Réttur - 01.10.1974, Page 50
ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON
og íslensk alþýða
Á fimmtugasta afmælisári „Bréfs til Láru"
kvaddi sá mikli töframaður íslenskrar tungu,
einn sérstæðasti boðberi sósíalismans í ver-
öldinni, þennan heim.
Líklega hefur aldrei íslenskur maður sam-
einað í sér eins og hann hreinskilni barns-
ins og visku spekingsins, humor háðfuglsins
og eldmóð hugsjónamannsins, gamansemi
græskuleysingjans og vandlætingu spámanns-
ins.
Aldrei hefur boðskapur alþjóðlegs sósíal-
isma birtst í f jölbreytilegri og frumlegri þjóð-
legum myndum en í ódauðlegum ritum hans.
Hann gerðist með „Bréfi til Láru" braut-
ryðjandi stórbrotnustu skáldakynslóðar, sem
Island hefur eignast frá upphafi vega, kyn-
slóðar hinna rauðu penna, sem lyftu þjóð-
inni andlega og listrænt hærra en nokkru
sinni fyr, meðan hennar naut við.. Þeir rauðu
rithöfundar börðust við hlið alþýðu og lyftu
með henni því grettistaki að ryðja fargi fá-
tæktarinnar úr vegi hennar og þeirra. Þeir
hníga nú til foldar, brautryðjendurnir, hver
á fætur öðrum: Jóhannes úr Kötlum, Krist-
inn, Þórbergur.
Það var stormasamt um Þórberg í lífinu
og þegar hann lenti í hörðustu átökunum,
svo sem 1925 og 1939, reit hann ádeilurit,
sem verða einstæð í íslenskum bókmenntum
að hugmyndaauðgi og orðsins list. Fulltrúa
íslenskrar borgarastéttar sveið undan ákær-
um hans og hefndu sín með ofsóknum með-
an þeir máttu, uns ágæti listar hans, ást
alþýðu og aðdáun þjóðarinnar höfðu byggt
þann varnarmúr um hann, sem ei varð rof-
inn.
Þegar Þórbergur getur ekki lengur borið
hönd fyrir höfuð sér, varist og sótt með vopni
sínu pennanum, mun þessi sama burgeisastétt
smátt og smátt reyna að brjóta oddinn af
boðskap hans, deyfa eggjar þeirra vopna, er
hann smíðaði alþýðu. SJÍk er hennar aðferð
við þau skáld, sem rista auðvaldsskipulaginu
rammast níð, meðan þau lifa. Þorsteinn
Erlingsson reynir hún að gera bara að
„skáldi heiðríkjunnar", Þórberg mun hún
reyna að gera óskaðlegan með því að smvrja
hann sem dýrling tungunnar, hún mun láta
leigða skriffinna sína hamast við að reyna
að þurrka burt roðann af rauða pennanum
hans, af öllum rauðu pennunum.
Þórbergur var íslenskri alþýðu og bylt-
ingarhugsjón hennar, sósíalismanum, hinn
síkviki boðberi og brautryðjandi. Hann eftir-
i
242