Réttur - 01.01.1960, Page 84
84
BÍTTVK
ekki aðeins verið að lögþvinga launalækkun, heldur er jafnframt
ráðizt að þeim rétti sem verkalýðshreyfingin telur sér helgastan,
réttinum til að ákveða með frjálsum samningum við atvinnurek-
endur launakjör sín og hvernig þeim skuli skipað í smáu og
stóru. Þessi rétmr er mannréttindi, sem verkalýðshreyfingin getur
ekki þolað að séu afnumin, hvort sem það er gert með lögum eða
ólögum.
Hér er ekki aðeins um það að ræða hvort verðlagsbætur á
laun séu æskilegar eða ekki æskilegar, ekki aðeins um það að
tefla hvort launamönnum hafi orðið meiri eða minni hagsbót
af þessari skipan mála eða annarri — heldur um það hvort nokk-
urri ríkisstjórn á að löghelgast réttur til þess að ráðskast með
grundvallaratriði í mikilvægustu réttindum þegnanna.
Þessi mannréttindasvifting er e. t. v. hin alvarlegasta af öllum
hinum hættulegu ákvæðum efnahagslaganna. Með henni er lagt
út á slíka braut að ekki verður séð hvert leiðir, ef ekki er spornað
við þegar í upphafi. A því er ekki eðlismunur að banna kaup-
hækkanir í formi verðlagsbóta og banna beinar kauphækkanir og
þar með skipa öllum launamálum vinnustéttanna með lögum eða
tilskipunum og að því er greinilega stefnt með gengisfellingar-
lögunum.
Með lögum er ríkisstjórninni heimilað að greiða niður vöruverð
að eigin geðþótta en í fjárlögum er reiknað með að á þessu iiri'
verði niðurgreiðslurnar 302,9 millj. kr. Með afnámi vísitölunnar
breytist allt eðli þessara niðurgreiðslna. Hingað til hafa þær verið
tengdar henni og tilhneiging stjórnarvalda hefur því óhjákvæmi-
lega verið sú að nota þær til hins ýtrasta til að lialda henni niðri
og þar með laununum.
Nú gerbreytist þetta. Þótt dregið sé úr niðurgreiðslum hækka
laun ekki og engin skylda hvílir á ríkisstjórninni að greiða vöru-
verð niður. Hún getur haft niðurgreiðslurnar miklar eða litlar eftir
eigin geðþótta. Þetta jafngildir því að ríkisstjórnin hafi í hendi
sér að lækka laun sem svarar öllum niðurgreiðslunum eða um
10—15 vísitölustig.
Þannig er hvort tveggja í senn verið að svifta verkalýðshreyf-