Réttur - 01.01.1960, Síða 23
R E T T U R
23
ekki á að rísa upp auðhringavald sem öllu ræður á því sviði. Og
í öllu dreifbýlinu verður eyðingarhættunni, sem stjórnlaus auð-
valdsþróun leiðir yfir þrjá landsfjórðunga, aðeins bægt frá með
skipulagðri nýsköpun sem sé þáttur í heildaráætlun fyrir þjóðar-
búskapinn með alþjóðarhag í nútíð og framtíð fyrir augum.
Samtímis því sem svartasta afturhaldið leggur til höfuðatlögu
gegn verkalýðsstéttinni reynir það að brjóta niður valdakerfi
Framsóknar og einoka ríkisvaldið í sína þágu.
Jafnframt gerist sá sögulegi atburður að meginið af forustuliði
Alþýðuflokksins gengur til liðs við afturhaldssamasta hluta auð-
valdsins til þess að vinna óhæfuverkin gegn verkalýðshreyfing-
unni. Með þeirri ákvörðun eru valdamestu leiðtogar flokksins
að binda endi á tilveru hans sem verkalýðsflokks, ef áfram verður
haldið á þeirri braut, og gera hann að afturhaldssömum borgara-
flokki. I þessum umskiptum koma m. a. fram áhrif bandaríska
auðvaldsins á flokksforustuna.
Með stjórnarmynduninni 20. nóv. 1959, gengislækkunarlögun-
um og þeirri harðstjórn peningavaldsins, sem því næst er skipu-
lögð af bönkum og ríkisstjórn sölsar auðmannastéttin ríkisvaldið
undir sig eina og beitir því sem okurs- og kúgunarkerfi gegn
verkalýð, bændum og öðrum millistéttum og nokkrum hluta
atvinnurekenda. Með þessari „gagnbyltingu" einkaauðvaldsins
er því eigi aðeins lagt til höfuðorustu á hagsmunasviðinu gegn
allri alþýðu, heldur er ríkisvaldið einnig einokað og því beitt sem
kúgunartæki gegn yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar. Borgara-
stéttin gengur þó ekki öll vígreif til þeirrar baráttu, því ætlunin
er að fórna hagsmunum mikils hluta hennar fyrir einokunargróða
handa örfáum auðmönnum og fyrir valdaaðstöðu á Islandi handa
alþjóðaauðvaldinu. Einnig innan Alþýðuflokksins gætir mikis
glundroða, einkum úti um land.
I átökum þeim sem framundan eru verður verkefnið tvíþætt.
Annarsvegar verður verkalýðurinn að mynda sem víðfeðmasta
samfylkingu launþega og millistétta um hagsmunamálin til þess
að hrinda árás auðvaldsins. Hinsvegar verður að beita til þess
öllum kröftum að hnekkja einokunartökum afturhaldssamasta
hluta auðmannastéttarinnar á ríkisvaldinu.