Réttur - 01.10.1980, Blaðsíða 61
stéttvísi hafa löngum verið gildir þættir
í verkalýðshreyfingunni þar. Það ástand
sem þarna ríkti á hinum óvissu atvinnu-
leysistímum hefur líka gert nauðsynina á
samstöðu stéttarfélaganna ofur augljósa.
Framhjá því verður heldur ekki gengið,
að róttækari armurinn átti marga trausta
og liarða baráttumenn, sem of langt yrði
upp að telja. Þó hygg ég að ekki sé á
neinn hallað þótt nefndir séu sérstaklega
þeir Þóroddur Guðmundsson og Gunnar
Jóhannsson. Ogaf þeirn félögum í Þrótti,
sem börðust fyrir sameiningu og sigruðu
má óefað helstan nefna Jón Jóhannsson.
Hér hefur verið rakinn einn lítill þátt-
ur þeirrar stórfelldu atburðarásar og
þeirra sviptinga, sem áttu sér stað á þess-
um tíma bæði hér á landi og annars stað-
ar í heiminum. Þetta voru sannarlega ár
mikilla atburða og flestra hörmulegra.
En þetta var stór þáttur á litlum stað og
hans er gott að minnast. Yfir Jreirri þró-
un hvílir enginn skuggi.
Pólitísk samvinna verkalýðsflokkanna
I kjölfar sameiningar verkamannafé-
laganna í byrjun 1937, fór ört vaxandi
meðal alþýðunnar á Siglufirði vilji til
víðtækari samviunu og sameiningar, sem
næði einnig til pólitíska sviðsins. Hélst
það í hendur við aðra þróun í landinu,
sem m. a. kom fram í því, að Kommún-
istaflokkurinn fékk 3 þingmenn kjörna í
alþingiskosningunum 20. júní.
Á Siglufirði jókst samvinna bæjarfull-
trúa flokkanna eftir því sem á sumarið
og liaustið leið. Bæjarstjórnarkosningar
stóðu fyrir dyrum í ársbyjrun 1938 og
brátt var farið að ræða um samvinnu í
þeim kosningum. 7. desember er málum
svo komið að Brautin skýrir frá því að
nefndir frá flokkunum séu teknar að
ræða um sameiginlegt framboð. Og 19.
des. birtir blaðið hinn sameiginlega lista,
sem var þannig skipaður: I. Erlendur
Þorsteinsson A, 2. Gunnar Jóhannsson K,
3. Jóhann F. Guðmundsson A, 4. Þórodd-
ur Guðmundsson K, 5. Jón Tr. Jóhanns-
son A, 6. Aðalbjörn Pétursson K, 7. Arn-
þór Jóhannsson A, 8. Sveinn Þorsteinsson
K, 9. Kristján Sigurðsson A, 10. Kristján
Dýrfjörð A, 11. Rósmudur Guðnason K,
12. Kristmar Ólafsson A, 13. Óskar Gari-
baldason K, 14. Gunnlaugur Sigurðsson
A, 15. Kristján Sigtryggsson K, 16. Guð-
mundur Sigurðsson A, 17. Páll Ásgríms-
son K, 18. Páll Guðnrundsson A.
í sama blaði er birtur samstarfssamn-
ingur flokkanna og undir hann rita: í
samninganefnd Kommúnistaflokksins:
Gunnar Jóhannsson, Þóroddur Guð-
mundsson, Aðalbjörn Pétursson, Jón
Þorvaldsson, Anna Guðmundsdóttir,
Hannes Guðmundsson og Ásgrímur Al-
bertsson. í samninganefnd Alþýðuflokks-
ins: Erlendur Þorsteinsson, Jóhann F.
Guðmundsson, Jón Tr. Jóliannsson, Arn-
þór Jóhannsson, Kristján Sigurðsson,
Kristmar Olafsson og Jón Jónsson.
Samvinna í kosningabaráttunni fyrir
sigri Alþýðulistans, senr svo var kallaður,
tókst nrjög vel og árangurinn lét ekki á
sér standa. Alþýðulistinn fékk 672 atkv.
og 5 menn, Framsóknarflokkurinn 253
atkv. og 1 mann og Sjálfstæðisflokkurinn
386 atkv. og 3 menn.
Bæjarmálasamstarf þetta reyndist mjög
gott og árangursríkt og olli straumhvörf-
um. Ráðinn var sérstakur bæjarstjóri,
Áki Jakobsson. Hélst samvinnan allt
kjörtímabilið og lengur, þó ekki næðist
nreirihluti 1942.