Réttur


Réttur - 01.10.1974, Blaðsíða 32

Réttur - 01.10.1974, Blaðsíða 32
yrði að leggja tillögur þessar fram snemma á ráðstefnunni. Svo varð þó ekki. Margt varð til tafar, en þó einkum sérhagsmunir og sér- skoðanir nokkurra strandríkja, svo og stöð- ug viðleitni Afríkuríkja til að hafa sem allra víðtækasta samstöðu, enda þótt erfitt reynist að samræma hagsmuni afrískra strandríkja og hinna, sem ekki eiga land að sjó. Ymis þau ríki, sem að vísu telja sig fylgjandi 200 mílna auðlindalögsögu sem meginreglu, gera kröfu til að eitt og annað fylgi, sem önnur stuðningsríki 200 mílna eru sum hver algjör- lega andvíg. Torveldar slíkt það samstarf, sem nauðsynlegt er milli allra þjóða með skyld sjónarmið, eigi þess að vera nokkur von að tillögur um víða auðlindalögsögu nái fram að ganga. Nokkur ríki Suður-Ameríku krefjast þess að saman fari 200 mílna auð- lindalögsaga og 200 mílna landhelgi, en gegn svo víðri landhelgi er mjög almenn andstaða. Nokkur ríki, sem eiga landgrunns- mngur langt út fyrir 200 mílur, gera kröfu til þess að fá einnig yfirráðarétt yfir slíkum svæðum. Fleiri sérhagsmunasjónarmið koma til, sem torvelda samstöðu, og urðu þau til þess að gera strandríkjahópnum erfitt um vik og tefja mjög árangur af starfi hans. Niðurstaðan varð sú, að snemma í ágúst- mánuði lögðu 9 ríki úr þessum hópi fram sameiginlegar tillögur um nokkur meginat- riði hafréttarmála. Að baki þeim tillöguflutn- ingi stóðu mörg strandríki önnur, sem þó voru ekki á þeirri stundu reiðubúin að falla frá sérkröfum sínum. Island og Noregur voru einu Evrópuríkin, sem stóðu að tillöguflutn- ingi þessum. Helstu ákvæði þessara tillagna eru þau, að víðátta eiginlegrar landhelgi skuli vera 12 sjómílur frá grunnlínum, en síðan taki við auðlindasvæði strandríkis og skuli ytri mörk þess ekki vera yfir 200 sjó- mílur frá sömu grunnlínum. Segir og að hvarvetna á svæði þessu hafi strandríki full- veldisrétt (sovereign rights) til að kanna og nýta auðlindir á sjávar'botni, í jarðdjúpinu og sjónum þar yfir. Hinsvegar skuli siglinga- frelsi ríkja innan auðlindalögsögusvæðisins. Mörg önnur ákvæði eru í frumvarpi þessu, þótt ekki verði hér talin. Af undirtektum á ráðstefnunni virðist ljóst, að hér sé um að ræða tillögur, sem einna líklegast megi telja að hægt verði að sameina tvo þriðju þjóða um, enda þótt enn skorti mjög á að samstaða sé orðin meðal fylgjenda þessara hugmynda um önnur mikilvæg atriði. IV. Eftir að tillögur strandríkjanna 9 höfðu verið lagðar fram og umræður hófust um þær, fór að komast nokkur skriður á fisk- veiðilögsögumálin. Nú brá svo við, að allir (eða nær allir) þóttust fylgjandi auðlinda- lögsögu strandríkis í einhverri mynd, en ýmsir vilja takmarka hana að meira eða minna leyti, og þeir hörðustu, svo sem Efna- hagsbandalagslöndin, hyggjast gera hana lítið annað en nafnið tómt. Nú voru lögð fram ný skjöl, hvert á fæt- ur öðru, og báru þau öll þess ljósan vott hve hugmyndin um víða auðlindalögsögu hefur náð mikilli fótfestu á ótrúlega skömmum tíma. Gleggstur vottur þess voru tillögur þær, sem Sovétríkin og fimm önnur Austur- Evrópuríki lögðu fram um miðjan ágúst. A undirbúningsfundinum í fyrra voru fulltrúar Sovétríkjanna enn þeirrar skoðunar, að al- menn fiskveiðilögsaga ætti að vera 12 mílur, en strandríki háð fiskveiðum fengju þó ein- hver takmörkuð réttindi þar fyrir utan. Nú féllust þessi sex Austur-Evrópuríki á hug- myndina um auðlindasvæði, enda sé það þátt- ur í heildarlausn hafrétrarmála, þar sem náðst hefði samkomulag um tólf mílna land- helgi hið mesta, almennt siglingafrelsi, þar á 224
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.