Réttur - 01.01.1960, Síða 100
100
RÉTTUR
efnahagsstefna Bandaríkjanna skaðar hagsmuni Englands og að
það er mótfallið stefnu Bandaríkjanna gagnvart Kína og Alsír-
stefnu Frakka. Franskt og vesturþýzkt einokunarauðmagn hafa
nána samvinnu á sviði efnahagsmála og utanríkismála í samræmi
við hina afturhaldssömu innanríkisstefnu sína. Strauss landvarna-
málaráðherra játaði, að Vestur-Þýzkaland hefði veitt Frakk-
landi hernaðaraðstoð að upphæð einn milljarð marka. Vestur-
Þýzkaland tekur þátt í framleiðslu kjarnorkuvopna í Frakk-
landi. Og jafnvel Israel selur Vestur-Þýzkalandi vopn, þrátt
fyrir hinar villimannlegu Gyðingaofsóknir nazista. Einokunarauð-
valdið, og önnur afturhaldsöfl sem eiga hagsmuna að gæta í sam-
bandi við vopnaframleiðslu, gera allt sem í þeirra valdi stendur
til þess að viðhalda kalda stríðinu, þrátt fyrir einlægan friðarvilja
yfirgnæfandi meirihluta fólks í auðvaldslöndunum og afvopnun-
artillögur sovétstjórnarinnar, sem N. S. Krustjoff flutti allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna.
Hugmyndafræði heimsvaldastefnunnar hefur ávallt verið aftur-
haldssöm. En í byrjun aldarinnar var enn fyrir hendi nokkur arftur
frá hinni frjálslyndu og róttæku hugmyndafræði borgarastéttar-
innar. En nú á dögum er hugmyndafræði auðvaldsskipulagsins
algjörlega andkommúnistisk: „Frelsi" þýðir andkommúnismi á
máli auðvaldsins; „varðstaða um réttindi einstaklingsins" þýðir
andkommúnismi, þjóðfélagsvísindin og kirkjan verja og fegra hið
hrörnandi auðvaldsskipulag, heimsvaldastefnuna, yfirburði hvíta
kynstofnsins og rægja kommúnismann.
b) Annar nýr þáttur er fall nýlendnkerfisins.
Flestar nýlendurnar eru orðnar sjálfstæð ríki og sjálfstæðis-
barátta þeirra þjóða, sem enn eru undirokaðar, verður ekki stöðvuð.
Hér eru að verki þjóðfélagslega pólitískar orsakir. Hernaðarlegir
yfirburðir nýlenduveldanna yfir nýlendurnar hafa aldrei verið eins
miklir og að lokinni síðari heimsstyrjöldinni. En pólitískt sjálf-
stæði nýlendanna þýðir engan veginn það, að nýlendueinkenni
efnahagskerfis þeirra hafi verið þurrkuð út. Aðeins þær fyrrver-
andi nýlendur, sem hafa tekið upp hagkerfi sósíalismans, hafa
kamizt fljótlega yfir arfleifð nýlenduskipulagsins í efnahagskerfi
sínu. Enda þótt iðnaðurinn hafi þegar náð nokkurri fótfestu í
J