Réttur - 01.10.1980, Blaðsíða 43
Við þingkosningarnar 1933 bauð KFÍ
fram í allflestum kjördæmum landsins og
lékk 7,5% allra kjósenda. Var það góður
árangur eftir aðeins tveggja ára starf, erf-
iða aðstöðu vegua einmenningskjördæm-
anna og blaðakost lítinn móts við liina
llokkana.
Ef borið er saman við hlutfallstölu
kommúnistaflokkanna á Norðurlöndum
jíá sést að KFÍ er hlutfallslega mun sterk-
ari en ]>eir. Danski flokkurinn hefur
1931 1,1%, 1935 1,6% og 1939 2,4%.
Norski flokkurinn hafði 1930 1,7%, en
bauð óvíða fram 1936. Sænski flokkurinn
var þeirra sterkastur, hafði við flestar
kosningar á þessum áratug um 5% atkv.
lhezki flokkurinn, svo ágætur sem hann
var að mannvali, hafði ómögulega að-
stöðu vegna einmenningskjördæmanna.
Það voru aðeins þýsku og frönsku komm-
únistaflokkarnir, sem voru hlutfallslega
sterkari en sá íslenski, meðan fasisminn
ekki greip inn í rás viðburðanna með
blóðugum hrammi sínum.
3. Alþjóðahyggja
sósíalismans
og samfylking
gegn stríði og fasisma
KFÍ ól félaga sína upp í alþjóðahyggju
sósíalismans, samúð með frelsisbaráttu
kúgaðra stétta og þjóða bvar sem væri í
heiminum og samtímis í andúð á árásar-
stríðum auðvaldsins á aðrar jijóðir eða á
rfki verkalýðsins.
Allur áratugurinn 1931 til 1939 var
samfelld saga vaxandi styrjaldarvoða.
Strax og japanska herveldið réðist á
Mansjúríu 1931 og síðan á Kína, var auð-
séð að styrjöld Jæssa einræðisríkis auð-
valdsins við Sovétríkin og sovét-héruð
Kína var vel hugsanleg, enda kom um
tíma til vopnaviðskipta milli rauða hers-
ins og þess japanska.
Því var }oað að ýmsir af fremstu rithöf-
undum og mannvinum heims svo sem
Aíaxim Gorki, Romain Roland, Henri
Barbusse, Bertrand Russell, Albert Ein-
stein, Martin Andersen Nexö o. fl., o. fl.,
gengust fyrir „heimsþingi til andmæla
gegn alveldisstríði“ í Amsterdam 27.-29.
ágúst 1932. Helsti skipuleggjandi þessa
mikla jrings, þar sem mættu um fimm
þúsundir manna, m. a. 2500 fulltrúar
verklýðsfélaga úr 27 löndum með umboð
um 30 milljóna meðlima, var Willy
Múnzenberg, einn af helstu forustu-
mönnum jaýska kommúnistaflokksins. Á
þinginu mætti Halldór Laxness sem full-
trúi Aljrjóðasamhjálpar verkalýðsins á ís-
landi (ASV), en þau hjálparsamtök við
verkalýð í stéttabaráttu hans höfðu verið
stofnuð hér heirna 1930 og voru allsterk
orðin. Ritaði FTalldór ágæta lýsingu á
jiessu jiingi í ,,Verklýðsblaðið“, er birtist
þar 13. september. Er stuðst við jrá grein
í því, sem hér hefur verið sagt.
Hver stóratburðurinn öðrum uggvæn-
le’gri rak ainnan: 1933 tekur nasisminn
völdin í Þýskalandi, 1935 ræðst ítalski
fasisminn á Abessíníu, 1936 fasistaupp-
reisnin á Spáni o. s. frv. Auðvald Vestur-
veldanna hendir í rauninni hverri bráð-
inni á fætur annarri í gráðugt gin nasista-
úlfsins, til þess að eggja liann til árásar
á Sovétríkin: Spáni, Austurríki, Tékkó-
slóvakíu.
235