Réttur - 01.10.1974, Blaðsíða 20
við fyrsta tækifæri vildu koma þeim fyrir
kattarnef. En jafnframt verður þessum nýju
sósíalistísku stjórnum að vera ljóst að ein-
mitt í byrjunarerfiðleikum vestrænna alþýðu-
stjórna getur efnahags- og hermáttur Sovét-
ríkjanna verið þeim ómetanlegur bakhjallur.
A sama hátt þarf Kommúnistaflokkur Sov-
étríkjanna að skilja að með tilkomu sterkra
sósíalistískra ríkisstjórna í löndum Vestur-
Evrópu, losna Sovétríkin endanlega úr því
umsátursástandi, sem þau hafa verið í ára-
tugum saman, og þar með gerbreytast allar
þœr aðstæður, sem óheppileg áhrif hafa haft
á þróun þeirra.
V.
*
Oskadraumur?
En er þetta, um valdatöku sósíalista á
Vesturlöndum, ekki bara óskadraumur,
frómar óskir gamals byltingamanns um að
sjá drauma sína rætast? Og munu ekki
Bandaríkin strax kæfa slíkar byltingar í
fæðingunni?
Valdaaðstaða öll er nú breytt Bandaríkj-
unum í óhag — og stjórnendur þeirra byrja
að gera sér það ljóst. Þau hafa misst hina
ótvíræðu forustu, er þau héldu í aldarfjórð-
ung, — efnahagslega, þegar dollarinn hrundi
úr drottnandi stöðu sinni sem ígildi gulls,
— pólitískt, þegar Watergate-hneykslið
beraði hyldjúpa spillingu bandarísks stjórn-
málalífs, — og hernaðarlega, þegar voldug-
asta hervél heims varð að gefast upp við
að brjóta fátæka bændaþjóð Víetnam á bak
afmr.
Og þau taka að örvænta um aðstöðu
sína í Vestur-Evrópu.
Það er fróðlegt að kynna sér í þessu sam-
bandi hvað „Newstveek," hið þekkta borg-
aralega, bandaríska tímarit, hefur að segja
um þá þróun, sem hér hefur verið rædd,
þann 28. október sl. Ekki verður það blað
grunað um samúð með sósíalisma. En þar
stendur um atburðina í Vestur-Evrópu m.a.
þetta:
„Fyrir nokkrum mánuðum hefði sú hug-
mynd að kommúnistar kæmust til valda í
Lissabon, — eða hvar sem væri í Vestur-
Evrópu — þótt fáránleg"...........
„En nú líta spekingarnir öðru visi á mál-
ið. Eftir valdabreytinguna í Lissabon og fall
herforingjastjórnarínnar í Aþenu, hefur
kommúnistum vegnað vel í sókn í Suður-
Evrópu. Kommúnisminn hefur raunveru-
lega brotist fram sem voldugt pólitískt afl,
— afl, sem öðlast hefur nýja virðingu og
meiri almenna hylli en nokkru sinni fyrr."
Um aðstöðuna á Italíu segir „Newsweek"
„Vikum saman hafa gengið sögur í Róm
um að hinn sterki Kommúnistaflokkur Italíu
yrði tekinn í samsteypustjórn."
„Sjálfstæð afstaða Kommúnistaflokks
ltalíu hefur skapað honum gífurlega virð-
ingu. Og þar sem ekkert útlit er fyrir varan-
lega lausn á hinum stöðugu vandræðum
Italíu á stjórnmála- og efnahagssviði, þá
virðist það næstum óhjákvæmilegt að Komm-
únistaflokkur Italíu fái að lokum opinbera
aðstöðu í ríkisstjórn landsins" .... „Kristi-
legu demókratarnir hafa næstum því fullnýtt
alla aðra samsteypumöguleika. Aður en langt
um líður kann svo að fara að þeir verði
knúðir til þess að snúa sér til Kfl. ltalíu
212