Réttur - 01.01.1960, Page 65
B É T T U R
65
fyrir nýjum lýðræðislegum meirihluta á Ítalíu þyrfti umfram
allt að kveða einangrunarstefnuna niður að fullu, bæði í viðhorf-
um manna og störfum. Það kom fram á þinginu að kommúnista-
flokknum hefur vaxið mjög ásmegin að undanförnu; honum
hafa bætzt um 200.000 meðlimir á rúmu ári, þannig að meðlima-
fjöldinn er nú um 2 millj.; en það er eitt meginatriði í stefnu og
starfi ítalska kommúnistaflokksins að hann vill berjast sem fjölda-
flokkur og leggur á það mikla áherzlu. Flokkurinn hefur bætt
mjög starfsaðstöðu sína á undanförnum árum, þannig hefur verið
byggt nýtt og glæsilegt hús yfir blöð flokksins, búið fullkomnasta
vélakosti. Aðalmálgagn flokksins Unitá kemur út í hálfri milljón
eintaka daglega sem landsútgáfa. En einnig koma út á vegum
flokksins tvö dagblöð önnur í Rómaborg, þótt þau séu ekki form-
lega gefin út af flokknum. Það eru morgunblaðið Paese og kvöld-
blaðið Paese Sera, þau túlka algerlega stefnu flokksins, en eru
með léttara sniði en Unitá, flyjta meira skemmtiefni og Jéttmeti.
Einkanlega er kvöldblaðið Paese Sera næsta alvörulaust blað,
en mjög fjörlegt og vel unnið blaðamennskulega, enda vinsælasta
kvöldblaðið í Rómaborg.
I lok þingsins var kosin ný miðstjórn og framkvæmdanefnd.
Voru gerðar verulegar breytingar á þeim stofnunum báðum, og
var mér tjáð að þær hefðu einkum verið í því fólgnar að við
hefði verið bætt ungum mönnum og fleiri fulltrúum frá hér-
uðunum, en fyrir þeim hefðu vikið ýmsir eldri menn sem ekki
væru orðnir eins virkir í daglegu starfi og áður. Það er til marks
um það hversu opið þingið var, að jafnvel atkvæðatölur mið-
stjórnarmanna voru birtar í blöðum. Tóku 913 fulltrúar þátt í
atkvæðagreiðslunni, og fengu þeir miðstjórnarmenn sem náðu
kosningu 794—913 atkvæði. 5 fulltrúar höfðu ekki greitt Togli-
atti atkvæði, og fjórir kusu ekki Luigi Longo sem er varaformaður
flokksins.
★
Eftir flokksþing Kommúnistaflokksins átti ég þess kost að
ræða allýtarlega við þingmanninn Tullio Vechietti, en hann er