Réttur - 01.09.1940, Blaðsíða 20
hefst nýr þáttur styrjaldarinnar. Það er þáttur hins
ótakmarkaða kafbátarhernaðar og lofthernaðar.
Meö þvi að ná á vald sitt allri strandlengju Nor-
egs, Hollands, Belgíu og Frakklands hafa Þjóðverjar
fengið ákjósanlega aðstöðu til þess að reka Lafbáta-
hernað á skipaleiðum Breta. Þetta skapar Bretum
eitthvert ægilegasta vandamálið í þessari styrjöld, því
aö öll lífsvon Bretlands byggist á því að geta viðhald-
ið greiðum skipagöngum vestur um haf.
Hinsvegar hafa Þjóðverjar getað komið sér upp í
herteknu löndunum flugstöðvum, sem eru tilvaldar
til loftárása á Bretlandseyjar og sumar naumast
steinsnar frá Englandi.
Þjóöverjar virðast hafa iátið niður falla í bráð all-
ar innrásarfyrirætlanir og ætla aö beita þeirri hern-
aðaraðferö að einangra Bretlandseyjar frá umheim-
inum með sjóhernaöi og lama hergagnaiðnað þeirra
með loftárásum. Þeir sýnast ekki heldur ætla að hika
við að beita hinu “algera loftstríði” gegn íbúum
landsins. Hinar ógurlegu loftárásir á London og aðrar
borgir Englands bera því vitni. Nazistar kalla þetta
“refsiaðgerðir” og eru jafnvel farnir að hælast um
það, hve mikiu manntjóni þeir valdi með loftárásum
sínum. Það er saklaus alþýða manna, sem hér verð-
ur að gjalda þyngsta skattinn, eins og alltaf í styrj-
öldum auðvaldsins, og þó aldrei eins og nú. Allar
skelfingar lofthernaðarins, sem friðarsinnar sögðu
fyrir, eru nú fram komnar. Stórborgir eru lagðar í
rústir að miklum hluta á eirini nóttu. Mannvirki, sem
reist voru með erfiðismunum á mörgum árum, eru
jöfnuð við jörðu í einu vetfangi. Mannslíkamir eru
sundurtættir í blindri grimmd og enginn greinar-
munur gerður á vopnuðum hermanninum og brjóst-
mylkingnum. Hér er ávöxtur og rökrétt afleiðing
þjóðfélagsskipulags, sem komið er í andstöðu við þró-
108