftur
upp hlutleysi.
Með gengislækkuninni í febrúar 1960 leggur afturhaldssamasti
hluti auðmannastéttarinnar til höfuðatlögu gegn verkalýð og
öðrum launþegum, bændum og öðrum millistéttum og er þetta
m. a. gert að undirlagi auðvalds Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu
sem lengi hefur óttazt þróunina í efnahagsmálum og viðskipta-
málum á Islandi.
Tilgangurinn er að binda endi á valdajafnvægið xnilli stéttanna
og koma á óskoraðri harðstjórn peningavaldsins yfir verkalýð og
millistéttum. En bak við bíður erlent auðvald, reiðubúið til fjár-
festingar á Islandi, ef takast skyldi að gera Island að láglaunalandi
og hálfnýlendu með öruggu stjórnarfari.
Gengislækkunarlögin frá 19. febrúar 1960 eru hólmgöngu-
áskorun til alþýðunnar frá afturhaldssamasta hluta borgarastétt-
arinnar, og eftir þau umskipti er um það teflt, hvort afturhalds-
samasta hluta auðvaldsins tekst að snúa hjóli þróunarinnar við,
koma á glundroða hins „frjálsa” auðvaldsskipulags sem yrði til-
valinn vettvangur erlendra og innlendra auðhringa, eyðileggja
smám saman þau viðskiptasambönd við sósíalistísku löndin sem
nú tryggja atvinnuöryggi, og rýra þannig lífskjör alþýðu stórum
eða hvort verkalýðnum auðnast með víðsýnu samstarfi við bændur,
menntamenn og millistéttir að stýra þróun þjóðfélagsins í átt til
sósíalisma, samhjálpar og sameignar og síbatnandi lífsafkomu
alþýðunnar.
Nauðsynlegt er að þjóðnýta a. m. k. stærstu hraðfrystihúsin ef
J