Réttur - 01.09.1940, Blaðsíða 79
innfjálg tilsvör veri'ö betri, — og umfram allt laus viö
leiöinlegu skýringarnar.
Jón Sigurðsson. — Et Iiv i arbejde og kamp.
— Páll Eggert Ólason samdi.—
Þetta er litla bókin hans Páls um Jón Sigurösson,
aöeins 516 bls. í stóru, þéttletruðu 8 bl. broti, Efnið
veröur ekki sagt hér í fám orðum, því aö þaö er út-
dráttur úr 5 binda verki, sem þjóðkunnugt er. LiÖugt
hálft þúsund manna er nefnt þarna á nafn, og eng-
inn kafli er laus í reipunum af því, að oflítið sé látiö í
þau, fremur ofmikiö til þess aö lesanda veröi fulln-
aðargagn aö. Samt vil ég eggja þá, sem telja sér 5
bindi ofviða, á aö lesa þetta yfirlitsrit 1 lotu spjald-
anna á milli og vita, hvort stórvirki leiðtogans hverf-
ur þeim úr huga þaðan af. Það er ritað á óvenju stór-
hreinlegri dönsku, sem a. m. k. þremur Norðurlanda-
þjóöum mun falla vel 1 geö. Undarleg örlög eru þaö,
að á árinu sem saga frelsishetju ísiendinga er gefin
út á ööru því máli, sem flestir skilja með þeim þjóð-
um, komast Danir og Norömenn í engu vandaminni
baráttu fyrir þjóöartilveru sinni og frelsi en íslend-
ingar undir forystu Jóns Sigurössonar. — Þetta mætti
einnig minna á, aö lífsstarfi Jóns Sigurðssonar er
ekki heldur lokiö hér heima.
Björn Sigfússon.
167