Réttur - 01.09.1940, Blaðsíða 39
Eins og að undanförnu hlýtur flokkurinn að leggja
höfuðáherzluna á starfið í verkalýðshreyfingunni,
jafnframt því sem alla möguleika verður að nota tií.
að starfa meðal bænda, smáutvegsmanna og annarra
millistétta. En flokksmenn verða að gera sér vel ljóst,
að skilyröið fyrir því að takast megi að skapa víð-
tækt og traust bandalag milli verkalýðsins, bændanna
og annarra millistétta, er sterk og sameinuð verka-
lýðshreyfing og öflugur verkalýðsflokkur.
Heimsvaldastyrjöld sú, sem nú geysar, hlýtur að
kveða upp dómsorð yfir auðvaldsskipulaginu og veröa
upphaf nýs tímábils sósíalistiskra byltinga. Land
vort og framtíð þjóöarinnar er nú samtvinnuð ■ ör-
lögum hinna stóru aúövelda Evrópu og Ameríku og
verkefni þau, sem bíða íslenzka verkalýðsins snar
þáttur þeirra sögulegu átaka, sem verða mun hlut-
skipti verkalýösins í þessum löndum. Flokkur vör
þarf því að leggja mikla stund á, að ala meðlimi
sína upp í anda hinnar sósíalistisku alþjóðahyggju
og leggja ríka áherzlu á hið sósíalistiska uppeldi og
fræðslu. Öll starfsemi flokksins verður að vera ná-
tengd baráttunni fyrir hinum sósíalistisku markmið-
um, sem ekki eru lengur fyrst og fremst framtíðar-
markmiö, heldur hin eina úrlausn á vandamálurrt
nútímans. Flokkurinn verður að gera íslenzkri ai-
þýðu ljóst að sósíalisminn fellur henni ekki í skaut
sem einhver gjöf frá útlöndum, sigurinn yfir auð-
valdinu og framkvæmd sósíalismans getur aðeins örð-
ið verk íslenzkrar alþýðu, enda þótt hún í þessu starfi
sínu, sé háð þeim skilyrðum, sem fyrir hendi exu í
nágrannalöndunum og henni geti aöeins orðiö sig-
urs auðið' í samstarfi við verkalýð þessara landa. Og
Sósíalistaflokkurinn verður að gera sér Ijóst, aö fram-
tíð sósíalismans á íslandi er algerlega undir því kom-
in hversu vel hann reynist forustuhluverki sínu vax-
inn.
127