Réttur - 01.10.1974, Blaðsíða 60
HÆKKANIR LANDBÚNAÐARVARA á fyrstu vikum hægristjórnarinnar —
frá upphafi stjórnarinnar til 1. desember:
Mjólk í 2ja lítra fernum var .. 41,60 nú 65,50 - 59,5 %
Rjómi . . 196,00 nú 303,00 = 54,6 —
Skyr . . 48,40 nú 91,00 = 88,0 —
Smjör . . 200,00 nú 463,00 = 131,5 —
Ostur . . 326,00 nú 445,00 = 36,5 —
Súpukjöt .. 183,00 nú 301,00 = 64,5 —
Læri . . 217,00 nú 341,00 = 57,1 —
Kótilettur . . 257,00 nú 388,00 = 51,0 —
daginn sem alþingi kom saman. Þá kom á
daginn að ekki átti einasta að skerða kjör
alþýðu verulega — það átti einnig að taka
upp samdráttarstefnu í verklegum fram-
kvæmdum. Gerði frumvarpið ráð fyrir um
15% skerðingu verklegra framkvæmda á
næsta ári, en að heildarhækkun frá fjár-
lagafrumvarpi síðasta árs yrði engu að síður
65%. Um þetta fjárlagafrumvarp sagði
Lúðvík Jósepsson í útvarpsumræðum frá al-
þingi: Það sem einkennir þetta frumvarp er
samdráttur í öllum framkvæmdum og kaup-
lækkanir.
Geir Gunnarsson vakti athygli á því í ræðu
á alþingi að skattar myndu samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu hækka um 9-500 milj. kr.,
eða um 50 þúsund krónur á hvert manns-
barn í landinu. Um sama leyti var tilkynnt
að ríkisstjórnin hefði heimilað hækkun út-
svara á næsta ári um 10%.
Helgina 17. og 18 nóvember voru haldin
þing þriggja verkalýðssambanda, sem öll
mótmæltu mjög eindregið kjaraskerðingarað-
gerðum ríkisstjórnarinnar. í lok nóvember
kom sambandsstjrn ASI saman til fundar og
mótmælti harðlega árásum stjórnarvalda. I
ályktun sambandsstjórnarfundarins kemur
m.a. fram að á fyrstu 10 mánuðum ársins
hefur framfærsluvísitalan hækkað um 100 st.
eða 43%. Fyrirsjáanleg er a.m.k. 20 stiga
hækkun á framfærsluvísitölu og verður heild-
arhækkunin á einu ári þá um 50%. Enn-
fremur segir í ályktuninni að samfara hin-
um miklu verðlagshækkunum hafi raun-
laun lækkað um 12—20%.
Eru síðan raktar ástæður þess að verka-
lýðshreyfingin kaus að rifta kjarasamning-
um sínum og að allir samningar eru nú laus-
ir. Er því heitið að alþýðusamtökin muni
stefna að því í næstu kjarasamningum, sem
gert er ráð fyrir að hefjist á næstunni, að ná
aftur til fulls þeim árangri sem náðist í kjara-
samningunum í febrúar sl.
Og að lokum skal þess getið í þessum
pistli um verðhækkanir, kaupskerðingu og
samdráttaraðgerðir íhaldsstjórnarinnar að
252