Réttur


Réttur - 01.10.1974, Page 5

Réttur - 01.10.1974, Page 5
sjónarmið. Áður stóð í lögunum: „hver sú kona sem verður ekkja innan 67 ára aldurs á rétt á bótum í 6 mánuði eftir lát eigin- manns síns og síðan áfram í 12 mánuði í viðbót, hafi hún barn yngra en 16 ára á framfæri." Þessari lagagrein var breytt á þann veg að nú stendur í upphafi hennar; „hver sem á lögheimili hér á landi og verður ekkja eða ekkill innan 67 ára aldurs á rétt á bótum," o. s. frv. Aldurstakmark barns vegna bóta eftir fyrstu 6 mánuðina var hækkað upp í 17 ár, en barnalífeyrir er nú greiddur upp að þeim aldri. Ekki var hreyft við því ákvæði sem gefur ekkju, en ekki ekkli rétt á áframhaldandi bótum, að h'ðnu 6 eða 18 mánaða tímabil- inu, ef hún er orðin 50 ára við fráfall maka. Þar þótti rétt að taka tillit til þess, hve erfitt er fyrir konu, sem komin er á efri ár, að komast í launuð störf, hafi hún áður einvörð- ungu sinnt húsmóðurstörfum eins og títt er. Ákvæði um sjúkradagpeninga sem greidd- ir eru í takmarkaðan tíma ,ef menn geta ekki unnið vegna veikinda, vom mjög mótuð af því sjónarmiði að kvæntur maður sé oft- ast eini framfærandinn á heimili sínu. 1 ákvæðum um upphæð sjúkradagpeninga sagði að kvæntir rnenn eða giftar konur, sem væru aðalfyrirvinnur heimila, skyldu fá hærri dagpeninga en aðrir einstaklingar og dagpeningar húsmæðra, sem ekki ynnu utan heimilis, skyldu miðaðir við örorkulífeyri. Fyrir utan þær hámarksupphæðir, sem takmarka sjúkradagpeninga hverju sinni í lögum, takmarkast þeir einnig við % af þeim vinnutekjum sem hlutaðeigandi hefur misst. Þetta hefur væntanlega valdið nokkr- um erfiðleikum, þegar um var að ræða ó- launuð húsmóðurstörf og því hefur ákveðið um örorkulífeyri komið inn. Sú breyting var gerð á greiðslu sjúkra- Magnús Kjartansson tryggingaráðherra 1971—’74 dagpeninga, að gert er ráð fyrir sömu greiðslu til allra einstaklinga en tillit til framfærslu- byrði er tekið með því að hækka greiðslur vegna barna, sem hinn sjúki hefur á fram- færi. Dagpeningarnir takmarkast eins og áður segir við % vinnutekna, nema þegar um ólaunuð húsmóðurstörf er að ræða. Fyrir þær gildir einfaldlega sú upphæð, sem til- tekin er fyrir einstakling, án frekari tak- markana. 197

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.