Réttur - 01.10.1980, Blaðsíða 23
Það var því ekki að undra þó eldur
færi um hugi kúgaðrar alþýðu um gerv-
allani heim, er bylting alþýðunnar í Rúss-
landi 1917 hafði eigi aðeins tekist heldur
<>g staðist innrásir frá herjum 14 auð-
valdsríkja í fjögur ár og sigrað að lokum
með ægilegum fórnum 1921.
Það kviknaði von um sigur sósíalism-
ans, frelsið af oki auðvalds um gervalla
veröld, er það sýndi sig að fyrsta verk-
lýðsvald á jörðinni var orðinn raunveru-
leiki, sem eigi varð kæfður í blóði hinna
kúguðu sem liingað til.
I trúnni á að boðskapurinn um vald og
sigur verkalýðsins og allra kúgaðra stétta
og þjóða ætti erindi til alls hins vinnandi
og kúgaða mannkyns, er stundi undir
járnhæl voldugra auðdrottna Evrópu -
var AIjjjóðasarnband kommúnista stofn-
að 1919.
Aldrei í veraldarsögunni hefur verið
gerð tilraun til að skapa víðfeðmara al-
þjóðabræðralag vinnandi og hugsandi
manna og kvenna, er sameinast um þá
hugsjón að útrýma endanlega úr heimin-
um allri stétta- og þjóðakúgun og skapa á
jörðinni mannfélög sameignar, jafnréttis
og frelsis þessa fyrrum kúgaða fólks. Fram
til 1917 hafði boðskapur sósíalismans ver-
ið að mestu takmarkaður við Evrópu og
Norður-Ameríku.
Aldrei liafa verið færðar dýrari fórnir
lyrir sigri þessa málstaðar en af þeim
næstum lmndrað flokkum kommúnista
í flestum löndum heims, er heyja urðu
hugsjónabaráttu sína allflestir í banni
laganna með lífið að veði og langelsi og
pyntingar yfirstéttar ylir höfði sér.
Auðvitað gerðu þessir hugsjónamenn
sósíalismans, kommúnistarnir, sér ljóst
að fyrsta skilyrðið til þess að geta fram-
kvæmt þessa hugsjón var að taka ríkis-
valdið af yfirstéttinni og beita því gegn
henni.
Þetta var gert með byltingunni í Rúss-
laindi 7. nóvember 1917.
Og byltingin í Rússlandi var gerð und-
ir hugsanlega erfiðustu aðstæðum til að
byggja upp sósíalisma. í fimm ár varð
hún að heyja blóðugt borgarastríð og
varnarstríð gegn innrásarherjum auð-
valds til að lifa af - og það tókst með ægi-
legum fórnum.
Aðstæðurnar til uppbyggingar sósíal-
isma voru hinar erfiðustu: Verkalýður-
inn, sem átti að vera á0% íbúanna, ef allt
væri með felldu til slíks stórvirkis, var að-
eins milli 5-10%, að vísu samsafnaður í
stórborgum landsins í stóriðjuverum, en
80-90% þjóðarinnar bændur, mestmegn-
is ólæsir og óskrifandi. Það vantaði hina
aldalöngu baráttu fyrir lýðréttindum og
sköpun löglegxa verklýðsfélaga með ára-
tuga baráttu reynslu - eins og til var í
V estur-Evrópu.
Og svo má ekki gleymast hvað ríkis-
vald er — jafnvel í löndum byltingarsinn-
aðs verkalýðs, þegar hann fer að munda
þetta tvíeggjaða sverð, er yfirstéttir skópu
í öndverðu gegn aljjýðu. Ríkisvaldið það
er: her, lögregla, leynilögregla, fangelsi,
dómarar o. s. frv. — og býr yfir þeim freist-
ingum spillingar, sem hinn byltingar-
sinnaði kristindómur6 öreiga Rómaveld-
is fékk að kenna á, eftir að ríkisvald yfir-
stéttar innlimaði hann í sig.
Það var því ekki að undra að forvígis-
menn byltingarinnar á fyrstu árum henn-
ar settu alla von sína á byltingu verka-
lýðsins í Þýzkalandi, jiar sem sterkasta
verklýðshreyfing Evrópu var fyrir stríð -
og allar forsendur fyrir liendi til sósíal-
isma, ef forusta og fjöldaflokkur og sam-
tök verkalýðsins vildu.