Réttur - 01.10.1974, Qupperneq 14
Lenín
Dimilroff
Mao Tse Tung
tamt að láta blekkjast af fagurgala þess um
lýðræðið, svo sem best sést á því í hve rík-
um mæli þeir hafa ánetjast Atlandshafs-
bandalaginu og Bandaríkjunum.
Kommúnista skortir ekki kjarkinn í bar-
áttu við auðvaldið. Saga þeirra víða um heim
er sannkölluð hetjusaga. En tryggð þeirra við
sósíalismann og fyrsta aldarfjórðunginn við
Sovétríkin sem eina ríki sósíalismans í raun-
veruleikanum, leiddi þá oft afvega, er hin
sósíalistísku ríki átm í hlut. Þegar þar voru
framin illvirki, er við álitum óhugsandi í
sósíalistísku þjóðfélagi, vorum við of auðtrúa.
(Auðtryggni var sá mannlegur löstur, er
Marx kvað afsakanlegastan, en undirlægju-
háttinn fyrirlitlegastan).
Algert sjálfstœði þessara flokka, gagnvart
auðmannastéttunum annarsvegar og Sovét-
ríkjunum hinsvegar, er forsenda fyrir sam-
starfi þeirra og sigri. Frakkland sýnir hvaða
möguleikar skaþast strax og slíkt samstarf
er hafið.
Við skulum ekki gleyma því, þótt heims-
sagan hafi í meira en hálfa öld einkennst
af sigrum rússnesku og kínversku bylting-
anna, að sósíaJisminn er upprunninn í Vestur-
Evrópu og marxisminn í upphafi mótaður
af enskri verklýðshreyfingu, frönskum hug-
sjónasósíalisma og þýskri heimspeki.
Svo sem Lenín beitti marxismanum og
mótaði hann ti-1 baráttunnar gegn imperíal-
ismanum og til sigurs rússnesku byltingar-
innar, svo sem Dimitroff þróaði hann í bar-
áttunni við fasismann og Mao Tse Tung til
sigurs kínversku byltingarinnar, svo verða
og sósíalistar Vestur-Evrópu sjálfstætt og
djarft að beita honum til að skapa þá stjórn-
list, er megni að leiða alþýðu Vesturlanda
til sigurs á auðvaldinu og kreppu þess og
þróa sósíalismann á Vesturlöndum í sam-
ræmi við arf vorn og aðstæður. Við þá mót-
un má margt læra af þeim miklu hugsuðum
marxista í Italíu og Þýskalandi: Antonio
Gramsci og Rósu Luxemburg. Og að öllum
líkindum verður sá vesturevrópski sósíalismi
nær hugmyndum brautryðjendanna miklu,
Marx og Engels, en hann hefur orðið annars-
staðar. Marx gerði sér strax 1850 ljóst hve
206